NBA
288 289 290 291 292 293 294 295 296 … 326 ›
Phoenix - San Antonio í beinni í nótt Annar leikur Phoenix Suns og San Antonio Spurs í úrslitakeppni NBA verður sýndur beint á NBA TV sjónvarpsstöðinni klukkan hálf þrjú í nótt. Hér fyrir neðan má sjá hvaða leikir verða sýndir á stöðinni og rásum Sýnar næstu daga. Körfubolti 8.5.2007 17:48
Sér ekkert athugavert við lyfjanotkun íþróttamanna Mark Cuban, eigandi NBA liðs Dallas Mavericks, er ekki vanur að liggja á skoðunum sínum. Hann segist ekki sjá neitt athugavert við að íþróttamenn noti lyf til að bæta frammistöðu sína á vellinum. Körfubolti 8.5.2007 17:28
Nelson bannað að drekka bjór Don Nelson, þjálfari Golden State Warriors, hefur verið beðinn um að hætta að drekka bjór á blaðamannfundum eftir leiki liðsins í úrslitakeppninni í NBA. Nelson opnaði dós af Bud Light og drakk á blaðamannafundum eftir leikina við Dallas og þótti forráðamönnum deildarinnar þetta ekki við hæfi. Körfubolti 8.5.2007 17:20
Utah vann nauman sigur á Golden State Fyrsti leikur Utah og Golden State í undanúrslitum Vesturdeildarinnar í NBA var æsispennandi en svo fór að lokum að heimamenn í Utah höfðu sigur 116-112 á heimavelli sínum. Leikurinn var að hluta til einvígi leikstjórnendanna Deron Williams og Baron Davis og það var hinn ungi Williams sem náði að leiða lið sitt til sigurs í þetta sinn. Körfubolti 8.5.2007 06:01
Detroit lúskraði aftur á Chicago Detroit er komið með 2-0 forystu gegn Chicago Bulls í einvígi liðanna í undanúrslitum Austurdeildarinnar í NBA eftir annan stóran sigur í í nótt 108-87. Varnarleikur Detroit var ógnarsterkur og Chicago sá aldrei til sólar eftir að hafa lent undir 34-18 strax í fyrsta leikhluta. Detroit vann fyrstu tvo leikina á heimavelli sínum en næstu tveir fara fram í Chicago. Körfubolti 8.5.2007 05:41
Van Gundy ætlar ekki að hætta Jeff Van Gundy, þjálfari Houston Rockets í NBA deildinni, segist ekki ætla að hætta að þjálfar eins og fram kom í grein í New York Post um helgina. Hann segist aftur á móti ætla að hugsa sig vel um í sumar og íhuga framhaldið, en hann er með lausa samninga hjá Houston og hefur enn ekki verið boðinn nýr samningur. Lið hans féll úr úrslitakeppninni eftir tap gegn Utah í sjöunda leik um helgina. Körfubolti 7.5.2007 21:11
Detroit - Chicago í beinni í kvöld Annar leikur Detroit Pistons og Chicago Bulls í úrslitakeppni NBA verður sýndur beint á NBA TV sjónvarpsstöðinni klukkan tólf á miðnætti í kvöld. Detroit vann afar sannfærandi sigur í fyrsta leiknum 95-69 og ljóst að gestirnir verða að mæta ákveðnari til leiks í kvöld ef ekki á illa að fara. Í nótt hefst svo einvígi Utah og Golden State í undanúrslitum Vesturdeildarinnar. Körfubolti 7.5.2007 15:20
Blóðugt tap hjá Phoenix í fyrsta leik San Antonio vann mikilvægan útisigur á Phoenix Suns í fyrsta leik liðanna í undanúrslitum Vesturdeildar NBA á sunnudagskvöldið 111-106. Segja má að tap Phoenix hafi verið blóðugt í bókstaflegum skilningi, því liðið naut ekki krafta Steve Nash á lokasprettinum vegna skurðar sem hann fékk á nefið í fjórða leikhlutanum. Körfubolti 7.5.2007 01:58
Cleveland lagði New Jersey Cleveland hefur náð 1-0 forystu í einvígi sínu við New Jersey í undanúrstitum Austurdeildarinnar í NBA eftir nauman sigur í fyrsta leik liðanna í kvöld 81-77. Bæði lið hittu skelfilega í leiknum en það voru fyrst og fremst yfirburðir heimamanna í fráköstunum sem skiluðu sigrinum. Körfubolti 6.5.2007 19:34
Cleveland - New Jersey í beinni núna Fyrsti leikur Cleveland Cavaliers og New Jersey Nets hófst klukkan 17 og er hann sýndur beint á NBA TV sjónvarpsstöðinni á Fjölvarpinu. Klukkan 20:50 verður svo útsending frá fyrsta leik Phoenix og San Antonio á Sýn. Þetta eru fyrstu leikir liðanna í annari umferð úrslitakeppninnar. Körfubolti 6.5.2007 17:16
