Undirrituðu samning um nýtt hús Heilbrigðisvísindasviðs
Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir háskólaráðherra, Jón Atli Benediktsson rektor Háskóla Íslands og fulltrúi ÞG verktaka undirrituðu í dag samning um uppsteypu og frágang nýs húss Heilbrigðisvísindasviðs háskólans. Það mun rísa á Landspítalalóðinni austan við Læknagarð.