Kauphöllin
31 32 33 34 35 36 37 38 39 … 79 ›
Ný flokkun hjá FTSE skilar fjölbreyttari flóru og ýtir undir skráningar „Það hefur sárvantað fjölbreytni í fjárfestaflóruna. Við höfum náð árangri þegar kemur að innlendum einstaklingum en erlenda innflæðið hefur ekki verið eins mikið og maður hefði viljað. Með breiðari flóru styrkist verðmyndun og við fáum betri markað,“ segir Magnús Harðarson, forstjóri Kauphallarinnar. Innherji 5.4.2022 14:01
Íslensk félög í sigti margfalt stærri fjárfesta eftir nýja flokkun hjá FTSE Flokkun Íslands sem nýmarkaðsríki hjá FTSE Russell laðar tugi milljarða króna af erlendu fjármagni að íslenska hlutabréfamarkaðinum og eykur sýnileika markaðarins á erlendri grundu. Tímasetningin er hagstæð í ljósi þess að innflæði kemur á sama tíma og innlendir fjárfestar beina fjármagni, sem þeir hafa fengið útgreitt í formi arðs á síðustu vikum eða tekið frá fyrir hlutafjárútboð Íslandsbanka, aftur inn á markaðinn. Þetta segja viðmælendur Innherja á fjármálamarkaði. Innherji 5.4.2022 07:00
Lífeyrissjóðir minnka enn við sig í Skel en sjóðir Stefnis kaupa fyrir 700 milljónir Íslensku lífeyrissjóðirnir halda áfram að losa um stóran hluta bréfa sinna í Skel fjárfestingafélagi, sem áður hét Skeljungur, en Gildi og Lífsverk seldu samanlagt um þriggja prósenta eignarhlut í fyrirtækinu í síðasta mánuði. Á sama tíma komu tveir hlutabréfasjóðir í stýringu Stefnis nýir inn í hlutahafahóp Skel með kaupum á tæplega 2,2 prósenta hlut sem má ætla að þeir hafi greitt tæplega 700 milljónir fyrir. Innherji 4.4.2022 18:21
SKEL, Stálskip og BYGG meðal stórra fjárfesta í útboði Íslandsbanka Í hópi þeirra 140 einkafjárfesta sem tóku þátt í útboði ríkissjóðs á stórum hlut í Íslandsbanka og keyptu hvað mest, eða fyrir á bilinu um 200 til 500 milljónir hvor um sig, voru meðal annars Ólafur D. Torfason, aðaleigandi Íslandshótela, Byggingarfélag Gylfa og Gunnars (BYGG), fjárfestingafélagið Stálskip, útgerðarfélagið Jakob Valgeir, Hannes Hilmarsson, stjórnarformaður Air Atlanta, og eignarhaldsfélagið Kadúseus sem er í meirihlutaeigu Sveins Valfells. Innherji 4.4.2022 06:00
Hagnaður Íslandssjóða meira en tvöfaldaðist og nam yfir einum milljarði Sjóðastýringarfyrirtækið Íslandssjóðir skilaði hagnaði upp á 1.028 milljónir króna á árinu 2021 og jókst hann um 113 prósent á milli ára. Samtals námu eignir í stýringu Íslandssjóða, sem er í eigu Íslandsbanka, 410 milljörðum króna í árslok 2021 og hækkuðu þær um rúmlega 60 milljarða í fyrra. Innherji 3.4.2022 13:33
Ísland fært upp um flokk hjá FTSE, „gríðarlega stór tímamót“ fyrir markaðinn Alþjóðlega vísitölufyrirtækið FTSE Russell ákvað í gær að færa íslenska hlutabréfamarkaðinn upp í flokk nýmarkaðsríkja (e. Secondary Emerging Markets) og tekur sú breyting gildi við opnun markaða 19. september á þessu ári. Uppærslan mun greiða fyrir innflæði „verulegs fjármagns“ inn í íslenskt efnahagslíf sem getur stutt við fjármögnunarmöguleika skráðra félaga, að sögn Kauphallarinnar. Innherji 2.4.2022 11:23
