NBA
291 292 293 294 295 296 297 298 299 … 326 ›
Dallas færist nær deildarmeistaratitlinum Dallas þarf nú aðeins einn sigur til viðbótar til að tryggja sér sigur í deildarkeppni NBA en eftir að hafa sigrað Portland í nótt, 86-74. Dallas hefur nú unnið 63 leiki en tapað 13 það sem af er leiktíð. Vince Carter hjá New Jersey og Eddy Curry hjá New York voru menn næturinnar í NBA-deildinni. Körfubolti 8.4.2007 12:47
Toronto efstir í Atlantshafsriðlinum Toronto Raptors tryggði sér í nótt sigur í Atlantshafsriðli NBA-deildarinnar í körfuknattleik með því að sigra Philadelphia, 94-85. Denver kom í veg fyrir að Dallas gæti unnið 70 leiki á tímabilinu með því að leggja lærisveina Avery Johnson af velli í nótt og Kobe Bryant var í miklu stuði gegn Seattle. Körfubolti 7.4.2007 10:39
Miami unnu Cleveland og San Antonio unnu Phoenix Tveir risaslagir voru í NBA-deildinni í nótt. Meistarar Miami Heat mættu LeBron James og félögum í Cleveland og höfðu sigur, 94-90 í framlengdum leik. Miami léku án Dwayne Wade og munar heldur betur um minna. Körfubolti 6.4.2007 11:05
Arenas missir af úrslitakeppninni Nú hefur verið staðfest að Gilbert Arenas, leikmaður Washingto Wizards, muni missa af úrslitakeppninni vegna hnémeiðsla sem hann varð fyrir í nótt. Arenas verður frá keppni í 2-3 mánuði, en aðeins nokkrir dagar eru síðan annar stjörnuleikmaður, Caron Butler, meiddist hjá liðinu og verður tæplega með í úrslitakeppninni. Körfubolti 5.4.2007 17:23
Gilbert Arenas meiddur Ellefu leikir fóru fram í NBA deildinni í nótt. Washington tapaði annan daginn í röð fyrir Charlotte og varð fyrir enn einu áfallinu þegar Gilbert Arenas tognaði á hné og verður hann líklega frá keppni í nokkrar vikur vegna þessa. Þá vann Chicago þýðingarmikinn sigur á Detroit á útivelli. Körfubolti 5.4.2007 13:21
Dallas lagði Sacramento án Dirk Nowitzki Níu leikir fóru fram í NBA deildinni í nótt, en nú er farið að styttast í að úrslitakeppnin hefjist og línur farnar að skýrast með uppröðun liða í Austur- og Vesturdeildinni. Körfubolti 4.4.2007 11:34
Memphis - Phoenix í beinni á miðnætti Leikur Memphis Grizzlies og Phoenix Suns verður sýndur beint á NBA TV sjónvarpsstöðinni á miðnætti í kvöld. Hér er á ferðinni leikur tveggja sókndjarfra liða sem þó eru á mjög ólíkum stað í deildinni. Phoenix hefur unnið 55 leiki og tapað 18 en Memphis er í neðsta sæti Vesturdeildarinnar með aðeins 19 sigra og 56 töp. Körfubolti 3.4.2007 20:16
Jackson flaug inn í heiðurshöllina Þjálfarinn Phil Jackson hjá LA Lakers var í dag tekinn inn í heiðurshöllina í NBA deildinni. Hann vann sex meistaratitla með Chicago Bulls á tíunda áratug síðustu aldar og aðra þrjá með liði LA Lakers í byrjun aldarinnar. Aldrei var spurning hvort Jackson færi inn í heiðurshöllina heldur aðeins hvenær og hann hefur nú fengið þar sæti á fyrsta árinu sem hann kom til greina. Körfubolti 2.4.2007 22:20
Sagði Steve Nash hafa verið handtekinn fyrir ölvunarakstur Mike D´Antoni, þjálfari Phoenix, var mjög sáttur með sigurinn á Dallas í NBA deildinni í gær. Dagurinn endaði því á mun betri nótum en hann byrjaði, því eigandi liðsins lét hann hlaupa apríl. Körfubolti 2.4.2007 12:43
Phoenix skellti Dallas Tólf leikir fóru fram í NBA deildinni í körfubolta í nótt og þar af voru þrír stórleikir á dagskrá. Phoenix jafnaði einvígið við Dallas í deildarkeppninni með 126-104 sigri á heimavelli. Utah vann afar mikilvægan útisigur á Houston og Detroit lagði Miami í uppgjöri risanna í Austurdeildinni. Körfubolti 2.4.2007 11:59