Van Gundy að hætta hjá Houston? Jeff Van Gundy, þjálfari Houston Rockets í NBA deildinni, ætlar að hætta með liðið og taka sér frí frá þjálfun. Þetta hefur dagblaðið New York Post eftir heimildamanni sínum í dag, en hann segir brottför hans ekki tengjast tapi liðsins á heimavelli fyrir Utah í úrslitakeppninni í nótt. Van Gundy er með lausa samninga hjá félaginu í sumar. Körfubolti 6.5.2007 17:08
Sögulegur sigur hjá Utah - McGrady grét á blaðamannafundi Utah Jazz varð í nótt síðasta liðið til að tryggja sér sæti í annari umferð úrslitakeppninnar í NBA með dramatískum og sögulegum sigri á Houston Rockets í oddaleik í Houston 103-99. Utah varð með sigrinum aðeins 19. liðið í sögu NBA til að vinna leik 7 á útivelli af þeim 97 leikjum þeirrar tegundar sem háðir hafa verið. Körfubolti 6.5.2007 05:38
Detroit tók Chicago í kennslustund Detroit Pistons bauð Chicago Bulls velkomið í aðra umferð úrslitakeppninnar í nótt með stórsigri 95-69 á heimavelli sínum í fyrsta leik liðanna í undanúrslitum Austurdeildarinnar. Chicago skoraði aðeins 28 stig í síðari hálfleiknum og þótti fyrnasterkur varnarleikur Detroit-liðsins minna á þann sem tryggði liðinu meistaratitilinn árið 2004. Körfubolti 6.5.2007 05:29
Detroit - Chicago í beinni í kvöld Fyrsti leikur Detroit Pistons og Chicago Bulls í undanúrslitum Austurdeildarinnar í NBA verður sýndur beint á NBA TV sjónvarpsstöðinni klukkan 23:00 í kvöld. Klukkan 17 á morgun verður fyrsti leikur Cleveland og New Jersey í beinni á stöðinni og klukkan 20:50 verður Sýn með beina útsendingu frá fyrsta leik Phoenix og San Antonio í undanúrslitum Vesturdeildarinnar. Körfubolti 5.5.2007 17:07
New Jersey mætir Cleveland Í nótt varð ljóst hvaða lið mætast í undanúrslitum Austurdeildarinnar í NBA deildinni eftir að New Jersey vann nauman sigur á Toronto 98-97 í sjötta leik liðanna. Richard Jefferson skoraði sigurkörfu Nets á síðustu sekúndum leiksins og stal svo boltanum af Toronto liðinu í síðustu sókn liðsins. New Jersey vann einvígið 4-2. Körfubolti 5.5.2007 03:55
Óvæntustu úrslit í sögu úrslitakeppni NBA Öskubuskulið Golden State Warriors er komið í aðra umferð úrslitakepninnar í NBA deildinni eftir stórsigur á Dallas Maverics í stórkostlegum sjötta leik liðanna í nótt 111-86. Þetta eru almennt talin óvæntustu úrslit í sögu úrslitakeppninnar, en Golden State vann einvígið 4-2. Körfubolti 4.5.2007 05:48
Houston og Utah mætast í oddaleik Einvígi Houston Rockets og Utah Jazz í úrslitakeppni NBA hefur verið æsispennandi og í nótt knúði Utah fram oddaleik í Houston á laugardagskvöldið með 94-82 sigri í Salt Lake City. Staðan er því jöfn 3-3 í einvíginu og hafa allir leikir í seríunni til þessa unnist á heimavelli. Körfubolti 4.5.2007 04:36
Tímabilið undir hjá Dallas í nótt Tveir leikir fara fram í úrslitakeppni NBA deildarinnar í nótt. Houston getur slegið Utah Jazz úr keppni með sigri í Salt Lake City og í sjónvarpsleiknum á NBA TV getur Golden State sent Dallas í sumarfrí með sigri í sjötta leik liðanna í Oakland. Leikurinn verður sýndur beint klukkan hálf þrjú í nótt, en þeir sem treysta sér ekki til að vaka geta séð leikinn á Sýn á föstudagskvöldið. Körfubolti 3.5.2007 20:02
Phoenix komið í aðra umferð Phoenix Suns tryggði sér í nótt sæti í annari umferð úrslitakeppninnar í NBA deildinni með 119-110 sigri á LA Lakers á heimavelli sínum í fimmta leik liðanna. Phoenix var í fluggírnum í gær eins og í öllu einvíginu og reyndist einfaldlega of stór biti fyrir Lakers til að kyngja. Phoenix vann einvígið 4-1 og mætir San Antonio í næstu umferð. Körfubolti 3.5.2007 12:10
Fastir liðir hjá San Antonio - Denver úr leik San Antonio Spurs er komið í aðra umferð úrslitakeppninnar í NBA eftir öruggan 93-78 sigur á Denver Nuggets í fimmta leik liðanna í nótt. Michael Finley var hetja San Antonio í þetta skiptið og setti félagsmet með 8 þriggja stiga körfum úr 9 tilraunum. San Antonio vann einvígið 4-1 og mætir sigurvegaranum úr einvígi Phoenix og LA Lakers. Körfubolti 3.5.2007 03:21
