Körfubolti
191 192 193 194 195 196 197 198 199 … 217 ›
Auerbach sagður á batavegi Red Auerbach, forseti Boston Celtics er sagður á batavegi eftir að hann var fluttur þungt haldinn á sjúkrahús fyrir helgina. Fregnir herma að hann hafi verið í dái og verið mjög illa á sig kominn, en nú segir talsmaður Boston að sá gamli sé að ná sér hægt og bítandi. Sport 14.10.2005 06:41
Geta ekki leikið í New Orleans George Shinn, eigandi NBA liðs New Orleans Hornets, segir að þó allir myndu helst vilja að liðið léki áfram í borginni, sé það einfaldlega ekki fræðilegur möguleiki. Fjöldi borga í Bandaríkjunum hefur boðið fram aðstoð sína og fljótlega mun liggja fyrir hvar liðið leikur heimaleiki sína í vetur. Sport 14.10.2005 06:41
Ísland yfir í hálfleik í Rúmeníu Íslenska landsliðið í körfuknattleik var yfir 36-35 gegn Rúmeníu ytra, í lokaleik liðsins í Evrópukeppni landsliða. Logi Gunnarsson var stigahæstur í íslenska liðinu með 7 stig, en þeir Jón Arnór Stefánsson og Gunnar Einarsson eru ekki með vegna meiðsla. Sport 14.10.2005 06:41
Ísland lagði Rúmeníu Íslenska landsliðið í körfuknattleik gerði góða ferð til Rúmeníu í dag og lagði sterkt lið heimamanna, 80-72. Það var Magnús Gunnarsson sem var stigahæstur í íslenska liðinu með 22 stig, þar af 18 í síðari hálfleik. Sport 14.10.2005 06:41
NBA leikmenn styðja hjálparstarf Nokkrar af helstu stjörnum NBA deildarinnar í körfubolta hafa ákveðið að spila góðgerðaleik um helgina að frumkvæði fyrrum leikmannsins og sjónvarpsmannsins Kenny Smith, en allt fé sem safnast mun renna óskipt til fórnarlamba náttúruhamfaranna í suðurríkjunum á dögunum. Sport 14.10.2005 06:41
Red Auerbach á sjúkrahúsi Körfuboltagoðsögnin Red Auerbach hefur verið fluttur alvarlega veikur á sjúkrahús, en ekki hefur verið gefið upp hvað amar að honum. Auerbach er 87 ára gamall og hefur unnið fleiri NBA titla en nokkur annar þjálfari í sögu deildarinnar. Sport 14.10.2005 06:41
Ming launahæstur í Kína Kínverski risinn Yao Ming, sem leikur með Houston Rockets í NBA deildinni í körfubolta, er launahæstur fræga fólksins í Kína samkvæmt Forbes blaðinu þar í landi. Sport 14.10.2005 06:41
Danir í umspil þrátt fyrir tap Danska körfuknattleikslandsliðið er öruggt í umspil um laust sæti í A deild, þrátt fyrir tveggja stiga tap fyrir Rúmenum á heimavelli sínum í gærkvöld. Íslendingar leika við Rúmena ytra á laugardaginn og leggur af stað út í dag án tveggja manna sem eru meiddir. Sport 14.10.2005 06:41
Keflvíkingar semja við Kana Keflvíkingar sömdu í gær við Jason Kalsow frá Bandaríkjunum en kappinn er rétt rúmir tveir metrar á hæð. Kalsow er annar erlendi leikmaðurinn sem gengur til liðs við Íslandsmeistara Keflavíkur í körfuboltanum í sumar. Sport 14.10.2005 06:41
Damon Jones til Cleveland Leikstjórnandinn Damon Jones hjá Miami Heat í NBA deildinni er við það að ganga í raðir Cleveland Cavaliers, ef marka má fréttir frá ESPN í Bandaríkjunum. Staðarblöð í Cleveland fullyrða að Jones sé við það að skrifa undir fjögurra ára samning við félagið. Sport 14.10.2005 06:41
Fjölnismenn komnir með nýjan kana Fjölnismenn eru búnir að ná sér í bandarískan leikmann fyrir komandi leiktíð í úrvalsdeildinni en sá heitir Jason Clark og spilaði með Virginia-háskólanum í 1. deild bandaríska háskólaboltans. Sport 14.10.2005 06:40
