Körfubolti
171 172 173 174 175 176 177 178 179 … 217 ›
Grikkir og Bandaríkjamenn í undanúrslit Evrópumeistarar Grikkja og Bandaríkjamenn tryggðu sér í morgun sæti í undanúrslitum HM í körfubolta sem fram fer í Japan. Grikkir unnu Frakka auðveldlega 73-56 í morgun og í hádeginu lögðu Bandaríkjamenn Þjóðverja 85-65, þrátt fyrir að vera langt frá sínu besta í sóknarleiknum. Körfubolti 30.8.2006 12:33
Don Nelson tekinn aftur við liði Golden State Gamla brýnið Don Nelson er kominn aftur á hliðarlínuna í NBA deildinni eftir stutta fjarveru, en í kvöld verður hann kynntur sem næsti þjálfari Golden State Warriors. Félagið hefur rift samningi við Mike Montgomery og verður undir leiðsögn Nelson á næstu leiktíð. Liðið hefur ekki komist í úrslitakeppnina síðan árið 1994, en þá var Nelson einmitt þjálfari liðsins. Körfubolti 29.8.2006 18:10
Spánn og Argentína í undanúrslit Spánverjar og Argentínumenn mætast í undanúrslitum heimsmeistaramótsins í körfuknattleik í Japan á föstudaginn eftir að liðin unnu bæði mjög sannfærandi sigra á andstæðingum sínum í 8-liða úrslitunum. Bæði lið hafa unnið alla sjö leiki sína á mótinu og ljóst að einvígi þeirra í undanúrslitunum verður frábær slagur. Körfubolti 29.8.2006 13:59
Al Harrington loksins til Indiana Framherjinn Al Harrington er loksins genginn í raðir Indiana Pacers frá Atlanta Hawks í NBA deildinni. Félögin hafa þráttað við samningaborðið í allt sumar en í dag varð loks ljóst að Harrington gengi aftur til liðs við félagið sem tók hann í nýliðavalinu árið 1998. Harrington er 26 ára gamall og skoraði 18 stig og hirti 7 fráköst að meðaltali með Atlanta Hawks í fyrra. Körfubolti 24.8.2006 18:37
Ljóst hvaða lið mætast í 16-liða úrslitum Riðlakeppninni á HM í körfubolta í Japan er nú lokið og ljóst hvaða lið mætast í 16-liða úrslitum keppninnar. Bandaríkjamenn völtuðu yfir Senegala í lokaleik sínum í dag og vann liðið því alla fimm leiki sína í riðlinum. Evrópumeistarar Grikkja lögðu Tyrki 76-69 og unnu einnig alla leiki sína í riðlakeppninni. Körfubolti 24.8.2006 14:38
Dirk Nowitzki fór hamförum Dirk Nowitzki var gjörsamlega óstöðvandi í morgun þegar Þjóðverjar unnu 108-103 sigur á Angóla í rafmögnuðum þríframlengdum leik á HM í körfubolta sem fram fer í Japan. Nowitzki skoraði 47 stig og hirti 16 fráköst fyrir Þjóðverja, en þetta var í fyrsta sinn í sögu HM sem leikur fer í þrjár framlengingar. Körfubolti 24.8.2006 12:37
Pat Riley verður áfram með Miami Hinn sigursæli þjálfari Pat Riley, sem þjálfaði Miami Heat og stýrði liðinu til NBA meistaratitilsins í vor, hefur tilkynnt að hann muni þjálfa liðið áfram á næstu leiktíð. Riley hefur legið undir feldi í allt sumar og í dag gaf Miami út yfirlýsingu þar sem fram kemur að Riley verði áfram þjálfari liðsins. Körfubolti 23.8.2006 17:11
