Körfubolti

Fréttamynd

Ég skal spila í Rússlandi fyrir 3 milljarða á ári

Nokkuð hefur borið á því að undanförnu að leikmenn sem spilað hafa í NBA deildinni í körfubolta hafi flutt sig um set og samið við félög í Evrópu. Kobe Bryant hjá LA Lakers segist ekki útiloka að spila í Evrópu - fyrir rétt verð.

Körfubolti
Fréttamynd

Kirilenko verður fánaberi Rússa

Framherjinn Andrei Kirilenko hjá Utah Jazz og rússneska landsliðinu, verður fánaberi þjóðar sinnar á Ólympíuleikunum í Peking sem settir verða á föstudag. Kirilenko var í Ólympíuliði Rússa árið 2004 en liðið er ríkjandi Evrópumeistari í körfubolta.

Körfubolti
Fréttamynd

Rússarnir stóðu í Bandaríkjamönnum

Bandaríska landsliðið í körfubolta fékk nokkuð meiri samkeppni en í síðustu leikjum þegar það mætti Evrópumeisturum Rússa í æfingaleik í Kína í morgun. Bandaríska liðið vann þó nokkuð öruggan sigur 89-68 þegar upp var staðið.

Körfubolti
Fréttamynd

Bandaríkjamenn burstuðu Litháa

Bandaríska körfuboltalandsliðið átti ekki í teljandi vandræðum með lið Litháa þegar liðin mættust í æfingaleik fyrir Ólympíuleikana í Kína í dag. Sigur Bandaríkjamanna var aldrei í hættu eftir að liðið náði 16 stiga forystu eftir fyrsta leikhlutann og sigraði að lokum 120-84.

Körfubolti
Fréttamynd

Þetta er körfubolti - ekki kalda stríðið

Bandaríska körfuboltakonan Becky Hammon hefur valdið nokkru fjaðrafoki í heimalandi sínu eftir að hún ákvað að leika fyrir hönd Rússa á Ólympíuleikunum. Sjálf segir hún að þessi ákvörðun sé sú amerískasta sem hún hafi tekið á ævi sinni.

Körfubolti
Fréttamynd

Pavel samdi við La Palma

Landsliðsmaðurinn Pavel Ermolinskij hefur náð samningi við spænska B-deildarliðið La Palma. Þetta kom fram á karfan.is í dag.

Körfubolti
Fréttamynd

Bandaríkjamenn völtuðu yfir Tyrki

LeBron James skoraði 20 stig og hitti úr 8 af 9 skotum sínum í dag þegar bandaríska landsliðið í körfubolta rótburstaði Tyrki 114-82 í öðrum æfingaleik sínum fyrir Ólympíuleikana í Kína.

Körfubolti
Fréttamynd

Ermolinskij íhugar tilboð frá Spáni

Íslenski landsliðsmaðurinn Pavel Ermolinskij sem leikið hefur með Ciudad Huelva á Spáni er nú að íhuga nokkrar fyrirspurnir sem gerðar hafa verið í hann frá öðrum liðum.

Körfubolti
Fréttamynd

Slagsmál í WNBA (myndband)

Sá fáheyrði atburður átti sér stað í bandarísku kvennadeildinni í körfubolta í nótt að áflog brutust út í leik Detroit Shock og LA Sparks í Detroit.

Körfubolti
Fréttamynd

Þjóðverjar á Ólympíuleikana

Þjóðverjar tryggðu sér í kvöld síðasta sætið á Ólympíuleikana með 96-82 sigri á Portó Ríkó í baráttunni um þriðja og síðasta sætið í undankeppni leikanna.

Körfubolti
Fréttamynd

Fyrsti leikur Yao Ming í hálft ár

Kínverski risinn Yao Ming lék í nótt sinn fyrsta leik í hálft ár þegar hann spilaði nokkrar mínútur í æfingaleik Kínverja gegn Serbum í undirbúningi fyrir Ólympíuleikana.

Körfubolti
Fréttamynd

Portland vildi fá Jón Arnór

Lið Portland Trailblazers í NBA deildinni setti sig í samband við landsliðsmanninn Jón Arnór Stefánsson og vildi fá hann í hóp sinn fyrir sumardeildirnar. Þetta kemur fram á fréttavefnum karfan.is í dag.

Körfubolti
Fréttamynd

Kanada í 8-liða úrslitin

Kanadamenn urðu í gær síðasta þjóðin til að tryggja sér sæti í 8-liða úrslitum forkeppni Ólympíuleikanna í körfubolta með naumum 79-77 sigri á Suður-Kóreumönnum.

