Reka þjálfarann þrátt fyrir besta árangurinn í 25 ár Tom Thibodeau var í dag látinn taka pokann sinn sem þjálfari New York Knicks í NBA deildinni í körfubolta. Körfubolti 3.6.2025 19:36
Lögmál leiksins hitar upp fyrir úrslitaeinvígið: „Verður mjög líkamlega erfið sería“ Körfuboltasérfræðingarnir í Lögmáli leiksins settust í sófann í gærkvöldi og fóru yfir úrslitaeinvígið sem framundan er milli Oklahoma City Thunder og Indiana Pacers. Körfubolti 3.6.2025 09:25
Dagskráin í dag: Litrík umferð gerð upp í Stúkunni Gummi Ben og félagar fara yfir litríka tíundu umferð Bestu deildar karla í fótbolta í kvöld, í beinni útsendingu í Stúkunni á Stöð 2 Sport. Íslenski boltinn 2.6.2025 06:01
Næstyngsta liðið fyrst til að rústa fjórum leikjum á leið í úrslitaeinvígið Körfubolti 29.5.2025 11:47
Átti einstakan leik og biðinni frá aldamótum að ljúka Það þarf ansi margt að ganga á til þess að það verði ekki Indiana Pacers og Oklahoma City Thunder sem spila um NBA-meistaratitilinn í ár. Bæði lið eru nú komin í 3-1 í einvígum sínum, í úrslitum austur- og vesturdeildar. Körfubolti 28. maí 2025 07:33
Náfrændurnir bestir en Thunder þarf bara einn sigur enn Oklahoma City Thunder hafði betur í spennuleik gegn Minnesota Timberwolves í nótt, 128-126, og er nú 3-1 yfir í einvígi liðanna í úrslitum vesturdeildar NBA-deildarinnar í körfubolta. Náfrændur voru stigahæstir í liðunum. Körfubolti 27. maí 2025 10:32
„Frábær leikmaður en Jokic átti að vinna þessi verðlaun“ Shai Gilgeous-Alexander var valinn verðmætasti leikmaður NBA deildarinnar á leiktíðinni. Sérfræðingarnir í Lögmáli leiksins ræddu valið og voru ekki á eitt sammála. Körfubolti 26. maí 2025 16:33
„Ódrepandi“ Knicks í sögubækurnar New York Knicks hafa gert það að ákveðinni listgrein í úrslitakeppni NBA-deildarinnar í ár að vinna upp stórt forskot mótherjanna. Það gerði liðið einnig í gærkvöld, í mögnuðum 106-100 sigri á Indiana Pacers. Körfubolti 26. maí 2025 07:32
Úlfarnir bitu frá sér og unnu 42 stiga sigur Eftir að hafa tapað fyrstu tveimur leikjunum gegn Oklahoma City Thunder í úrslitum Vesturdeildar NBA vann Minnesota Timberwolves yfirburðasigur í þriðja leik liðanna, 143-101. Körfubolti 25. maí 2025 09:32
Elsti leikmaðurinn til að fá MVP atkvæði LeBron James hefur skrifað sig í sögubækurnar með allskonar mismerkileg met í gegnum tíðina og bætti einu slíku við á dögunum þegar hann varð elsti leikmaðurinn í sögunni NBA deildarinnar til að fá atkvæði í kjörinu um mikilvægasta leikmann tímabilsins. Körfubolti 25. maí 2025 08:03
Siakam sjóðheitur þegar Pacers komst í 2-0 Pascal Siakam skoraði 39 stig þegar Indiana Pacers sigraði New York Knicks, 109-114, í öðrum leik liðanna í úrslitum Austurdeildar NBA í nótt. Pacers leiðir einvígið, 2-0, og næstu tveir leikir fara fram á heimavelli liðsins. Körfubolti 24. maí 2025 10:00
„Sannleikurinn“ Edwards þarf að skjóta sópinn úr höndum OKC Anthony Edwards, stórstjarna Minnesota Timberwolves í NBA-deildinni í körfubolta, var vissulega stigahæstur í síðasta leik liðsins en það verður þó ekki sagt að hann hafi skotið boltanum vel. Hann þarf að lyfta leik sínum á næsta getustig og þá mögulega eiga Úlfarnir möguleika gegn ógnarsterku liði Oklahoma City Thunder. Körfubolti 24. maí 2025 07:02
Blóðgaði dómara Lu Dort, leikmaður Oklahoma City Thunder, er mikill baráttujaxl og leggur sig alltaf allan fram. Í leiknum gegn Minnesota Timberwolves í úrslitum Vesturdeildarinnar í NBA í nótt meiddi hann óvart einn þriggja dómaranna. Körfubolti 23. maí 2025 12:30