Anthony setti met í sigri Bandaríkjamanna Carmelo Anthony skoraði 35 stig þegar bandaríska landsliðið í körfubolta lagði sterkt lið Ítala 94-85 á HM í körfubolta í dag. Þetta var fjórði sigur Bandaríkjamanna í röð og tryggði sigurinn liðinu toppsætið í D-riðli. Enginn leikmaður hefur skorað jafn mörg stig og Anthony í landsleik fyrir Bandaríkin, en eldra metið átti Kenny Anderson þegar hann skoraði 34 stig fyrir landsliðið árið 1990. Körfubolti 23.8.2006 13:40
Ítalir, Grikkir og Tyrkir áfram Ítalir, Grikkir og Tyrkir tryggðu sér í dag sæti í 16-liða úrslitunum á HM í körfubolta sem fram fer í Japan. Áður höfðu Bandaríkjamenn tryggt sæti sitt þar, en öll fjögur liðin hafa unnið sigra í þremur fyrstu leikjum sínum á mótinu. Körfubolti 22.8.2006 15:27
Auðvelt hjá Bandaríkjamönnum Bandaríkjamenn tryggðu sér í dag sæti í 16-liða úrslitunum á HM í körfubolta þegar þeir lögðu Slóvena nokkuð örugglega í Sapporo 114-95. Sigur Bandaríkjamanna var aldrei í hættu í dag en á morgun mætir liðið sterku liði Ítala sem er taplaust í keppninni til þessa. Dwyane Wade var stigahæstur Bandaríkjamanna með 20 stig, LeBron James skoraði 19 stig og Elton Brand skoraði 16 stig. Körfubolti 22.8.2006 13:28
Spánverjar í góðum málum Spánverjar tryggðu sér í dag sæti í 16-liða úrslitunum á HM í körfubolta sem fram fer í Japan með öruggum 92-71 sigri á Þjóðverjum í dag. Spánverjar hafa unnið alla þrjá leiki sína á mótinu til þessa, en Þjóðverjar ættu að komast áfram þrátt fyrir tapið. Liðið hefur unnið tvo leiki og tapað einum. Körfubolti 21.8.2006 14:52
Öruggt hjá Bandaríkjamönnum Bandaríkjamenn unnu auðveldan sigur á Kínverjum 121-90 í öðrum leik sínum á HM í körfubolta sem fram fer í Japan um þessar mundir. Dwyane Wade skoraði 26 stig fyrir bandaríska liðið og þeir Carmelo Anthony og Dwight Howard skoruðu 16 hvor. Yao Ming skoraði 21 stig fyrir Kínverja, sem hafa tapað báðum leikjum sínum illa á mótinu. Körfubolti 20.8.2006 14:02
Ginobili tryggði heimsmeisturunum sigur Bakvörðurinn snjalli Manu Ginobili var maðurinn á bak við sigur heimsmeistara Argentínu á Frökkum 80-70 í opnunarleik liðanna á HM sem fram fer í Japan. Ginobili skoraði 25 stig fyrir lið Argentínu og Andres Nocioni skoraði 18 stig, en franska liðið var án Tony Parker sem er fingurbrotinn og tekur ekki þátt í mótinu. Körfubolti 19.8.2006 20:38
Mourning framlengir við Miami Miðherjinn Alonzo Mourning hefur skrifað undir eins árs samning um að leika með NBA meisturum Miami Heat á næstu leiktíð, en hann tilkynnti fyrir nokkru að hann ætlaði sér að spila eitt ár í viðbót áður en hann leggði skóna á hilluna. Mourning var lykilmaður hjá liði Miami í fyrra þegar hann var varamaður Shaquille O´Neal. Körfubolti 19.8.2006 19:37
Sigur í fyrsta leik hjá Bandaríkjamönnum Lið Bandaríkjanna vann sinn fyrsta leik á HM í körfubolta þegar það lagði lið Portó Ríkó 111-100. Bandaríkjamennirnir voru í bullandi vandræðum í fyrri hálfleik og lentu þá undir í leiknum, en sigur þeirra var nokkuð öruggur þegar upp var staðið. Carmelo Anthony var stigahæstur í liði BNA með 21 stig og þeir LeBron James og Kirk Hinrich skoruðu 15 stig hvor. Chris Paul skoraði 11 stig, gaf 9 stoðsendingar og stal 5 boltum. Körfubolti 19.8.2006 12:56
