Meistaradeildin
240 241 242 243 244 245 246 247 248 … 274 ›
Benitez: Við töpuðum fyrir frábæru liði Rafa Benitez var að vonum súr í bragði eftir að hans menn í Liverpool töpuðu fyrir AC Milan í úrslitaleik Meistaradeildarinnar í kvöld. "Við töpuðum gegn hágæða knattspyrnuliði með frábæra leikmenn innanborðs. Við vorum ágætir í fyrri hálfleik en fengum á okkur klaufalegt mark. Eftir það urðum við að pressa hærra á vellinum og þeir höfðu getu til að refsa okkur. Maður verður að nýta öll færi sem maður fær í svona leik," sagði Benitez. Fótbolti 23.5.2007 21:21
Kuyt: Þeir voru heppnir Dirk Kuyt skoraði mark Liverpool í kvöld þegar liðið lá 2-1 fyrir AC Milan í úrslitaleik Meistaradeildarinnar. "Þeir voru heppnir en við höfðum á sama hátt ekki heppnina með okkur. Við vorum betri í fyrri hálfleik en þeir voru stálheppnir að skora markið í fyrri hálfleiknum. Við fengum nokkur sæmileg færi en höfðum ekki heppnina með okkur í kvöld - lukkan var á bandi Milan að þessu sinni," sagði Kuyt í samtali við Sky. Fótbolti 23.5.2007 21:03
AC Milan er Evrópumeistari 2007 AC Milan frá Ítalíu fagnaði í kvöld sigri í Meistaradeild Evrópu með 2-1 sigri á Liverpool í úrslitaleik keppninnar í Aþenu í Grikklandi. Markahrókurinn Pippo Inzaghi kom Milan á bragðið á lokaandartökum fyrri hálfleiks þegar aukaspyrna Andrea Pirlo hrökk af höndinni á honum og í netið. Fótbolti 23.5.2007 20:34
Milan er yfir í hálfleik AC Milan hefur yfir 1-0 þegar flautað hefur verið til hálfleiks í úrslitaleik Meistaradeildar Evrópu í knatttspyrnu. Fyrri hálfleikur var mjög jafn, en það var markahrókurinn Pippo Inzaghi sem skoraði mark ítalska liðsins á 45. mínútu þegar aukaspyrna Andrea Pirlo hrökk af höndinni á honum og í netið. Fá færi litu dagsins ljós í fyrri hálfleiknum en Liverpool var þó öllu sterkari aðilinn. Fótbolti 23.5.2007 19:34
Byrjunarliðin klár í Aþenu Nú er búið að tilkynna byrjunarliðin í úrslitaleik Meistaradeildarinnar milli Liverpool og AC Milan í Aþenu. Bæði lið spila með þétta miðju og einn framherja. Hér fyrir neðan má sjá byrjunarliðin og nokkra mola um úrslitaleikinn sem senn er að hefjast. Fótbolti 23.5.2007 18:05
Upphitun fyrir úrslitaleik Milan og Liverpool í kvöld AC Milan og Liverpool mætast í kvöld í úrslitaleik Meistaradeildar Evrópu í annað sinn á tveimur árum. Arnar Björnsson íþróttafréttamaður lýsir leiknum beint frá Aþenu klukkan 18:45 í kvöld en upphitun fyrir leikinn hefst á Sýn klukkan 18:00. Smelltu á hnappinn hér fyrir neðan til að sjá upphitun Stöðvar 2 í hádeginu. Fótbolti 23.5.2007 14:19
Gerrard segir Liverpool ætla að snúa heim sem hetjur Steven Gerrard, fyrirliði Liverpool, segir leikmenn liðsins staðráðna í að snúa heim frá Aþenu sem hetjur. Liverpool mætir AC Milan í úrslitaleik meistaradeildarinnar í kvöld, rétt eins og fyrir tveimur árum síðan, en þá vann liðið sigur í vítaspyrnukeppni. Fótbolti 23.5.2007 10:46
Crouch: Carragher er enn að stríða Lampard Peter Crouch, framherji Liverpool, segir að Jamie Carragher hafi strítt Chelsea-mönnunum í enska landsliðinu mikið eftir að Liverpool varð Evrópumeistari árið 2005. Hann vonast til að geta gert hið sama þegar enska landsliðið kemur saman fyrir leikinn gegn Brasilíumönnum þann 1. júní. Fótbolti 22.5.2007 20:15
Ancelotti: Gerrard bullar Carlo Ancelotti, þjálfari Milan, segir Steven Gerrard hafa verið að bulla þegar hann sagði að Milan hafi byrjað að fagna sigri í Meistaradeildinni í hálfleik úrslitaleiks liðanna árið 2005. Hann segir jafnframt að tapið þá eftir að hafa verið 3-0 yfir séu ekki stærstu mistök sín á ferlinum og bendir á annað áhugavert atriði í því sambandi. Fótbolti 22.5.2007 19:59
