Gregg Ryder vill gera stuðningsfólk KR stolt af liðinu: „Í mínum augum er þetta stærsti klúbburinn á Íslandi“
Gregg Ryder sagðist ekki hafa reiknað með að snúa aftur til Íslands á næstunni en þegar KR hringdi í hann stóðst hann ekki mátið. Hann vill koma KR á þann stað sem það á skilið að vera og vill gera stuðningsfólk liðsins stolt.