Forða erlendum ríkisborgurum frá Líbanon
Tugir þúsunda hafa yfirgefið Líbanon í dag, einkum erlendir ríkisborgarar. Nokkur Evrópuríki, þar á meðal Grikkland, Kýpur, Þýskaland og Spánn skipulögðu sérstakar ferðir til að flytja ríkisborgara sína frá landinu.