Pat Riley: Við fengum það sem við áttum skilið Pat Riley, þjálfari NBA meistara Miami Heat, segir að allt annar bragur verði á liðinu á næsta tímabili, en það steinlá 4-0 fyrir Chicago í fyrstu umferð úrslitakeppninnar á dögunum. Hann segir að liðið hafi verðskuldað að falla úr keppni en er ekki búinn að gera það upp við sig hvort hann muni þjálfa liðið næsta vetur. Körfubolti 2.5.2007 22:01
Brandon Roy kjörinn nýliði ársins Bakvörðurinn Brandon Roy hjá Portland Trailblazers var í dag kjörinn nýliði ársins í NBA deildinni með gríðarlegum yfirburðum. 127 af 128 nefndarmönnum settu hann í fyrsta sæti í kjörinu, en Andrea Bargnani hjá Toronto varð annar í kjörinu og Rudy Gay hjá Memphis varð þriðji. Körfubolti 2.5.2007 19:41
San Antonio - Denver í beinni á miðnætti Fimmti leikur San Antonio og Denver í úrslitakeppni NBA verður sýndur beint á NBA TV sjónvarpsstöðinni á miðnætti í kvöld. San Antonio getur klárað einvígið með sigri í kvöld og hefur yfir 3-1. Aðra nótt klukkan 2:30 verður svo bein útsending frá sjötta leik Golden State og Dallas, en þar er á ferðinni eitt áhugaverðasta einvígi fyrstu umferðar í sögu deildarinnar. Golden State getur slegið Dallas úr keppni með sigri á heimavelli. Körfubolti 2.5.2007 17:01
Hvítir dómarar harðari við svarta leikmenn Niðurstöður rannsóknar sem birt var á heimasíðu New York Times á þriðjudagskvöldið hafa valdið nokkru fjaðrafoki í NBA deildinni. Í könnuninni, sem var úttekt á dómgæslu á 13 árum fram að 2004, kom í ljós að hvítir dómarar virtust dæma áberandi fleiri villur á svarta leikmenn. Forráðamenn NBA deildarinnar blása á þessar niðurstöður og segja þeir ekki marktækar. Körfubolti 2.5.2007 15:14
Dallas hélt naumlega lífi Dallas náði í nótt að afstýra óvæntustu úrslitum í sögu fyrstu umferðar úrslitakeppni NBA deildarinnar - um að minnsta kosti tvo sólarhringa - þegar liðið vann mjög nauman sigur á Golden State í fimmta leik liðanna í Dallas 118-112. Gestirnir voru með unninn leik í höndunum í lokin, en þá stimplaði Dirk Nowitzki sig loksins inn í einvígið með eftirminnilegum hætti. Körfubolti 2.5.2007 05:14
Toronto minnkaði muninn Toronto minnkaði muninn í 3-2 í einvígi sínu við New Jersey Nets í úrslitakeppni NBA í nótt með 98-96 sigri á heimavelli. Toronto náði strax góðu forskoti í leiknum og stefndi í auðveldan sigur liðsins, en gestirnir voru klaufar að stela ekki sigrinum í blálokin eftir mikla rispu. Körfubolti 2.5.2007 04:57
Tekst Golden State hið ómögulega í kvöld? Þeir sem hafa aðgang að NBA TV sjónvarpsstöðinni geta í kvöld orðið vitni að einhverjum óvæntustu úrslitum í sögu NBA deildarinnar ef Golden State Warriors tekst að leggja Dallas Mavericks að velli í fimmta leik liðanna klukkan hálf tvö. Körfubolti 1.5.2007 18:13
Robert Horry snýr aftur San Antonio hefur náð afgerandi 3-1 forystu í einvígi sínu við Denver í úrslitakeppni NBA eftir 96-89 útisigur á Denver í fjórða leik liðanna í nótt. Það var gamli refurinn Robert Horry sem tryggði sigur San Antonio með þriggja stiga körfu þegar 30 sekúndur voru eftir af leiknum. Denver þurfti nauðsynlega á sigri að halda en tapaði öðrum heimaleik sínum í röð eftir að gestirnir luku leiknum með 17-6 rispu. Körfubolti 1.5.2007 05:19
Houston náði forystu á ný gegn Utah Houston er nú komið í vænlega stöðu í einvígi sínu gegn Utah í úrslitakeppni Vesturdeildarinnar í NBA. Houston vann í nótt 96-92 sigur í fimmta leik liðanna á heimavelli sínum og getur nú unnið fyrsta einvígi sitt í úrslitakeppni síðan árið 1997 með sigri í Utah á fimmtudagskvöldið. Leikurinn var sýndur beint á NBA TV og var í járnum frá fyrstu mínútu. Körfubolti 1.5.2007 03:53
Cleveland sópaði Washington Cleveland Cavaliers er komið í aðra umferð úrslitakeppni NBA eftir sigur á Washington í fjórða leik liðanna í nótt 97-90. Cleveland vann seríuna því 4-0 og var þetta í fyrsta skipti í sögu félagsins sem liðinu tekst það, en lið Washington átti aldrei möguleika í einvíginu með tvö stjörnuleikmenn á meiðslalistanum. Körfubolti 1.5.2007 03:39