Tony Parker fingurbrotinn og missir af HM Leikstjórnandinn Tony Parker getur ekki leikið með Frökkum á HM í körfubolta sem hefst í Japan á morgun eftir að í ljós kom að hann er fingurbrotinn. Þetta er gríðarlegt áfall fyrir franska landsliðið sem mætir gríðarlega sterku liði Argentínu strax í fyrsta leik sínum á morgun. Parker hefur þegar verið beðinn um að snúa aftur í herbúðir San Antonio Spurs í Bandaríkjunum, þar sem hann mun fá læknismeðferð. Körfubolti 18.8.2006 16:23
James, Wade og Anthony fyrirliðar Mike Krzyzewski, þjálfari körfuboltalandsliðs Bandaríkjanna, hefur útnefnt þá LeBron James, Dwyane Wade og Carmelo Anthony sem fyrirliða liðsins á HM sem hefst í Japan á morgun. Þremenningarnir komu allir inn í NBA deildina árið 2003 og eru stigahæstu leikmenn bandaríska liðsins í þeim fimm undirbúningsleikjum sem það hefur spilað að undanförnu. Körfubolti 18.8.2006 16:18
Bruce Bowen fer ekki á HM Varnarjaxlinn Bruce Bowen frá San Antonio Spurs fékk það leiðinlega hlutskipti í gær að verða síðasti maðurinn sem ekki náði inn í landsliðshóp Bandaríkjamanna fyrir HM í körfubolta sem hefst í Japan um helgina. Það er því ljóst hvaða 12 menn skipa bandaríska landsliðið að þessu sinni, en liðið hefur ekki orðið heimsmeistari síðan 1994. Sport 17.8.2006 13:05
Klárar samfélagsþjónustu vegna uppþotsins í Detroit Villingurinn Ron Artest er nú að klára samfélagsþjónustuna sem hann var dæmdur til að gegna eftir að eiga upptökin af einu versta uppþoti í bandarískri íþróttasögu í nóvember árið 2004. Artest segir atvikið heyra sögunni til og á engar óuppgerðar sakir við manninn sem hann réðist á í áhorfendastæðunum í Detroit forðum. Sport 16.8.2006 19:19
Bandaríkjamenn völtuðu yfir Suður-Kóreu Bandaríkjamenn spiluðu í gærkvöld sinn síðasta undirbúningsleik fyrir HM í Japan sem hefst á laugardag þegar þeir völtuðu yfir Suður-Kóreu 116-63 í Seúl. Bandaríska liðið hefur því unnið alla fimm undirbúningsleiki sína fyrir mótið. LeBron James var stigahæstur í liði Bandaríkjamanna með 23 stig, þar af 19 í fyrri hálfleik. Sport 16.8.2006 14:19
Gaf rúman milljarð króna til spítala í Kongó Körfuboltamaðurinn Dikembe Mutombo sem leikið hefur í NBA í 15 ár hefur lagt til rúman milljarð króna til að koma á fót stóru sjúkrahúsi í heimaborg sinni Kinshasa í Kongó. Sjúkrahúsið verður skírt í höfuðið á móður Mutombo sem lést árið 1997 og mun hýsa um 300 sjúkrarúm. Sport 15.8.2006 13:12
Drew Gooden semur við Cleveland Framherjinn Drew Gooden hefur framlengt samning sinn við NBA-lið Cleveland Cavaliers til þriggja ára og hefur þar með bundið enda á miklar vangaveltur sem verið höfðu um framtíð hans. Talið er að Gooden muni fá um 23 milljónir dollara fyrir samning sinn og hefur forráðamönnum Cleveland nú tekist að framlengja samninga allra lykilmanna sinna á síðustu tveimur árum. Sport 14.8.2006 18:31
