Körfubolti
163 164 165 166 167 168 169 170 171 … 217 ›
Roma í undanúrslit Jón Arnór Stefánsson skoraði 12 stig fyrir lið sitt Lottomatica Roma í gær þegar liðið tryggði sér sæti í undanúrslitum í ítölsku deildinni með 83-58 stórsigri á fyrrum félögum hans í Napoli. Roma vann einvígið 3-0 og mætir toppliði Siena í næstu umferð. Körfubolti 23.5.2007 14:27
Sigur í fyrsta leik hjá Roma Lottomatica Roma á Ítalíu spilaði í kvöld sinn fyrsta leik í 8-liða úrslitum úrvalsdeildiarinnar og þar báru Jón Arnór Stefánsson og félagar í Roma sigurorð af fyrrum félögum hans í Napoli 73-57. Jón Arnór spilaði 13 mínútur í leiknum og skoraði 3 stig. Næsti leikur í einvíginu fer fram í Napoli um helgina og liðið sem fyrr vinnur þrjá leiki fer í næstu umferð. Körfubolti 16.5.2007 22:23
Logi Gunnarsson til Spánar Landsliðsmaðurinn Logi Gunnarsson sem leikið hefur með finnska körfuboltaliðinu ToPo í Helsinki í vetur, hefur skrifað undir samning við spænska liðið Gijon sem leikur í 1. deildinni þar í landi. Logi mætir á æfingu hjá liðinu annað kvöld og meiningin er að hann verði með liðinu í úrslitakeppninni strax á föstudag. Þetta kemur fram á vef Víkurfrétta í kvöld, en þar er einnig stutt viðtal við kappann. Körfubolti 18.4.2007 22:06
Florida háskólameistari annað árið í röð Florida-skólinn varð í gærkvöld háskólameistari í körfubolta annað árið í röð eftir sigur á Ohio State í úrslitaleik 84-75. Þetta var í fyrsta sinn síðan árið 1992 sem lið vinnur tvö ár í röð í keppninni og í fyrsta sinn í sögunni sem lið vinnur tvö ár í röð með sama byrjunarlið. Körfubolti 3.4.2007 13:29
Jón Arnór með 12 stig í sigri Roma Jón Arnór Stefánsson skoraði 12 stig fyrir ítalska liðið Lottomatica Roma í gær þegar liðið skellti Benetton Treviso 73-61 á útivelli í A-deildinni í gær. Roma er í fjórða sæti deildarinnar. Körfubolti 2.4.2007 12:24
Jón með 8 stig í tapleik Jón Arnór Stefánsson og félagar í Lottomatica Roma töpuðu í kvöld á útivelli fyrir Maccabi Tel Aviv í Meistaradeildinni í körfubolta 79-72. Jón skoraði 8 stig og gaf 2 stoðsendingar á 19 mínútum. Hann var öflugur á lokasprettinum þegar ítalska liðið tók góða rispu, en heimamenn náðu að halda sínu og sigruðu. Þetta var fimmta tap Roma í röð í keppninni eftir sigur í fyrsta leik. Körfubolti 22.3.2007 21:00
Myndband af tilþrifum vikunnar hjá Jóni Arnóri Jón Arnór Stefánsson þótti eiga tilþrif vikunnar í ítölsku úrvalsdeildinni í körfubolta þegar hann tryggði liði sínu Roma sigur á toppliði Siena í vikunni 84-83. Frá þessu var greint á heimasíðu KKÍ. Smelltu á hlekkinn hér fyrir neðan til að sjá tilþrifin. Körfubolti 21.3.2007 20:06
Bandaríkjamenn heppnir með mótherja Landslið Bandaríkjanna í körfubolta sleppur við að leika með liði Ólympíumeistara Argentínu í riðli í Ameríkukeppninni sem fram fer í sumar, en dregið var í riðla í dag. Tvö af liðunum tíu sem taka þátt tryggja sér sæti á Ólympíuleikunum í Peking á næsta ári. Körfubolti 21.3.2007 21:02
Stjörnuleikur FIBA í beinni á netinu annað kvöld Árlegur Stjörnuleikur í Evrópukörfuboltanum fer fram í Lemesos á Kýpur annað kvöld og verður hann sýndur í beinni útsendingu á heimasíðu evrópska körfuknattleikssambandsins www.fibaeurope.com. Nokkrir áhugaverðir leikmenn verða þar á meðal keppenda og má þar nefna danska landsliðsmanninn Christian Drejer og Marc Gasol, bróðir Pau Gasol sem spilar í NBA deildinni. Körfubolti 19.3.2007 16:16
Jón Arnór skoraði sigurkörfu Roma Jón Arnór Stefánsson var hetja liðs síns Lottomatica Roma í gærkvöld þegar hann tryggði liði sínu sigurinn á Montepaschi Siena í framlengdum leik í ítölsku úrvalsdeildinni. Roma sigraði 84-82 með körfu Jóns í lok framlengingar, en hann skoraði aðeins 4 stig í leiknum. Körfubolti 19.3.2007 16:02
