Meira um að ökumenn séu undir áhrifum í umferðinni í jólamánuðinum

Átak gegn ölvunar- og fíkniefnaakstri er hafið hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu og mun það standa yfir í desembermánuði. Lögreglan stöðvaði ökumenn við Hringbraut í gærkvöldi og kannaði ástand þeirra. Ráðist hefur verið í sams konar átak á liðnum árum enda er oft meira um að ökumenn séu undir áhrifum í umferðinni í jólamánuðinum.

24
00:52

Vinsælt í flokknum Fréttir