Lyfjatengd andlát tvöfalt fleiri en fyrir áratug
Lyfjatengd andlát á síðasta ári voru tvöfalt fleiri en fyrir áratug og í um fjórðungi andláta var um vísvitandi sjálfseitrun að ræða. Framkvæmdastjóri hjá SÁÁ segir mikilvægt að stjórnvöld bregðist af alvöru við vandanum. Heilbrigðiskerfið eigi ekki að þurfa að berjast um bitlinga.