Risaslagur í NBA í beinni á Sýn í kvöld Í kvöld klukkan 18:50 verður einn af leikjum ársins í deildarkeppninni í NBA í beinni á Sýn. Hér er um að ræða fjórðu og síðustu viðureign Phoenix Suns og Dallas Mavericks í deildarkeppninni, en þetta eru tvö af allra bestu liðum deildarinnar. Síðasti leikur liðanna fyrir hálfum mánuði var að flestra mati besti leikurinn í NBA í vetur og því má eiga von á frábærum slag á besta tíma í kvöld. Körfubolti 1.4.2007 14:10
Enn skorar Kobe yfir 50 stig Enn og aftur skoraði Kobe Bryant yfir 50 stig fyrir Los Angeles Lakers í NBA körfuboltanum í nótt. Það dugði þó ekki til sigurs í framlengdum leik gegn Houston. Körfubolti 31.3.2007 11:11
Bulls tryggðu sér sæti í úrslitakeppninni Chicago Bulls tryggðu sér í nótt sæti í úrslitakeppni Austurdeildarinnar í NBA-deildarkeppninni í körfuknattleik með naumum sigri á Detroit, 83-81. Kirk Hinrich, leikmaður Bulls, tryggði liðinu sínu sigur með því að hitta úr tveimur vítaskotum af þremur þegar innan við þrjár sekúndur voru eftir af leiknum. Körfubolti 30.3.2007 09:40
Longoria stolt af rappi bónda síns (Myndband) Leikkonan Eva Longoria segist mjög stolt af frammistöðu bónda síns á nýútkominni rappplötu hans Balance-toi ("Hreyfðu þig"). Eiginmaður hennar er franski leikstjórnandinn Tony Parker hjá San Antonio Spurs. Aðþrengda eiginkonan leikur í myndbandi sem gefið hefur verið út við lag af plötunni. Smelltu á hlekk í fréttinni til að sjá og heyra afraksturinn. Körfubolti 29.3.2007 20:04
Sextíu sigrar hjá Dallas Dallas vann í nótt 60. leik sinn í NBA deildinni þegar liðið skellti Milwaukee 105-103 á heimavelli sínum. Utah Jazz tryggði sér fyrsta deildarmeistaratitil félagsins síðan um aldarmótin með sigri á Minnesota. Körfubolti 29.3.2007 11:42
Lakers tapaði fyrir neðsta liðinu Fjórir leikir voru í NBA deildinni í körfubolta í nótt. Dallas vann 21. leikinn í röð gegn New Orleans. Cleveland tryggði sér sæti í úrslitakeppninni og LA Lakers tapaði á heimavelli fyrir neðsta liði deildarinnar. Körfubolti 28.3.2007 11:49
New Orleans - Dallas í beinni á miðnætti Leikur New Orleans Hornets og Dallas Mavericks verður sýndur beint á NBA TV sjónvarpsstöðinni klukkan tólf á miðnætti í kvöld. Dallas er í efsta sæti deildarinnar og hefur árangur liðsins í deildarkeppninni í vetur verið einstakur. Liðið getur í kvöld unnið sjötta útileikinn í röð á keppnisferðalagi sínu og leitast einnig við að vinna 21. leikinn í röð á Hornets. Dallas tapaði síðast fyrir Hornets árið 1999 þegar liðið var í Charlotte. Körfubolti 27.3.2007 16:54
Boozer fór á kostum í sigri Utah Carlos Boozer fór á kostum í liði Utah í nótt þegar liðið lagði Washington í sjónvarpsleiknum á NBA TV. Shaquille O´Neal varð 12. stigahæsti leikmaður NBA frá upphafi þegar hann skoraði 22 stig í sigri Miami á Atlanta. Miami er nú komið í toppsætið í sínum riðli í Austurdeildinni. Körfubolti 27.3.2007 04:53
Wallace tryggði framlengingu með skoti frá miðju Detroit Pistons vann í nótt ævintýralegan sigur á Denver Nuggets á heimavelli sínum 113-109, þrátt fyrir að vera án tveggja byrjunarliðsmanna sinna sem voru með flensu. Rasheed Wallace tryggði heimamönnum framlengingu með skoti frá eigin vallarhelmingi um leið og flautan gall og var maðurinn á bak við sigur liðsins í aukahlutanum. Körfubolti 27.3.2007 04:28
Artest að gefast upp? Ron Artest, hinn skrautlegri framherji Sacramento í NBA-deildinni, er sagður vera að íhuga það alvarlega að leggja skóna á hilluna að loknu núverandi tímabili. Ástæðan, að því er fjölmiðlar í Bandaríkjunum halda fram, er sú að hann vill eyða meiri tíma með fjölskyldu sinni. Körfubolti 26.3.2007 14:29