Ron Artest: Ég hef brugðist Fimm dögum eftir að hafa verið handtekinn vegna gruns um að hafa beitt eiginkonu sína ofbeldi hefur leikmaður Sacramento í NBA-deildinni, beðist afsökunar á framferði sínu. Artest segist hafa brugðist hlutverki sínu, sem eiginmaður, faðir og leikmaður Sacramento, og biður um fyrirgefningu. Körfubolti 11.3.2007 14:49
12. sigur San Antonio í röð San Antonio Spurs er á fljúgandi siglingu í NBA-deildinni um þessar mundir og í nótt vann liðið sinn 12. sigur í röð þegar það lagði New Jersey af velli á heimavelli, 93-77. Eins og svo oft áður var það liðsheildin sem skóp sigur San Antonio, en allir þeir 12 leikmenn sem voru á skýrslu liðsins náðu að skora stig í leiknum. Körfubolti 11.3.2007 10:17
Rasheed Wallace: Það þýðir ekkert að sekta mig Vandræðagemlingurinn Rasheed Wallace hjá Detroit Pistons hefur sent þau skilaboð til forráðamanna NBA-deildarinnar að það þýði ekkert að sekta sig eða setja sig í leikbann – hann muni ekki breyta leikstíl sínum. Wallace, sem er þekktur fyrir sorakjaft í leikjum Detroit, segist eiga nóg af peningum til að borga sínar sektir. Körfubolti 10.3.2007 17:42
Shaq stendur sig vel í fjarveru Wade Tröllið Shaquille O´Neal hjá Miami lék einn sinn besta leik á tímilinu í nótt þegar meistarar Miami lögðu Minnesota í NBA-deildinni í nótt, 105-91. O´Neal skoraði 32 stig, þar af 15 í fyrsta fjórðung, og hitti úr 13 af 16 skotum sínum í leiknum. Körfubolti 10.3.2007 12:47
Ellefu sigrar í röð hjá Spurs í NBA-deildinni Manu Ginobili skoraði 31 stig, þar af fimm þriggja stiga kröfur, þegar San Antonio Spurs vann Sacramento Kings 100-93 í NBA-deildinni í nótt. Þetta var ellefti sigur Spurs í röð í deildinni. Körfubolti 9.3.2007 10:21
Jón Arnór aftur traustur í lokin Körfubolti Jón Arnór Stefánsson hitti úr tveimur úrslitavítaskotum á lokasekúndunum í 78-77 útisigri Lottomatica Roma á VidiVici Bologna í ítalska körfuboltanum. Körfubolti 5.3.2007 23:23
Endurkoma Mings dugði ekki gegn Cleveland Endurkoma Kínverjans Yaos Ming í lið Houston Rockets eftir meiðsli dugði liðinu ekki því það tapaði fyrir Cleveland Cavaliers 91-85 í NBA-deildinni í gær. Ming skoraði 16 stig í leiknum og tók 11 fráköst en LeBron James skyggið á hann með 32 stig og 12 fráköst í liði Cleveland. Körfubolti 6.3.2007 09:15
Radmanovic laug til um meiðsli Vladimir Radmanovic, framherji LA Lakers, sagði ósatt þegar hann útskýrði fyrir forráðamönnum félagsins hvernig hann hefði hlotið axlarmeiðslin sem hann varð fyrir um síðustu helgi. Radmanovic sagðist hafa dottið en sannleikurinn er að hann datt á snjóbretti. Hann verður frá í tvo mánuði og má búast við sekt frá félaginu fyrir uppátækið. Körfubolti 26.2.2007 13:03
Detroit vann Chicago í endurkomu Ben Wallace Detroit lagði Chicago af velli í NBA-deildinni í nótt, 95-93, í leik sem hafði verið beðið eftir með nokkur eftirvæntingu þar sem Ben Wallace, fyrrum leikmaður Detroit, var að snúa aftur til Motown-borgarinnar í fyrsta sinn frá því að hafa gengið í raðir Chicago fyrir tímabilið. Chris Webber, arftaki Wallace hjá Detroit, tryggði liði sínu sigur á lokasekúndunum. Körfubolti 26.2.2007 11:00
Sögulegur árangur Dallas Dallas varð í nótt fjórða liðið í sögu NBA til að vinna yfir 10 leiki í röð á þremur mismunandi tímabilum á leiktíð. Dallas vann Denver í nótt og var það 11. sigurleikur liðsins í röð en fyrr í vetur hafði liðið náð að vinna 12 og 13 leiki í röð. Ef mið er tekið af sögunni á Dallas meistaratitilinn næsta vísan. Körfubolti 25.2.2007 18:15
