Körfubolti
205 206 207 208 209 210 211 212 213 … 217 ›
Hvar er varnarleikurinn Grindavík? Hvar er varnarleikurinn Grindvíkingar? Það er ekki von að körfuboltaáhugamenn spyrji sjálfan sig. Grindvíkingar hafa skorað 91,6 stig að meðaltali í leik og aðeins Fjölnismenn hafa skorað fleiri stig. Grindvíkingar hafa samt tapað fleiri leikjum en þeir hafa unnið og eru að berjast fyrir sæti sínu í úrslitakeppninni þangað sem þeir hafa komist síðastliðin tólf tímabil. Sport 13.10.2005 18:47
Kobe með 40 stig Kobe Bryant skoraði 40 stig þegar Los Angeles Lakers sigraði Utah Jazz, 102-95, í NBA-körfuboltanum í nótt. Houston hélt áfram sigurgöngu sinni þegar liðið bar sigurorð af Washington, 123-93. Sport 13.10.2005 18:47
Valur vann nauman sigur Valur vann ÍS í 1. deild karla í körfuknattleik í gær, 98-94. Þór Akureyri er á toppnum í deildinni með 26 stig, Valur er í öðru sæti með 24 og Stjarnan vermir þriðja sætið með 20 stig. Sport 13.10.2005 18:47
Suns lagði Jazz Fimm leikir voru í NBA-körfuboltanum í gærkvöldi. Phoenix Suns vann Utah Jazz í leik þar sem sóknarleikurinn var í fyrirrúmi, en Suns sigraði 136-128. Amare Stoudemire skoraði 42 stig fyrir Phoenix og Steve Nash átti 18 stoðsendingar auk þess sem hann skoraði 19 stig. Phoenix hefur unnið 41 leik en tapað 12. Sport 13.10.2005 18:47
Snæfell enn í öðru sæti Snæfell vann KFÍ 93-80 í Intersport-deild karla í körfuknattleik á Ísafirði í gærkvöldi. Michael Ames skoraði 21 stig fyrir Snæfell en Joshua Helm var langstigahæstur hjá KFÍ, en hann skoraði 37 stig og tók 16 fráköst. Snæfell er í öðru sæti deildarinnar með 26 stig, tveimur á eftir Keflavík sem hefur forystu en KFÍ er á botninum með 2 stig. Sport 13.10.2005 18:47
Stúdínur lögðu KR ÍS lagði KR í 1. deild kvenna í körfuboltanum í kvöld. Lokatölur voru 79-66 en Stúdínur lögðu með þrem stigum í hálfleik, 35-32. Sport 13.10.2005 18:47
Bryant aftur með Lakers Kobe Bryant lék að nýju með Los Angeles Lakers eftir meiðsli. Bryant skoraði 26 stig en það dugði ekki til gegn Cleveland því Lakers tapaði 103-89. Þá vann Chicago Bulls Minnesota 87-83. Kevin McHale stjórnaði Minnesota en Flip Saunders þjálfari var rekinn á laugardag. Sport 13.10.2005 18:47
Karl Malone hættur Körfuknattleiksmaðurinn Karl Malone lagði í gær skóna á hilluna. Hann lék í 18 ár með Utah Jazz en náði aldrei að vinna NBA-titilinn. Malone, sem er 41 árs, lék með Los Angeles Lakers á síðustu leiktíð, en hann er annar stigahæsti leikmaður sögunnar í NBA-deildinni. Malone skoraði 36.928 stig og var 1460 stigum frá því að bæta met Kareems Abduls Jabbars. Sport 13.10.2005 18:47
Fjölnir og Njarðvík mætast í kvöld Fjölnir og Njarðvík eigast við í unglingaflokki karla í körfuknattleik í undanúrslitum bikarsins í kvöld. Sport 13.10.2005 18:47
Snæfell sigraði á Ísafirði Einn leikur fór fram í Intersportdeildinni í kvöld er Snæfell heimsótti KFÍ á Ísafirði. Gestirnir leiddu með þrem stigum í hálfleik, 49-46, og unnu að lokum 13 stiga sigur, 93-80. Sport 13.10.2005 18:47