Lífeyrissjóðir keyptu fyrir 20 milljarða, einkafjárfestar með þriðjung útboðsins Íslenskir lífeyrissjóðir fengu úthlutað meira en þriðjung þeirra eignarhluta í Íslandsbanka sem ríkissjóður seldi í hlutafjárútboðinu sem kláraðist í síðustu viku. Samtals keyptu 23 lífeyrissjóðir, sem áttu fyrir útboðið samanlagt um 16 prósenta hlut í bankanum, fyrir 19,5 milljarða króna, eða sem jafngildir liðlega 8,5 prósenta eignarhlut. Innherji 1.4.2022 12:17
Bóksal selur í skráðum félögum til að minnka áhættu og skuldsetningu Fjárfestingafélagið Bóksal, sem er í eigu hjónanna Boga Þórs Siguroddssonar og Lindu Bjarkar Ólafsdóttur og hefur verið afar umsvifamikið á hlutabréfamarkaði undanfarin misseri, seldi í liðnum mánuði hluta bréfa sinna í Icelandair, Arion banka og Kviku banka þar sem það hefur um nokkurt skeið verið á meðal stærstu hluthafa. Innherji 31.3.2022 11:31
Verðmetur Alvotech á 540 milljarða skömmu fyrir skráningu á markað Heildarvirði íslenska líftæknifyrirtækisins Alvotech, sem undirbýr nú tvíhliða skráningu á hlutabréfamarkað í Bandaríkjunum og á Íslandi, er metið á um 90 prósent hærra gengi í nýju verðmati miðað við þann verðmiða sem var sett á félagið þegar það lauk um 60 milljarða króna fjármögnun undir lok síðasta ár. Innherji 30.3.2022 10:07
Íslandssjóðir keyptu fyrir um 1.400 milljónir í útboði Íslandsbanka Sjóðastýringarfyrirtækið Íslandssjóðir er á meðal tíu stærstu hluthafa Íslandsbanka eftir að sala ríkissjóðs á hlutum í bankanum kláraðist í síðustu viku og nemur hlutur þess nú 1,55 prósentum. Íslandssjóðir, sem er dótturfélag Íslandsbanka, átti undir eins prósenta hlut þegar útboðið hófst en í lok árs stóð hann í 0,94 prósentum. Innherji 29.3.2022 09:53
Hagnaður Stefnis tvöfaldast og var yfir 1.600 milljónir Sjóðastýringarfyrirtækið Stefnir skilaði hagnaði upp á 1.618 milljónir króna á árinu 2021, sem einkenndist af verðhækkunum í Kauphöllinni og aukinni ásókn almennings í hlutabréfafjárfestingar, og jókst hann um 93 prósent frá fyrra ári. Eignir í virkri stýringu Stefnis, sem er í eigu Arion banka, jukust um 58 milljarða og námu 288 milljörðum í árslok. Innherji 28.3.2022 17:00
Fjórir lífeyrissjóðir meðal sex stærstu hluthafa Bandaríski fjárfestingarsjóðurinn Capital Group er ekki lengur annar stærsti hluthafi Íslandsbanka heldur Lífeyrissjóður starfsmanna ríkisins með 5,23 prósenta hlut. Áætlað er að Bankasýsla ríkisins birti uppgjör á útboði ríkisins á hlut í Íslandsbanka í dag. Viðskipti innlent 28.3.2022 13:00
Fjárfestar minnka lítillega við sig í hlutabréfasjóðum í skugga stríðsátaka Innlausnir fjárfesta í innlendum hlutabréfasjóðum voru rúmlega 840 milljónum krónum meiri en sem nam fjárfestingum þeirra í slíkum sjóðum í febrúar. Þetta er í fyrsta sinn frá því þegar faraldurinn stóð hvað hæst á fyrri hluta ársins 2020 sem merkja má útflæði úr hlutabréfasjóðum en markaðir, bæði hér heima og erlendis, einkenndust af mikilli óvissu í liðnum mánuði vegna stríðsátakanna í Úkraínu. Innherji 28.3.2022 11:21
Áhættan af sambandsrofi við kerfi Nasdaq innan „ásættanlegra marka“ Gunnar Jakobsson, varaseðlabankastjóri fjármálastöðugleika, segir að áhættan af því að samband rofni við verðbréfauppgjörskerfi Nasdaq, sem geymir nær öll íslensk verðbréf og er hýst í gagnaverum í Svíþjóð, sé innan „ásættanlegra marka“ eins og staðan er í dag. Ef stríðið í Úkraínu breiðist út gæti Seðlabankinn hins vegar þurft að endurmeta stöðuna. Innherji 28.3.2022 08:51