Ancelotti heimtar yfirvegun Carlo Ancelotti, þjálfari AC Milan, vill ekki að leikmenn hans líti á úrslitaleikinn í Meistaradeildinni annað kvöld sem tækifæri til að ná fram hefndum á Liverpool síðan í úrslitaleik keppninnar fyrir tveimur árum. Hann vill heldur sjá sína menn einbeitta og yfirvegaða í Aþenu. Fótbolti 22.5.2007 14:31
Bellamy þráir að spila úrslitaleikinn Craig Bellamy, hinn velski framherji Liverpool, segist munu verða eyðilagður leikmaður, fari svo að hann fái ekki að taka neinn þátt í úrslitaleiknum við AC Milan í Meistaradeildinni á miðvikudagskvöldið. Bellamy hefur ekki verið inn í myndinni hjá stjóranum Rafa Benitez síðustu vikur. Fótbolti 21.5.2007 13:32
Hefndin drífur leikmenn Milan áfram Ryan Giggs, leikmaður Man. Utd., segir ómögulegt að spá fyrir um hver muni standa uppi sem sigurvegari í Meistaradeild Evrópu í ár. Giggs hallast þó frekar að sigri AC Milan gegn Liverpool, þar sem leikmenn ítalska liðsins þrái ekkert heitar en að ná fram hefndum frá því í Istanbúl fyrir tveimur árum. Fótbolti 20.5.2007 15:32
Yrði fínt að fara í vítaspyrnukeppni Xabi Alonso, hinn spænski miðjumaður Liverpool, segir að leikmenn liðsins vilji gjarnan að úrslitaleikurinn gegn AC Milan í Meistaradeildinni ráðist í vítaspyrnukeppni. Alonso segir að markvörðurinn Pepe Reina sé besti vítabani í heiminum í dag og með hann á milli stanganna geti ekki mörg lið staðist Liverpool snúning í vítaspyrnukeppni. Fótbolti 20.5.2007 15:25
Zenden meiddur – Kewell í byrjunarliðið? Hollenski vængmaðurinn Boudewijn Zenden styðst nú við hækjur eftir að hafa orðið fyrir meiðslum í æfingabúðum Liverpool í La Manga á Spáni, þar sem liðið undirbýr sig nú af kappi fyrir úrslitaleikinn gegn AC Milan í Meistaradeildinni á miðvikudag. Ólíklegt er að Zenden verði orðinn leikfær og því hafa dyrnar í byrjunarliðið opnast fyrir Harry Kewell. Fótbolti 19.5.2007 17:03
Kaka: Mikilvægasti leikurinn á ferlinum Brasilíski miðjumaðurinn Kaka hjá AC Milan segir að leikurinn gegn Liverpool í Meistaradeildinni á miðvikudaginn sé sá mikilvægasti hingað til á sínum ferli. Kaka var í liðinu sem beið lægri hlut gegn Liverpool í úrslitum Meistaradeildarinnar fyrir tveimur árum og vill með engu móti endurupplifa þá tilfinningu. Fótbolti 19.5.2007 16:59
Reina getur bætt fyrir syndir föður síns Þegar Liverpool mætir AC Milan í úrslitaleik Meistaradeildar Evrópu í Aþenu síðar í mánuðinum mun Pepe Reina, markverði Liverpool, gefast tækifæri til að bæta fyrir mistök sem faðir hans gerði í sams konar leik fyrir 33 árum. Fótbolti 4.5.2007 22:07
Met Spánar verður jafnað Annaðhvort Ítalía eða England mun jafna met Spánar yfir flesta Evrópumeistaratitla félagsliða þegar AC Milan og Liverpool mætast í úrslitum Meistaradeildar Evrópu síðar í mánuðinum. Fótbolti 4.5.2007 22:07
Liverpool er eins og ítalskt lið fyrir tíu árum Gennaro Gattuso, leikmaður AC Milan, segir að Manchester United sé hæfileikara lið en Liverpool, sem mætir Milan í úrslitum Meistaradeildar Evrópu í Aþenu. Fótbolti 4.5.2007 22:05
Fegnir að fá ekki enskan úrslitaleik Forráðamenn Knattspyrnusambands Evrópu segja það gott að ekki verði enskur úrslitaleikur í Meistaradeildinni í Aþenu þann 23. maí. Um tíma leit út fyrir að liðin í úrslitum yrðu bæði frá Englandi, en AC Milan setti þar stórt strik í reikninginn með stórsigri á Manchester United í gær. Fótbolti 3.5.2007 16:43
