Handbolti

Leikdagur í Innbruck: Hvernig gekk að læra?

Valur Páll Eiríksson skrifar
Það reynir á stelpurnar okkar í dag.
Það reynir á stelpurnar okkar í dag. Vísir/Hulda Margrét

Íslenska kvennalandsliðið í handbolta hefur leik á fyrsta Evrópumóti liðsins síðan 2012 þegar það mætir sterku hollensku liði klukkan 17:00 í Ólympíuhöllinni í Innsbruck í dag. Komið er að fyrsta prófinu eftir mikla lærdómstörn.

Valur Páll Eiríksson skrifar frá Innsbruck

Það var létt yfir íslenska hópnum þegar hann æfði í keppnishöllinni í hádeginu í gær. Örlítill munur var á aðstæðum frá því deginum áður. Þá æfðu þær í næsta húsi í krúttlegum íþróttasal sem minnti helst á litla salinn í Gróttuheimilinu.

Þetta er stórt, að liðið sé komið á þetta svið. Landsliðskonurnar hafa talað um heimsmeistaramótið í fyrra eins og ákveðinn bónus, enda vann Ísland sér ekki inn keppnisrétt þar heldur fékk úthlutað svokölluðu wild card sæti.

Verkefni dagsins er ærið, gegn hollensku liði sem varð heimsmeistari fyrir fimm árum. Óhætt er að segja að liðið sé meðal þeirra fimm bestu í heimi en það hafnaði í fimmta sæti á bæði HM í fyrra og Ólympíuleikunum í París í sumar.

Það skal ekki undra að Berglind Þorsteinsdóttir segi: „Úff, þetta verður erfitt,“ í viðtali fyrir leik.

Munurinn á mótinu sem hefst í dag og því fyrir ári síðan er hins vegar sá að stelpurnar okkar unnu sér inn réttinn til að vera hér í gegnum undankeppni. Þær eiga heima á þessu sviði og þær sýndu það með frábærri, þó kaflaskiptri, frammistöðu þegar þær stigu (flestar) í fyrsta skipti á stóra sviðið í fyrra.

Þar reyndu stelpurnar sig gegn öðru toppliði, Frakklandi, þar sem íslenska liðið mætti hreinlega ekki til leiks og var lent 7-0 undir snemma. Þeim óx þó ásmegin þegar leið á stóðust að endingu frönskukúrsinn þrátt fyrir tap.

Mörk Frakka í byrjun þess leiks voru meira og minna úr hröðum upphlaupum og ef marka má landsliðsþjálfarann Arnar Pétursson má búast við Hollendingum sem keyra hraðann upp einnig.

Reynslan af Frakkaleiknum þarf því að telja í dag og ljóst að ekki er í boði að mæta á hælunum til leiks. Stelpunum er tíðrætt um lærdóminn sem þær hafi dregið frá mótinu í Noregi og nú er að sýna það.

Þær unnu sér inn sæti hér, þær eiga heima hér og ég hlakka til að sjá sönnun þess í verki síðar í dag.

Ísland og Holland mætast klukkan 17:00 í dag. Leiknum verður lýst beint á Vísi.


Tengdar fréttir

Ekki eins „starstruck“ og í fyrra

Jóhanna Margrét Sigurðardóttir, leikmaður Kristianstad í Svíþjóð, er mætt á sitt annað stórmót með landsliðinu eftir að hafa farið á HM í Noregi og Danmörku í fyrra. Hún er ásamt stórum hluta liðsins, reynslunni ríkari fyrir komandi átök á EM í Innsbruck.

Eyddi morgninum hjá tannlækni eftir slys

Landsliðskonan Steinunn Björnsdóttir er mætt á sitt fyrsta stórmót í handbolta en Ísland mætir Hollandi í fyrsta leik á morgun. Frumraunin var hins vegar í hættu um tíma, af óvenjulegri ástæðu.

Skrýtið en venst

Finna má eftirvæntingu í íslenska landsliðshópnum sem hefur keppni á EM kvenna í handbolta á föstudaginn kemur. Liðið hefur komið sér vel fyrir í Ólympíubænum Innsbruck þar sem herlegheitin fara fram.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×