Körfubolti

Fréttamynd

Pavel með fimm stig í tapleik

Pavel Ermolinskij skoraði fimm stig fyrir Ciudad de Huelva sem tapaði í gær afar óvænt fyrir botnliði La Palma í spænsku B-deildinni í körfubolta í gær, 91-67.

Körfubolti
Fréttamynd

Helena með tvöfalda tvennu í sigri TCU

Helena Sverrisdóttir náði sinni fyrstu tvöfaldri tvennu á ferlinum í bandaríska háskólaboltnum er hún skoraði fjórtán stig og tók ellefu fráköst í sigri TCU á BYU, 73-54, í nótt.

Körfubolti
Fréttamynd

Stórt tap Lottomatica Roma

Lottomatica Roma tapaði í gær fyrir Fenerbahce á heimavelli í Meistaradeild Evrópu í körfubolta, 84-63. Jón Arnór Stefánsson lék ekki með liðinu.

Körfubolti
Fréttamynd

María Ben spilaði í nótt

María Ben Erlingsdóttir lék með liði sínu í bandaríska háskólakörfuboltanum í nótt í fyrsta sinn eftir að hún meiddist strax í öðrum leik tímabilsins um miðjan nóvember.

Körfubolti
Fréttamynd

TCU tapaði í framlengingu

Helena Sverrisdóttir skoraði níu stig þegar lið hennar í bandaríska háskólaboltanum, TCU, tapaði fyrir Florida Gators á útivelli í gær.

Körfubolti
Fréttamynd

Roma burstaði Panathinaikos

Jón Arnór Stefánsson og félagar í Lottomatica Roma burstuðu sterkt lið Panathinaikos frá Grikklandi í Evrópukeppninni í kvöld 85-67. Jón Arnór hafði hægt um sig á 22 mínútum og skoraði 7 stig. Þetta var aðeins annar sigur Roma í riðlinum en fyrsta tap gríska stórliðsins.

Körfubolti
Fréttamynd

Roma í annað sætið

Lottomatica Roma skellti sér í annað sætið í ítölsku úrvalsdeildinni í körfubolta í gærkvöld eftir auðveldan 86-62 sigur á Bologna í gærkvöldi. Jón Arnór Stefánsson skoraði 7 stig fyrir Roma sem er sex stigum á eftir toppliði Siena í deildinni.

Körfubolti
Fréttamynd

Pavel lék í sigri Huelva

Pavel Ermolinskij er allur að koma til eftir að hafa átt erfitt uppdráttar á tímabilinu á Spáni vegna meiðsla. Hann skoraði tvö stig í sigri Huelva í spænsku B-deildinni í gær.

Körfubolti