Innlent

Sjálf­stæðis­flokkurinn hafi barist gegn fjár­veitingum til mennta­mála

Jón Ísak Ragnarsson skrifar
Ásmundur Einar Daðason er mennta- og barnamálaráðherra og leiðir lista Framsóknarflokksins í Reykjavíkurkjördæmi norður.
Ásmundur Einar Daðason er mennta- og barnamálaráðherra og leiðir lista Framsóknarflokksins í Reykjavíkurkjördæmi norður. Vísir/Vilhelm

Ásmundur Einar Daðason, mennta- og barnamálaráðherra, segist ekki treysta Sjálfstæðisflokknum til að fjárfesta í menntakerfinu. Hann segir flokkinn hafa barist gegn fjárveitingum til málaflokksins og lagt til niðurskurð á hverju ári.

Þá gagnrýnir hann einnig harðlega hugmyndir Sjálfstæðisflokksins um móttökuskóla fyrir börn af erlendum uppruna og aðra sérskóla.

„Að vera með sérskóla fyrir börn með erlendan bakgrunn og sérskóla fyrir börn með þroskaröskun og sérskóla hér og þar. Það er ekki skóli sem er hugsaður til þess að byggja upp samfélag fyrir alla.“

Það sé ekki rétta svarið við áskorunum sem fylgja fjölbreytni samfélagsins að flokka það niður eftir styrkleika eða veikleika. Rétta leiðin sé að hlusta á fólkið inni í skólunum, búa til verkfærin til að aðstoða þau við að takast á við verkefnin. Það eigi meðal annars við um námsgögn.

„Halló hvar hafið þið verið í öll þessi ár?"

Ásmundur segir að betra væri að efla námsgagnaútgáfu frekar en að flokka börn og setja þau í sérskóla. Kennarasambandið hafi kallað eftir því í langan tíma að fá aukið námsefni þegar kemur að íslensku sem öðru tungumáli.

Jafnframt sé gert ráð fyrir 50 prósent aukningu þróunarfé til leik- og grunnskóla í fjárlögum næsta árs. Framsóknarflokkurinn sé nú kominn í fjármálaráðuneytið og þá fyrst hafi borið á auknum fjárveitingum til menntamála.

„Á sama tíma koma þeir flokkar sem hafa setið í fjármálaráðuneytinu í mjög mörg ár og vilja efla námsgagnaútgáfu.“

„Bara halló, hvar hafið þið verið í öll þessi ár sem ég var í menntamálaráðuneytinu og Lilja Alfreðsdóttir á undan? Þegar þið hafið beinlínis lagt til niðurskurð á hverju einasta ári, barist gegn því að við setjum fjármagn inn í þessa málaflokka, og svo komið þið núna og ætlið að boða innspýtingu í námsgagnaútgáfu? Bara velkomin í hópinn en ég bara treysti ykkur ekki til að vera tilbúinn að til að fjárfesta í menntakerfinu,“ segir Ásmundur Einar.

Viðtalið var birt á Youtube-síðu Framsóknarflokksins, en umræða um þessi atriði hófst á mínútu 34.


Tengdar fréttir

„Hættulegar“ hugmyndir og „aðskilnaðarstefna“

Ásmundur Einar Daðason, mennta- og barnamálaráðherra, og Jón Gnarr, listamaður og fyrrverandi borgarstjóri, eru meðal þeirra sem gagnrýna hugmyndir um móttökuskóla fyrir börn af erlendum uppruna.

Segir kennara fagna hugmyndinni

Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir segir umdeildri hugmynd hennar um móttökuskóla fyrir erlend börn hafa verið tekið vel af kennurum og skólastjórnendum. Ráðherra og frambjóðandi til Alþingis hafa sagt hugmynd hennar hættulega og í anda aðskilnaðarstefnu.

Höfnum gamaldags aðgreiningu

Árið 1974 var fyrst talað um í lögum að skólinn væri fyrir öll börn. Allar götur síðan hafa íslenskir stjórnmálamenn, að mestu, sammælst um þá framtíðarsýn. Í umræðum undanfarið hafa verið settar fram hugmyndir um að aðgreina eigi skóla eftir uppruna barna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×