Keldan setur nýja og uppfærða útgáfu í loftið Upplýsinga- og fréttaveitan Keldan setti nýja og uppfærða útgáfu í loftið í dag sem miðar að því að bæta notendaupplifun og virkni í farsímum og spjaldtölvum. Innherji 24.3.2022 12:17
Tilboð frá 430 fjárfestum og minni afsláttur en í samskonar útboðum Meginþorri verðbréfasjóða, fjársterkra einstaklinga og tryggingafélög, sem voru metnir langtímafjárfestar af hálfu Bankasýslunnar, fengu úthlutað bréfum í Íslandsbanka sem nam yfir 40 prósentum af þeirri upphæð sem þeir skráðu sig fyrir í lokuðu útboði til fagfjárfesta sem lauk í gærkvöldi þegar ríkið seldi 22,5 prósenta hlut fyrir 53 milljarða. Innherji 23.3.2022 20:15
Óánægja með að fagfjárfestar hafi fengið afslátt Mikil umfram eftirspurn var í fagfjárfesta útboði Bankasýslu ríkissins á tæplega fjórðungs á hlut ríkisins í Íslandsbanka. Verð á hvern hlut til fagfjárfesta er um 10 prósent lægra en gengi dagsins í Kauphöll nú í morgun og um 4 prósent lægra en í gær. Óánægju gætir með afsláttinn og úthlutun á hlutum. Viðskipti innlent 23.3.2022 12:02
Ríkið felldi tillögu um að jafnræði sé tryggt við endurkaup á Íslandsbankabréfum Stór hópur hluthafa í Íslandsbanka, annarra en Bankasýslunnar sem heldur utan um 65 prósenta hlut ríkissjóðs, lagðist gegn því að stjórn bankans fengi heimild til kaupa á eigin hlutum sem opnar á að félagið geti gert einstökum hluthöfum, eins og til dæmis íslenska ríkinu, tilboð um kaup á bréfum þeirra án þess að aðrir hluthafar hafi möguleika á þátttöku í slíkum endurkaupum. Innherji 22.3.2022 16:00
Nýsköpunarfyrirtækið Curio metið á fjóra milljarða við kaup Marels í fyrra Marel greiddi 408 milljónir króna þegar félagið bætti við sig um 10,7 prósenta hlut í íslenska hátæknifyrirtækinu Curio, sem framleiðir fiskvinnsluvélar, í byrjun síðasta árs en eftir þau kaup fór Marel með helmingshlut. Miðað kaupverðið á þeim hlut var Curio því verðmetið á samtals rúmlega 3,8 milljarða króna í viðskiptunum. Innherji 21.3.2022 18:03
Marel borgaði yfir fimm milljarða fyrir hátæknifyrirtækið Völku Áætlað kaupverð Marels á íslenska hátæknifyrirtækinu Völku, sem framleiðir fiskvinnslulausnir fyrir alþjóðamarkað, er samtals vel á sjötta milljarð króna. Tilkynnt var um kaup Marels á fyrirtækinu um mitt síðasta ár en þau kláruðust undir lok nóvembermánaðar eftir að Samkeppniseftirlitið hafði gefið samþykki sitt fyrir samruna félaganna. Innherji 21.3.2022 11:54
Þörf fyrir skrifstofur hefur ekki minnkað eftir faraldurinn, segir forstjóri Regins Kórónuveirufaraldurinn hafði ekki marktæk áhrif á eftirspurn eftir skrifstofuhúsnæði eða að minnsta kosti ekki eftir húsnæði sem uppfyllir auknar kröfur fyrirtækja og starfsfólks um gæði. Þetta segir Helgi S. Gunnarsson, forstjóri fasteignafélagsins Regins. Innherji 20.3.2022 13:27