Tímabilið búið hjá Ray Allen Ray Allen mun ekki spila meira með liði sínu Seattle Supersonics í NBA-deildinni á tímabilinu en leikmaðurinn hefur ákveðið að bíða ekki lengur með að gangast undir óumflýjanlega aðgerð á ökkla. Allen hefur spilað sárþjáður í síðustu leikjum liðsins. Körfubolti 26.3.2007 14:18
Kobe skoraði ekki yfir 50 stig Kobe Bryant mistókst að skora yfir 50 stig fjórða leikinn í röð, en náði engu að síður að setja niður 43 stig þegar LA Lakers bar sigurorð af Golden State, 115-113, í NBA-deildinni í nótt. Alls fóru níu leikir fram í deildinni í nótt. Körfubolti 26.3.2007 10:06
Miami missti niður 19 stiga forystu Philadelphia sýndi mikinn karakter í leik liðsins gegn Miami í nótt með því að vinna upp 19 stiga forskot meistaranna í síðari hálfleik og uppskera að lokum öruggan sigur, 93-85. Þetta var 10 sigur Philadelphia í síðustu 14 leikjum, en jafnframt þriðja tap Miami í síðustu fjórum leikjum. Körfubolti 25.3.2007 12:01
Kobe með yfir 50 stig fjórða leikinn í röð Kobe Bryant hjá LA Lakers hélt áfram að rita nafn sitt í sögubækur NBA-deildarinnar þegar hann skoraði yfir 50 stig fjórða leikinn í röð í nótt. Þá lagði Lakers lið NO/Oklahoma af velli, 111-105, og skoraði Kobe 50 stig. Einn annar leikmaður í sögunni hefur náð viðlíka árangri; goðsögnin Wilt Chamberlain. Körfubolti 24.3.2007 11:06
Yfir 50 stig þrjá leiki í röð Kobe Bryant skoraði 60 stig í gærkvöldi þegar Los Angeles Lakers sigraði Memphis 121-119. Kobe komst þar með í metabækurnar því þetta var þriðji leikurinn í röð sem hann skorar yfir 50 stig. Hann er aðeins fjórði körfuboltakappinn sem skorar meira en 50 stig þrjá leiki í röð. Hinir þrír eru Wilt Chamberlain, Elgin Baylor og Michael Jordan. Körfubolti 23.3.2007 08:51
Houston - Detroit í beinni í nótt Viðureign Houston Rockets og Detroit Pistons verður sýnd beint á NBA TV sjónvarpsstöðinni á Fjölvarpinu í kvöld klukkan hálf eitt. Þetta er kjörin upphitun fyrir leik San Antonio og Detroit sem sýndur verður beint á Sýn á miðnætti annað kvöld. Körfubolti 22.3.2007 19:22
Dapur leiktíð hjá Milwaukee Lið Milwaukee Bucks hefur valdið miklum vonbrigðum í NBA deildinni í vetur. Meiðsli hafa þar sett stórt strik í reikninginn og í gær varð ljóst að tveir af lykilmönnum liðsins munu ekki spila meira með liðinu það sem eftir er leiktíðar. Körfubolti 22.3.2007 14:34
Enn vinnur Dallas Dallas sigraði Cleveland 98-90 í Cleveland í gærkvöldi í NBA körfuboltanum. Dirk Nowitzki var stigahæstur hjá Dallas með 23 stig en hann hitti illa í leiknum. Jason Terry skoraði 21 stig í 56. sigurleik Dallas. LeBron James var langstigahæstur hjá Cleveland með 31 stig. Körfubolti 22.3.2007 08:31
Toronto - Orlando í beinni í kvöld Leikur Toronto Raptors og Orlando Magic í NBA deildinni verður sýndur beint á NBA TV sjónvarpsstöðinni á Fjölvarpinu klukkan 23:00 í kvöld. Hér er á ferðinni athyglisverður slagur í Austurdeildinni þar sem tveir af bestu stóru mönnunum í deildinni kljást - þeir Chris Bosh og Dwight Howard. Körfubolti 21.3.2007 20:20
Bargnani fékk botnlangakast Ítalski framherjinn Andrea Bargnani hjá Toronto Raptors fékk botnlangakast í nótt og var fluttur á sjúkrahús. Botnlanginn var tekinn úr honum og er hann nú á batavegi. Bargnani er 21 árs gamall og var tekinn númer eitt í nýliðavalinu í NBA síðasta sumar. Hann er almennt talinn eiga góða möguleika á að verða valinn nýliði ársins og skorar 11 stig og hirðir 4 fráköst. Ekki er vitað hvenær leikmaðurinn getur byrjað að æfa á ný. Körfubolti 21.3.2007 16:35