Aldrei hafa jafn margir greinst með kórónuveiruna á einum sólarhring í Frakklandi
Aldrei hafa jafn margir greinst með kórónuveiruna á einum sólarhring í Frakklandi og í gær eða yfir sextíu þúsund og létust yfir átta hundruð manns. Vika er síðan gripið var til hertra aðgerða í Frakklandi til að reyna að hefta frekari útbreiðslu. Ekki er leyfilegt að yfirgefa heimili sitt nema til þess að fara í vinnu, til þess að kaupa nauðsynjavörur eða sækja sér heilbrigðisþjónustu.