Almennir fjárfestar orðnir „ansi sjóaðir“ Örvar Snær Óskarsson, sjóðstjóri Eldgjár, blandaðs sjóðs á vegum Kviku eignastýringar, býst ekki við því að hræringar síðustu vikna á hlutabréfamarkaði muni fæla almenna fjárfesta frá markaðinum. Hann gerir ráð fyrir að áform um nýskráningar á þessu ári muni ganga eftir en þær hafa verið einn stærsti drifkrafturinn að baki aukinni þátttöku almennra fjárfesta. Innherji 19.3.2022 12:07
Hispurslaus kveðja Baldvins Nýjan tón mátti merkja í hispurslausu ávarpi Baldvins Þorsteinssonar, fráfarandi stjórnarformanns Eimskips, í ársskýrslu Eimskips sem kynnt var fyrir aðalfund félagsins í gær. Klinkið 18.3.2022 20:01
VÍS vill breikka tekjustoðir félagsins og „horfir til tækifæra á markaði“ VÍS hefur að „undanförnu haft til skoðunar möguleika til útvíkkunar á ýmiskonar fjármálatengdri starfsemi sem fellur vel“ að tryggingafélaginu. Innherji 18.3.2022 11:38
Bein útsending: Kynning á uppgjöri fjórða ársfjórðungs hjá Play Flugfélagið Play mun kynna uppgjör sitt fyrir fjórða ársfjórðung á opnum kynningarfundi sem hefst klukkan 8:30. Þar mun þau Birgir Jónsson forstjóri og Þóra Eggertsdóttir fjármálastjóri kynna uppgjörið og svara spurningum. Viðskipti innlent 17.3.2022 08:01
Verðbólguvæntingar fjárfesta ekki verið hærri frá hruni, bankinn þarf að „gefa skýr skilaboð“ Verðbólguhorfurnar hafa versnað til muna á skömmum tíma, rétt eins og í öðrum löndum í kringum okkur, og eru íslenskir fjárfestar á skuldabréfamarkaði að sjá fyrir sér að verðbólguskotið sem kunni að vera í vændum verði það mikið að ávöxtunarkrafan á styttri óverðtryggðum ríkisskuldabréfum „muni étast upp í verðbólgunni.“ Innherji 16.3.2022 06:00
Krafa ríkisbréfa rýkur upp fyrir fimm prósent, ekki verið hærri í þrjú ár Lánskjör ríkissjóðs við að fjármagna sig á innlendum skuldabréfamarkaði hafa farið hratt versnandi á undanförnum vikum samhliða því að fjárfestar óttast að verðbólgan muni reynast mun meiri en áður var spáð. Þar ræður mestu hækkandi hrávöruverð á alþjóðamörkuðum vegna stríðsátakanna í Úkraínu. Innherji 15.3.2022 09:41
Tímaspursmál hvenær kaupaukar tengdir sjálfbærni spretta upp í Kauphöllinni Það er aðeins „tímaspursmál“ hvenær sjálfbærnitengdir kaupaukar verða innleiddir hjá fleiri skráðum félögum í Kauphöllinni. Kaupaukar af þessu tagi hafa rutt sér til rúms á erlendum hlutabréfamörkuðum og viðmælendur Innherja benda á að nýjungar á sviði sjálfbærni berist iðulega til Íslands með nokkurra ára töf. Innherji 13.3.2022 10:00
Skortstöðum fækkaði í takt við hækkanir í Kauphöllinni Fjármálaeftirliti Seðlabanka Íslands bárust 44 tilkynningar um skortstöður í fyrra en til samanburðar bárust 163 slíkar tilkynningar árið 2020. Þetta kemur fram í ritinu Fjármálaeftirlit 2022 sem Seðlabankinn birti í morgun. Innherji 10.3.2022 12:03
Fjárfestar eiga von á 60 milljörðum í arð, gæti virkað sem vítamínsprauta fyrir markaðinn Hlutabréfafjárfestar eiga von á því að fá samanlagt nærri 60 milljarða króna í sinn hlut í arð og aðrar greiðslur í tengslum við lækkun hlutafjár á komandi vikum frá þrettán félögum í Kauphöllinni. Það er um þrefalt hærri upphæð en skráð fyrirtæki greiddu út í arð til fjárfesta á öllu árinu 2021. Innherji 10.3.2022 06:00