17 stiga tap fyrir Dönum Danmörk sigraði Ísland, 77-60 í sveiflukenndum leik í Keflavík nú síðdegis í Evrópukeppni landsliða í körfubolta. Danir hafa þar með tryggt sér efsta sæti riðilsins en vonir Íslendinga um sæti í A-deild er nú úr sögunni. Ísland þurfti að vinna 11 stiga sigur í leiknum. Sport 13.10.2005 19:46
Ísland yfir gegn Dönum Ísland var 1 stigi yfir gegn Danmörku í Evrópukeppninni í körfubolta, 50-49 þegar tæpar 8 mínútur voru eftir að leik liðanna. Staðan var 48-47 fyrir Ísland að loknum 3. leikhluta en leikið er í Keflavík. Íslenska liðið þarf að vinna leikinn með 11 stiga mun eða meira til þess að eiga möguleika á að vinna riðilinn og komast í úrslitakeppnina um sæti í A-deildinni. Sport 13.10.2005 19:46
Ísland-Danmörk að hefjast Ísland og Danmörk mætast í Evrópukeppni landsliða í Keflavík nú kl. 14:00. Leikurinn er síðari leikur þjóðanna, en í fyrri leiknum í Árósum í fyrra voru það Danir sem sigruðu með 10 stiga mun. Ísland þarf því að vinna 11 stiga sigur í leiknum.. Sport 13.10.2005 19:46
Aldrei æft eins vel saman Jón Arnór Stefánsson og félagar hans í íslenska körfuboltalandsliðinu mæta Dönum í Keflavík í dag klukkan 14.00 í mikilvægasta leik síðari ára en hann getur haft úrslitaáhrif um hvaða lið vinnur riðilinn og fær í kjölfarið möguleika á að vinna sér sæti meðal A-þjóða. Sport 14.10.2005 06:40
Yao Ming semur við Houston Kínverski risinn Yao Ming hefur gert langtímasamning við Houston Rockets í NBA deildinni og verður því á mála hjá félaginu til loka tímabilsins 2010-11. Ekki hefur verið gefið upp hve hár samningurinn er, en þó er talið að fyrsta ár hans muni færa Yao Ming um 12,5 milljónir í árslaun, en fari svo ört hækkandi eftir því sem líður á hann. Sport 14.10.2005 06:40
Michael Finley valdi Spurs Eftirsóttasti leikmaður NBA deildarinnar með lausa samninga, Michael Finley, gaf það út í gærkvöldi að hann myndi ganga til liðs við NBA meistara San Antonio Spurs á næstu dögum, en mörg lið voru búin að gera hosur sínar grænar fyrir honum síðustu daga. Sport 14.10.2005 06:40
Rútuferð á landsleikinn Íslenska landsliðið í körfuknattleik mætir Dönum á laugardag. Leikurinn fer fram í Keflavík og fyrir þá sem búa í bænum verður rútuferð á leikinn frá Íþróttahúsinu Smáranum í Kópavogi klukkan 12:30 en leikurinn hefst klukkan 14. Sport 14.10.2005 06:40
Tap gegn Kína Íslenska karlalandsliðið í körfubolta tapaði fyrir Kínverjum með 80 stigum gegn 96 í dag í seinni æfingaleik þjóðanna í Kína. Í hálfleik var staðan 52-43 Kínverjum í vil. Íslendingar voru tveimur stigum að loknum fyrsta leikhluta. Magnús Þór Gunnarsson skoraði 21 stig. Hlynur Bæringsson skoraði 18 og tók 11 fráköst. Sport 13.10.2005 19:46
Van Exel til meistara Spurs Bandarísku NBA meistararnir í körfubolta San Antonio Spurs hafa fengið hinn gamalreynda leikstjórnanda, Nick Van Exel til liðs við sig frá Portland Trailblazers. Van Exel sem er 33 ára hefur komið víða við m.a. hjá Lakers, Mavericks, Warriors og Nuggets. Sport 13.10.2005 19:46
Van Exel semur við Spurs Leikstjórnandinn Nick Van Exel, sem leikið hefur með Portland Trailblazers í NBA deildinni í körfubolta, hefur gert samning við meistara San Antonio Spurs um að leika með liðinu næsta vetur. Sport 13.10.2005 19:46