Setti met í bikarúrslitaleiknum Helena Sverrisdóttir var allt í öllu þegar hið unga lið Hauka tryggði sér bikarmeistaratitilinn og var aðeins einu frákasti frá því að verða fyrsta konan til þess að ná þrefaldri tvennu í bikarúrslitaleik. Sport 13.10.2005 18:47
Njarðvík yfir í hálfleik Njarðvíkingar hafa yfir í hálfleik gegn Fjölni í úrslitaleik bikarkeppni karla í körfuknattleik, 43-39. Njarðvíkingar komu sterkir til leiks og skoruðu átta fyrstu stig leiksins en þá tóku Fjölnismenn leikhlé og endurskipulögð leik sinni. Fjölnismenn komust síðan yfir um miðbik hálfleiksins en Njarðvíkingar sigu fram úr undir lokin. Sport 13.10.2005 18:46
Lok, lok og læs hjá Njarðvík Njarðvíkingar tóku Fjölnismenn í kennslustund í varnarleik í Laugardalshöllinni í gær þegar liðin mættust í bikarúrslitaleiknum í karlaflokki í körfu. Njarðvíkingar fóru með sigur af hólmi, 90-64, eftir að hafa haft yfir, 43-39, í hálfleik. Sport 13.10.2005 18:46
Helena fór fyrir Haukunum Helena Sverrisdóttir lagði grunninn að sigri Hauka á Grindavík í hádramatískum úrslitaleik kvenna í gær með frábærum alhliða leik. Helena skoraði 22 stig, gaf ellefu stoðsendingar og tók níu fráköst og stóðst pressuna á ögurstundu þegar hún setti niður tvö vítaskot þegar 5 sekúndur voru eftir af leiknum. Sport 13.10.2005 18:46
Saunders rekinn frá Minnesota Forráðamenn Minnesota Timberwolves í NBA-deildinni ráku í gær aðalþjálfara liðsins, Flip Saunders, en Saunders hefur þjálfað Minnesota síðan 1995, nær allar götur síðan félagið var stofnað. Forráðamenn Wolves misstu þolinmæðina þegar liðið, sem komst í úrslt Vesturdeildarinnar í fyrra, tapaði með 18 stigum fyrir Utah Jazz í fyrrinótt. Sport 13.10.2005 18:46
Haukar bikarmeistarar Haukastúlkur urðu í dag bikarmeistarar er þær báru sigurorð af Grindavík í æsispennandi úrslitaleik, 72-69. Helena Sverrisdóttir leiddi Hauka til sigurs með 22 stig og tveimur vítaskotum á ögurstundu en Myriah Spence var atkvæðamest í liði Grindavíkur með 33 stig. Sport 13.10.2005 18:46
Erfiðir mótherjar á EM í sumar <font face="Helv"> Íslenska körfuboltalandsliðið skipað leikmönnum sextán ára og yngri, sem vann það frækna afrek að bera sigur úr býtum í B-deild Evrópukeppninnar síðasta sumar á erfitt verkefni fyrir höndum í A-deildinni á þessu ári en dregið var í riðla í Prag í Tékklandi í gær. </font> Sport 13.10.2005 18:46
Iverson með 60 stig Allen Iverson, leikmaður Philadelphia 76ers í NBA-deildinni, setti persónulegt met í nótt er hann skoraði heil 60 stig í sigurleik gegn Orlando Magic. Iverson, sem er stigahæsti leikmaður NBA í ár, átti áður 58 stig best en hann gaf einnig 6 stoðsendingar og stal 6 boltum í leiknum. Sport 13.10.2005 18:46
San Antonio vann New Jersey San Antonio vann New Jersey, 101-91, í NBA-körfuboltanum í nótt. Houston sigraði Indiana, 91-83, Boston vann New York, 111-94 og Dallas sigraði Sacramento, 115-113. Sport 13.10.2005 18:46