Gilbert Arenas fer ekki á HM Forráðamenn bandaríska landsliðsins í körfubolta tilkynntu í dag að bakvörðurinn Gilbert Arenas frá Washington Wizards muni ekki spila með liðinu á HM í Japan sem hefst 19. ágúst nk, eftir að hann tognaði á nára á æfingu í morgun. Sport 14.8.2006 16:56
Íhugar framboð Hinn litríki Charles Barkley, sem var einn besti leikmaður NBA deildarinnar á síðasta áratug, íhugar nú að fara í framboð til ríkisstjóra í heimafylki sínu Alabama í Bandaríkjunum. "Ég er kannski ríkur eins og repúblikani, en það þýðir ekki að ég sé hægrimaður," sagði Barkley og bætti við að Alabama þyrfti á aðstoð sinni að halda í framtíðinni. Sport 26.7.2006 19:26
Allen Iverson verður áfram hjá Philadelphia Mikið hefur verið rætt um framtíð stigaskorarans mikla Allen Iverson hjá Philadelphia 76ers í sumar og margir töldu nú eða aldrei fyrir leikmanninn að skipta um lið. Eftir tveggja stunda langan fund með eiganda 76ers í gær hefur leikmaðurinn hinsvegar gefið það út að hann muni ekki fara frá félaginu og eigandi þess segist ekki ætla að reyna að skipta honum í burtu. Sport 26.7.2006 19:32
Al Harrington sagður á leið til Indiana Heimildarmaður ESPN-sjónvarpsstöðvarinnar í Bandaríkjunum segir að aðeins eigi eftir að ganga frá smáatriðum svo framherjinn sterki Al Harrington geti gengið í raðir Indiana Pacers. Harrington hefur leikið með Atlanta Hawks undanfarin ár, en virðist nú vera aftur á leið til liðsins sem tók hann í nýliðavalinu árið 1998. Sport 24.7.2006 16:39
Shawn Kemp handtekinn enn á ný Fyrrum stjörnuleikmaðurinn Shawn Kemp var handtekinn af lögreglu í Houston í dag eftir að lögreglumaður stöðvaði hann fyrir að aka um á númerslausum bíl. Við nánari athugun fannst sterk lykt af eiturlyfjum í bílnum og í ljós komu nokkur grömm af marijúana sem Kemp hafði falin í fórum sínum. Sport 21.7.2006 19:26
Seattle-liðin seld Hópur fjárfesta frá Oklahoma City hefur fest kaup á NBA-liði Seattle Supersonics og kvennaliðinu Seattle Storm. Nýju eigendunum hefur verið gefinn eins árs frestur til að ná samningum um endurbætur eða byggingu nýrrar íþróttahallar í Seattle, ella verði liðin flutt frá borginni. Sport 19.7.2006 21:30
Mourning áfram hjá Miami Miðherjinn Alonzo Mourning hefur undirritað eins árs framlengingu á samningi sínum við NBA-meistara Miami Heat. Samningurinn verður upp á algjöra lágmarksupphæð og sagðist Mourning byggja ákvörðun sína á því hversu vænt honum þætti um stuðningsmenn liðsins. Sport 18.7.2006 17:18
Kobe Bryant líklega út úr myndinni Nokkur skörð hafa verið höggvin í bandaríska landsliðshópinn í körfubolta sem undirbýr sig nú fyrir heimsmeistaramótið í Japan sem hefst í lok næsta mánaðar. Kobe Bryant mun að öllum líkindum missa af keppninni eftir að hafa þurft að gangast undir minniháttar aðgerð á hné, en áður höfðu þeir JJ Redick (bakmeiðsli), Lamar Odom (persónulegar ástæður) og Paul Pierce (uppskurður á öxl) dregið sig úr hópnum. Sport 18.7.2006 14:18