Eins og að ferðast með Elvis "Það hefði auðvitað verið betra að ná að vinna þennan leik, en ég er samt mjög ánægður með leik liðsins í dag," sagði Sigurður Ingimundarson, þjálfari íslenska liðsins eftir leikinn í gær. Magnús Þór Gunnarsson var stigahæstur íslenska liðsins með 21 stig, en Hlynur Bæringsson kom næstur með 18 stig og hirti 11 fráköst. Sport 13.10.2005 19:46
Finley til Miami Heat? Michael Finley, fyrrum leikmaður Dallas Mavericks í NBA körfuboltanum, er með lausan samning og eru fjölmörg félög að reyna að fá hann til liðs við sig. Eitt þeirra er Miami Heat en í gær sást hann fara á fund með Pat Riley, yfirmanni körfuboltamála hjá Miami. Sport 13.10.2005 19:44
Christie til Dallas Doug Christie er genginn til lið við Dallas Maveriks í NBA deildinni í körfubolta. Christie, 35 ára, hefur komið víða við á ferli sínum m.a. hjá Los Angeles Lakers, New York Knicks og Sacramento, þar sem hann lék með liði sínu í úrslitum Vesturdeildarinnar. Sport 13.10.2005 19:44
Alda Leif til meistara Hollands Alda Leif Jónsdóttir, fyrirliði ÍS í 1. deild kvenna í körfubolta og fimmta leikjahæsta landsliðskona Íslands frá upphafi, mun spila með hollenska liðinu Den Helder í hollensku úrvalsdeildinni næsta vetur. Sport 13.10.2005 19:43
Fengu sneið af amerísku bökunni Helgi Magnússon og Jakob Sigurðarson hafa stundað nám samhliða því að leika körfuknattleik í Bandaríkjunum undanfarin ár. Fréttablaðið fékk að skyggnast inn í líf íþróttamanns í Háskóla í Suðurríkjunum. Sport 13.10.2005 19:43
Aftur sigur á Hollendingum Ísland sigraði Holland annað kvöldið í röð í vináttuleik í körfubolta í Groningen í Hollandi. Leikurinn í kvöld var framlengdur og sigruðu Íslendingar 82 -75 en staðan eftir venjulegan leiktíma var 71 -71. Stigahæstur í íslenska liðinu var Sigurður Þorvaldsson með 14 stig og næstur kom Jón Arnór Stefánsson með 13 stig. Sport 13.10.2005 19:42
Sigur á Hollendingum Íslendingar sigruðu Hollendinga með 78 stigum gegn 74 í vináttulandsleik í körfuknattleik Groningen í Hollandi í gærkvöldi. Í hálfleik var staðan 37-36 fyrir íslenska liðið. Jón Arnór Stefánsson skoraði 26 stig og Hlynur Bæringsson 22 auk þess sem hann tók 11 fráköst. Logi Gunnarsson skoraði 10 stig og Jakob Sigurðarson 7. Sport 13.10.2005 19:42
Stúlknalandsliðið í áttunda sæti Íslenska stúlknalandsliðið í körfuknattleik tapaði fyrir Portúgölum í tvíframlengdum leik um sjöunda sætið á Evrópumótinu í Bosníu í gær. Portúgalar sigruðu með 80 stigum gegn 78. Helena Sverrisdóttir skoraði 27 stig, tók 17 fráköst og átti 11 stoðsendingar. Íslenska karlalandsliðið mætir Hollendingum í vináttuleik í Hollandi í kvöld. Íslendingar mæta Hollendingum í tveimur leikjum og halda síðan til Kína og keppa tvo leiki við heimamenn. Sport 13.10.2005 19:41
Ísland vann Holland Ísland vann Holland 78-74 í landsleik í körfubolta í Groningen í Hollandi í kvöld. Leikurinn var jafn í fyrri hálfleik og skiptust liðin á að hafa 2-3 stiga forystu allan fyrri hálfleikinn. Staðan í hálfleik var 36-37 fyrir Ísland. Stórleikur Íslands í þriðja leikhluta skóp svo sigurinn en strákarnir unnu þriðja leikhluta 16-30. Sport 13.10.2005 19:41