Ellefti sigur Dallas í röð Dirk Nowitzki var frábær fyrir Dallas í nótt þegar liðið bar sigurorð af Denver í NBA-deildinni, 115-95. Nowitzki skoraði 31 stig, hirti 11 fráköst og gaf 8 stoðsendingar í þessum ellefta sigurleik Dallas í röð. Enn fremur var sigurinn sá 19. í röð á heimavelli. Körfubolti 25.2.2007 11:34
Kidd með þrefalda tvennu Jason Kidd lét brákað rifbein ekki stöðva sig í viðureign New Jersey gegn Sacramento í NBA-deildinni í nótt heldur náði hann sinni níundu þreföldu tvennu á leiktíðinni í 109-96 sigri sinna manna. Þetta var í 84. skiptið á ferlinum sem Kidd nær þrefaldri tvennu. Fjölmargir leikir fóru fram í NBA í nótt. Körfubolti 24.2.2007 12:30
Naumur sigur Wizards á Kings Þrír leikir voru í NBA-deildinni í körfuknattleik í gærkvöld þar sem Washington Wizards unnu meðal annars mjög nauman sigur á Sacramento Kings, 109-106. Nokkrar deilur urðu í lok leiksins þar sem Kings töldu að John Salmons hefði jafnað leikinn með flautukörfu. Körfubolti 23.2.2007 09:17
Roma tapaði fyrir Tel Aviv Jón Arnór Stefánsson og félagar í ítalska liðinu Lottomatica Roma töpuðu í kvöld fyrir Maccabi Tel Aviv á heimavelli í Meistaradeildinni í körfubolta 71-69. Jón Arnór spilaði 14 mínútur í leiknum og skoraði 4 stig. Körfubolti 22.2.2007 22:01
Hardaway úti í kuldanum Ummælin sem Tim Hardaway lét falla í gær um John Amaechi og annað samkynheigt fólk hafa vakið gríðarlega athygli í Bandaríkjunum. Hardaway hefur verið útilokaður frá allri kynningarstarfsemi í kringum stjörnuleik NBA sem fram fer á sunnudaginn. Amaechi sjálfur segir orð Hardaway vera lituð hatri í garð samfélags samkynheigðra. Körfubolti 16.2.2007 13:58
Dallas marði sigur á Houston Dallas vann sinn níunda leik í röð í NBA-deildinni þegar liðið bar sigurorð af Houston í nótt. Bakvörðurinn Jason Terry var maðurinn á bakvið sigur Dallas, en hann skoraði mikilvægar körfur á lokamínútum leiksins. Cleveland lagði LA Lakers í hinum leik næturinnar en nú verður gert hlé á deildarkeppninni vegna stjörnuleiksins sem fram fer á sunnudag. Körfubolti 16.2.2007 12:40
Fín byrjun hjá Jóni Arnóri Jón Arnór Stefánsson spilaði í kvöld sinn fyrsta leik fyrir ítalska liðið Lottomatica Roma þegar það vann góðan sigur á franska liðinu Pau Orthez í Evrópudeildinni 78-68. Jón skoraði 11 stig og stal tveimur boltum á aðeins 16 mínútum í leiknum og það er ekki amaleg byrjun hjá kappanum sem var varla búinn að taka upp úr töskunum eftir félagaskiptin frá Spáni. Körfubolti 14.2.2007 22:36
Jón Arnór til Rómar Landsliðsmaðurinn Jón Arnór Stefánsson sem leikið hefur með Valencia á Spáni í vetur hefur náð samningi við ítalska körfuboltaliðið Lottomatica Roma á Ítalíu og vonir standa til um að hann verði klár í slaginn með liðinu í Meistaradeildinni á miðvikudagskvöldið. Körfubolti 12.2.2007 16:28
Cuban ósáttur við ummæli Wade Mark Cuban, eigandi Dallas Mavericks í NBA-deildinni, og Avery Johnson, þjálfari liðsins, verja Dirk Nowitzki af öllum mætti eftir að Dwayne Wade, leikmaður Miami, gagnrýndi þýska leikmanninn fyrir skort á leiðtogahæfileikum. Cuban og Johnson skjóta föstum skotum að Wade og segja honum að líta í eigin barm. Körfubolti 11.2.2007 16:26
Carmelo Anthony valinn í stjörnuleikinn Vandræðagemlingurinn Carmelo Anthony hefur verið valinn í lið Vesturdeildarinnar sem tekur þátt í stjörnuleik NBA-deildarinnar þann 18. febrúar næstkomandi. Það var framkvæmdastjóri deildarinnar, sjálfur David Stern, sem valdi Anthony í leikinn vegna meiðsla Carlos Boozer. Körfubolti 11.2.2007 16:21
Uppgjörið: Breiðablik - Valur 2-2 | Óbreytt staða á toppnum eftir jafntefli á Kópavogsvelli Íslenski boltinn