Gerrard: Við erum martröð allra liða Steven Gerrard, fyrirliði Liverpool, segist ekki geta beðið eftir því að fara með lið sitt í annan úrslitaleik Meistaradeildarinnar á tveimur árum. Hann segir það martröð fyrir hvaða lið sem er að mæta Liverpool í keppninni því þeir rauðu gefist aldrei upp. Fótbolti 3.5.2007 02:02
San Zero Breskir fjölmiðlar buðu upp á skrautlegar fyrirsagnir eftir leik AC Milan og Manchester United í gær þar sem enska liðið féll úr keppni eftir 3-0 tap. The Sun bauð upp á fyrirsögnina "San Zero" og vísaði þar í markatöluna og máttlausa frammistöðu United. Sir Alex Ferguson knattspyrnustjóri viðurkenndi að hans menn hefðu verið slakir og er enn fúll yfir því að þurfa að mæta grönnum liðsins í Manchester City strax á laugardaginn. Fótbolti 3.5.2007 01:41
Ancelotti: United er betra lið en Liverpool Carlo Ancelotti þjálfari Milan var kátur með sigur sinna manna á Manchester United í Meistaradeildinni í kvöld. Nú getur Milan náð fram hefndum á Liverpool eftir hrunið í Istanbul fyrir tveimur árum. Fótbolti 2.5.2007 21:38
Ferguson: Milan verðskuldaði sigurinn Sir Alex Ferguson, stjóri Manchester United, viðurkenndi að AC Milan hefði verið betra liðið í kvöld þegar lið hans féll úr keppni í Meistaradeildinni eftir 3-0 tap í Mílanó. Hann sagði sína menn aldrei hafa verið sérstaklega líklega til að skora. Fótbolti 2.5.2007 21:28
Milan og Liverpool mætast í úrslitum Það verður AC Milan sem leikur til úrslita gegn Liverpool í Meistaradeild Evrópu í knattspyrnu. Ítalska liðið vann í kvöld sannfærandi 3-0 sigur á Manchester United í síðari leik liðanna í undanúrslitum á San Siro. Milan og Liverpool mættust í úrslitaleik keppninnar fyrir tveimur árum. Fótbolti 2.5.2007 20:32
3-0 fyrir Milan Nú stefnir í að úrslitaleikurinn í Meistaradeild Evrópu þetta árið verði endurtekning á leiknum í Istanbul árið 2005, því Alberto Gilardino var að koma AC Milan í 3-0 gegn Manchester United á San Siro. Gestirnir þurfa nú að skora tvö mörk á tíu mínútum til að tryggja framlengingu. Fótbolti 2.5.2007 20:21
Milan hefur 2-0 yfir í hálfleik AC Milan er í mjög góðum málum þegar flautað hefur verið til hálfleiks í viðureign liðsins gegn Manchester United í Meistaradeildinni. Kaka kom heimamönnum yfir eftir ellefu mínútur og eftir hálftíma leik bætti Clarence Seedorf við öðru marki. Manchester United þarf nú að skora tvö mörk til að eiga möguleika á að ná í úrslitin. Fótbolti 2.5.2007 19:33
2-0 fyrir Milan AC Milan er komið í 2-0 gegn Manchester United á San Siro. Það var Clarence Seedorf sem skoraði annað markið á 30. mínútu eftir að Kaka skoraði fyrsta markið á 11. mínútu. Gestirnir frá Englandi eru nú komnir í vond mál og þurfa að skora tvö mörk til að komast áfram. Fótbolti 2.5.2007 19:15
Kaka kemur Milan yfir Brasilíski snillingurinn Kaka hefur komið AC Milan yfir 1-0 gegn Manchester United á San Siro. Markið skoraði hann með laglegu skoti í bláhornið á elleftu mínútu leiksins og heimamenn mjög ákveðnir í byrjun. Fótbolti 2.5.2007 19:04
Rooney einn í framlínu United Nú er búið að tilkynna byrjunarliðin fyrir síðari leik AC Milan og Manchester United í undanúrslitum Meistaradeildarinnar sem hefst klukkan 18:45 í beinni á Sýn. Wayne Rooney er einn í framlínu enska liðsins og Nemanja Vidic kemur aftur inn í miðvarðarstöðuna. Fótbolti 2.5.2007 18:37
Ferguson: Við þurfum að eiga frábæran leik Nú styttist í að flautað verði til leiks í síðari undanúrslitaleik AC Milan og Manchester United í Meistaradeild Evrópu. Leikurinn verður að sjálfssögðu sýndur í beinni útsendingu á sjónvarpsstöðinni Sýn og hefst útsending klukkan 18:30. Sir Alex Ferguson segir sína menn þurfa á algjörum toppleik að halda til að komast í úrslitin. Fótbolti 2.5.2007 16:45