Engill til ÍS Kvennalið ÍS hefur fengið liðsstyrk fyrir lokasprettinn í 1. deild kvenna í körfubolta því liðið hefur fengið til sín bandaríska framherjann Angel Mason sem mun spila með liðinu út tímabilið. Mason mun leika sinn fyrsta leik gegn KR í kvöld. Sport 13.10.2005 15:32
Skemmtilegasti leikur vetrarins Haukar og Grindavík munu etja kappi í Laugardalshöll í dag en þá ráðast úrslitin í bikarkeppni KKÍ & Lýsingar í körfuknattleik. Haukastúlkur eru orðnar langeygar eftir bikartitli en þær báru sigur úr býtum árið 1984. Grindvíkingar hafa hins vegar aldrei unnið titilinn en liðið komst í úrslit árið 1994 en mátti lúta í lægra haldi fyrir nágrönnum sínum í Keflavík. Sport 13.10.2005 15:32
Níu stiga sigur Keflvíkinga Keflvíkingar tróna á toppnum í Intersport-deildinni í körfubolta með 28 stig en Keflavík sigraði KR, 88-79, í gær. Nick Bradford var stigahæstur í liði Keflavíkur með 25 stig og Magnús Gunnarsson skoraði 22. Sport 13.10.2005 15:32
Karl Malone hættur í NBA Malone hafði fullan hug á að leika með San Antonio Spurs í vetur áður en hann komst að þeirri niðurstöðu að ferillinn væri á enda. Sport 13.10.2005 15:32
Karl Malone hættur Bandaríski körfuboltasnillingurinn Karl Malone hefur ákveðið að hætta spilamennsku og mun hann tilkynna það á blaðamannafundi á sunnudaginn að því er fram kom í bandarískum fjölmiðlum síðdegis. Malone er án efa einn öflugasti framherjinn í sögu NBA körfuboltans enda í 2. sæti yfir skorhæstu leikmenn í sögu NBA deildarinnar. Sport 13.10.2005 15:32
Detroit sigraði Lakers örugglega Aðeins þrír leikir voru í NBA-körfuboltanum í nótt. Orlando vann Atlanta, 101-96, Detroit sigraði Los Angeles Lakers með 103 stigum gegn 81 og Seattle bar sigurorð af Sacramento, 115-107. Sport 13.10.2005 15:32
Reggie Miller hættir í sumar Reggie Miller, leikmaður Indiana Pacers í NBA-körfuboltanum, hyggst leggja skóna á hilluna eftir þetta tímabil, ef marka má orð systur hans, Cheryl Miller sem starfar sem íþróttaþulur hjá sjónvarpsstöðinni TNT. Sport 13.10.2005 15:32
Munnlegt samkomulag við Shaw Körfuknattleikslið Hauka í intersportdeildinni hafa gengið frá munnlegu samkomulagi um að Bandaríkjamaðurinn Demetric Shaw leiki með liðinu það sem eftir lifir tímabils. Sport 13.10.2005 15:32
Fjölnir ætlar sér að fylla Höllina Fjölnismenn sætta sig ekki við neitt annað en að Laugardalshöllin verði full út úr dyrum á úrslitaleiknum í Bikarkeppni KKÍ og Lýsingar sem fram fer næsta sunnudag en þetta er fyrsti úrslitaleikurinn í sögu félagsins. Sport 13.10.2005 18:46
Úrslit úr körfunni í kvöld Þrír leikir fóru fram í úrvaldsdeild karla í körfuknattleik í kvöld. Haukar sigruðu ÍR-inga nokkuð örugglega í Hafnafirði í kvöld með 107 stigum gegn 73. Í keflavík sigruðu heimamenn KR 88-79 og á Sauðakróki sigruðu Grindvíkingar Tindastól 102-101 í miklum spennuleik. Sport 13.10.2005 18:46
Leik KFÍ og Snæfells frestað Leik KFÍ og Snæfells í úrvaldsdeild karla í körfuknattleik hefur verið frestað, en Snæfellingar komust ekki vestur vegna veðurs. Ekki hefur verið ákveðinn nýr leiktími. Sport 13.10.2005 18:46