Tíska og hönnun

Tíska og hönnun

Allt það nýjasta úr heimi tískunnar og fréttir af sviði hönnunar.

Fréttir í tímaröð

Fréttamynd

Verður að fara inn í nýjan ára­tug með stæl

„Þetta leggst furðuvel í mig. Ég var búin að vera smá stressuð að ganga inn í þennan nýja áratug en nú þegar það er komið að honum þá er ég bara spennt fyrir komandi tímum,“ segir hlaðvarpsstýran Birta Líf sem fagnaði þrjátíu ára afmæli sínu um helgina með pompi og prakt. Blaðamaður ræddi við hana um tímamótin og gleðina.

Lífið
Fréttamynd

Best klæddu pör sögunnar

Tískan er margbreytilegt fyrirbæri þar sem hver og einn reynir að fylgja eigin takti en flottheitin eiga það til að aukast til muna þegar pör leika sér að því að klæða sig skemmtilega upp saman. Hér verður farið yfir nokkur slík pör í sögulegu samhengi.

Tíska og hönnun
Fréttamynd

Kveður Emily fyrir Audrey Hepburn

Leikkonan Lily Collins, sem hefur gert garðinn frægan sem bandaríska Parísarpæjan Emily í Netflix þáttunum Emily in Paris, er komin með nýtt hlutverk. 

Lífið
Fréttamynd

Dorrit á­nægð með demantsklædda Kylie

Dorrit Moussaieff, fyrrverandi forsetafrú, fagnar því að athafnakonan Kylie Jenner og leikkonan Wunmi Mosaku skuli hafa klæðst Moussaieff-skartgripum á BAFTA-hátíðinni um helgina. Skartgripahönnun ættarinnar teygir sig margar aldir aftur í tímann.

Tíska og hönnun
Fréttamynd

Litir víkja fyrir nú­tímanum víðast hvar

Litir í umhverfi okkar eru á hverfanda hveli að mati umhverfissálfræðings sem segir lífið einfaldlega verða leiðinlegra þegar allt er grátt, svart eða hvítt. Byggingar og vörumerki nútímans fari gegn eðli og þörfum mannfólks.

Innlent
Fréttamynd

„Rétt „outfit“ getur bjargað deginum“

„Ég tek alltaf eftir því að ég er í miklu betra skapi þegar ég er ánægð með lúkkið mitt. Rétt „outfit“ getur bjargað deginum,“ segir hin 25 ára gamla Rósa Marí Sigmarsdóttir, tískutöffari og nemandi í fatahönnun við Listaháskóla Íslands.

Lífið
Fréttamynd

Fjölga verslunum í Danaveldinu

66°Norður opnaði nýja verslun í Kaupmannahöfn um síðustu helgi. Um er að ræða svokallað archive-verslun þar sem hægt er að festa kaup flíkum frá fyrri vörulínum.

Neytendur
Fréttamynd

Gullin regla að sýna ekki allt hold í einu

„Þú sérð mig ekki málaða og uppstrílaða á fótboltavellinum um helgar,“ segir hin 47 ára gamla ofurpæja María Gréta Einarsdóttir, framkvæmdastjóri NTC. Maya, eins og hún er gjarnan kölluð, lifir og hrærist í heimi tískunnar og var sömuleiðis að byrja með tískuhlaðvarpið Stílbrot. Hún ræddi við blaðamann um persónulegan stíl, fataskápinn og fleira í þeim dúr.

Tíska og hönnun
Fréttamynd

Tútturnar úti á Grammy-hátíðinni

Stórstjörnur tónlistarheimsins komu saman í Los Angeles í gær í tilefni af Grammy verðlaununum. Samhliða þessari tónlistarverðlaunahátíð er kvöldið líka ákveðin tískusýning þar sem fólk fer gjarnan frumlegar og skemmtilegar leiðir í klæðaburði frá heitustu tískuhúsum heimsins. 

Tíska og hönnun
Fréttamynd

„Með rauf á rassi ef mér verður brátt í brók“

„Bara við það eitt að skella á sig fallegu bindi ferðu úr því að vera Doddi á lagernum í erindreki í Buckinghamhöll,“ segir hinn bráðfyndni Starkaður Pétursson. Starkaður er 28 ára gamall leikari alinn upp í Hafnarfirði og hefur á sinn einstaka máta gaman að tískunni.

Tíska og hönnun
Fréttamynd

Fermingardagurinn er stór dagur

Fermingardagurinn er stór dagur í lífi ungmenna og fötin skipta máli. Við ræddum fermingartískuna við Grím Garðarsson, annan eiganda Bestseller á Íslandi og Hilmar Eyþór Ásgeirsson, verslunarstjóra Jack & Jones í Kringlunni.

Lífið samstarf
Fréttamynd

Klæðist því sem eykur sjálfs­traustið

„Mér getur fundist það mjög erfitt þegar „outfittið“ verður ekki eins og ég sá fyrir mér,“ segir hin 32 ára gamla Hildur Sif Hauksdóttir, markaðssérfræðingur hjá Arion banka. Tískan er stór hluti af hennar lífi og deilir hún ýmsum ofur smart skvísulúkkum með sínum rúmlega 8000 fylgjendum á Instagram.

Tíska og hönnun
Fréttamynd

Robyn í hönnun Sólar Hansdóttur

Sænska súperstjarnan Robyn er með rosalega endurkomu inn í tónlistarheiminn um þessar mundir með splunkunýrri plötu sem nýtur mikilla vinsælda. Robyn er mikill tískuspegúlant og hefur greinilega frábæran smekk en hún rokkaði bol frá íslenska hönnuðinum Sól Hansdóttur á dögunum.

Tíska og hönnun