Tók við MVP-styttunni og skoraði svo 38 stig Oklahoma City Thunder er komið í 2-0 í einvíginu við Minnesota Timberwolves í úrslitum Vesturdeildar NBA eftir sigur í öðrum leik liðanna í nótt, 118-103. Körfubolti 23. maí 2025 09:30
Voru með 0,2 prósent sigurlíkur þegar þrjár mínútur voru eftir en unnu samt Það blés ekki byrlega fyrir Indiana Pacers þegar skammt var til leiksloka gegn New York Knicks í fyrsta leik liðanna í úrslitum Austurdeildar NBA í nótt. En Pacers sneri laglega á tölfræðina og vann leikinn. Körfubolti 22. maí 2025 11:32
Lygilegur endurkomusigur Indiana í MSG Þrátt fyrir að vera níu stigum undir þegar innan við mínúta var eftir af leiknum vann Indiana Pacers New York Knicks, 135-138, í fyrsta leik liðanna í úrslitum Austurdeildar NBA í nótt. Körfubolti 22. maí 2025 09:32
Valinn verðmætastur eftir besta tímabil í sögu félagsins Shai Gilgeous-Alexander var valinn verðmætasti leikmaður NBA í gærkvöldi, eftir að hafa skorað mest allra leikmanna að meðaltali og farið fyrir liði Oklahoma City Thunder á besta tímabili í sögu félagsins. Shai fékk 71 af 100 atkvæðum en Nikola Jokic varð annar með 29 atkvæði. Körfubolti 22. maí 2025 07:01
Þruman skellti í lás og tók forystuna Oklahoma City Thunder vann öruggan sigur á Minnesota Timberwolves, 114-88, í fyrsta leik liðanna í úrslitum Vesturdeildar NBA í nótt. Körfubolti 21. maí 2025 08:30
Lögmálið: Er NBA að svindla í lottóinu? Strákarnir í Lögmáli leiksins hafa sínar efasemdir um að rétt sé staðið að málum í lottóinu fyrir nýliðavalið. Körfubolti 19. maí 2025 16:32
Stjörnurnar fögnuðu og hátíð á götum New York eftir sigur á meisturunum New York Knicks eru komnir í úrslit austurdeildar NBA-deildarinnar í körfubolta í fyrsta sinn í 25 ár, með því að slá út sjálfa meistara Boston Celtics. Sigurdans var stiginn á götum New York borgar í nótt og stjörnurnar fögnuðu ákaft í Madison Square Garden. Körfubolti 17. maí 2025 09:37
Harkaði af sér veikindi og Nuggets tryggðu oddaleik Jamal Murray, leikstjórnandi Denver Nuggets, spilaði þrátt fyrir veikindi og hjálpaði liðinu að tryggja oddaleik gegn Oklahoma City Thunder í undanúrslitum vesturdeildar NBA, með 119-107 sigri í nótt. Körfubolti 16. maí 2025 08:01
Úlfarnir í úrslit vestursins Minnesota Timberwolves tryggðu sér sæti í úrslitum vesturdeildar NBA annað árið í röð, með öruggum sigri í fimm leikja seríu gegn Golden State Warriors, 121-110 sigri í útsláttarleiknum í nótt. Boston Celtics héldu sér á lífi með sigri gegn New York Knicks. Körfubolti 15. maí 2025 08:02
Vonast til að Giannis standist freistinguna og klári ferilinn hjá Milwaukee Gamla körfuboltagoðið Charles Barkley vill að Giannis Antetokounmpo haldi kyrru fyrir hjá Milwaukee Bucks og klári ferilinn hjá félaginu í stað þess að eltast við meistaratitla annars staðar. Körfubolti 14. maí 2025 15:45
Slógu toppliðið út og komust í austur úrslitin annað árið í röð Indiana Pacers unnu einvígið gegn toppliði Cleveland Cavaliers í aðeins fimm leikjum og komust þar með í úrslit austurdeildar NBA annað árið í röð. Slakasta deildarkeppnislið sögunnar til að afreka það. Körfubolti 14. maí 2025 08:00
Tatum með slitna hásin Jayson Tatum, skærasta stjarna ríkjandi meistara í Boston Celtics, verður ekki meira með á þessari leiktíð og ólíklegt er að hann spili mikið á næstu leiktíð. Hann þarf að fara í aðgerð þar sem hann er með slitna hásin. Körfubolti 13. maí 2025 21:10