Körfubolti
Fréttamynd

Siena ítalskur meistari

Siena tryggði sér í kvöld ítalska meistaratitilinn í körfubolta með 92-81 sigri á Lottomatica Roma í fimmta leik liðanna í lokaúrslitunum.

Körfubolti
Fréttamynd

Jón Arnór og félagar unnu Siena

Jón Arnór Stefánsson og félagar í Lottomatica Roma unnu nauðsynlegan sigur gegn Siena í kvöld 84-70. Siena hefði tryggt sér ítalska meistaratitilinn með sigri. Staðan í hálfleik var 39-39.

Körfubolti
Fréttamynd

Totti er heiðursgestur hjá Jóni Arnóri og Roma

Þekktasti og vinsælasti knattspyrnumaður Rómarborgar, Ítalinn Francesco Totti, hefur boðað komu sína á fjórða leik Lottomatica Roma og Montepaschi Siena sem fram fer í hinni glæsilegu Palalottomatica-höll í kvöld.

Körfubolti
Fréttamynd

Roma í vondum málum

Lottomatica Roma, lið Jóns Arnórs Stefánssonar í ítölsku úrvalsdeildinni í körfubolta, tapaði í kvöld þriðja leik sínum gegn Siena í úrslitaeinvígi deildarinnar. Siena hefur því yfir 3-0 í rimmunni og þarf aðeins einn sigur til viðbótar til að tryggja sér titilinn.

Körfubolti
Fréttamynd

Roma tapaði fyrsta leiknum

Jón Arnór Stefánsson og félagar í Lottomatica Roma töpuðu í kvöl fyrsta leiknum í lokaúrslitaeinvíginu í ítölsku úrvalsdeildinni. Siena vann 85-73 sigur á heimavelli í kvöld og Jón Arnór skoraði fimm stig. Næsti leikur fer einnig fram í Siena, en liðið sem fyrr vinnur fjóra leiki verður meistari.

Körfubolti
Fréttamynd

Landsliðsþjálfari Spánverja rekinn

Pepu Hernandez, landsliðsþjálfari Spánverja í körfubolta, var í dag rekinn úr starfi. Hernandez hefur átt í deilum við forráðamenn spænska körfuknattleikssambandsins að undanförnu og þeir sáu sér ekki annað fært en að reka hann - rétt áður en heimsmeistararnir hefja leik á Ólympíuleikunum.

Körfubolti
Fréttamynd

Roma í úrslit á Ítalíu

Jón Arnór Stefánsson og félagar í Lottomatica Roma tryggðu sér í kvöld sæti í úrslitaeinvíginu í ítölsku A-deildinni þegar þeir lögðu Air Avellino 77-70 í þriðja leik liðanna í undanúrslitunum.

Körfubolti
Fréttamynd

Jón Arnór og félagar í góðum málum

Jón Arnór Stefánsson og félagar hans í Lottomatica Roma hafa náð 2-0 forystu gegn Air Avellino í undanúrslitum úrslitakeppni ítölsku A-deildarinnar. Roma vann annan leikinn 85-78 á útivelli í kvöld og geta tryggt sér sæti í úrslitum með sigri í þriðja leiknum á þriðjudagskvöldið.

Körfubolti
Fréttamynd

Ég var aldrei í fýlu

Snæfellingarnir Hlynur Bæringsson og Sigurður Þorvaldsson hafa báðir gefið kost á sér í íslenska körfuboltalandsliðið.

Körfubolti
Fréttamynd

CSKA Moskva Evrópumeistari

Lið CSKA frá Moskvu varð í gær Evrópumeistari félagsliða í sjötta sinn þegar liðið lagði Maccabi Tel Aviv 91-77 í úrslitaleik keppninnar. Trajan Langdon var stigahæstur hjá rússneska liðinu með 21 stig og var valinn maður helgarinnar.

Körfubolti
Fréttamynd

Sjö þjóðir hafa sótt um HM

Í næstu vikur rennur út frestur til að sækja um að fá að halda heimsmeistarakeppnina í körfubolta árið 2014. Alls hafa sjö þjóðir sent inn umsókn en það eru Sádi Arabía, Katar, Ítalía, Frakkland, Danmörk, Spánn og Rússland.

Körfubolti
Fréttamynd

Helena nýliði ársins

Helena Sverrisdóttir hefur verið kjörinn nýliði ársins hjá liði sínu TCU í bandaríska háskólaboltanum. Helena átti frábært ár með liði sínu og var fyrir nokkru valinn besti nýliðinn í Mountain West deildinni.

Körfubolti