Viðskipti erlent
217 218 219 220 221 222 223 224 225 … 334 ›
Heimsmarkaðsverð á olíu hríðlækkar Heimsmarkaðsverð á olíu hefur hríðlækkað undanfarna daga. Brent olían er komin niður í 102,5 dollara á tunnuna en þegar verð hennar var hæst í febrúar s.l. náði það 127 dollurum á tunnuna. Viðskipti erlent 9.8.2011 07:48
Markaðir rétta aðeins úr kútnum Óróinn á fjármálamörkuðum heldur áfram og hefur verð á hlutabréfum lækkað mikið í Asíu í morgun en verðið fór þó hækkandi við lok viðskipta. Evrópumarkaðir voru einnig nokkuð stöðugir við opnun. Viðskipti erlent 9.8.2011 07:44
Markaðir hrynja Hlutabréfverð í Bandaríkjunum hefur ekki verið lægra í rúmlega tvö ár, eða síðan í desember 2008. Þegar markaðir lokuðu í dag hafði Dow Jones-vísitalan lækkað 632 stig eða um 5,5 prósent. Viðskipti erlent 8.8.2011 20:40
Lækkun á Wall Street eins og spáð hafði verið Verð á hlutabréfum lækkaði við opnun markaða í Bandaríkjunum í dag eins og búist hafði verið við. Matsfyrirtækið Standard & Poors lækkaði lánshæfiseinkunn Bandaríkjanna í fyrsta sinn í sögunni á föstudaginn eftir að markaðir lokuðu og spár um lækkun gengu eftir. Dow Jones vísitalan lækkaði um tæp tvö prósent í fyrstu viðskiptum dagsins klukkan hálf tvö að íslenskum tíma og Nasdaq vísitalan lækkaði um 3,35 prósent. Viðskipti erlent 8.8.2011 13:46
Óttast að bandarísk hlutabréf hrynji Hlutabréfamarkaðir í Evrópu hafa lækkað í dag en þó ekki eins mikið og óttast var. Yfirlýsingar Seðlabanka Evrópu um að kaupa skuldabréf verst stöddu ríkjanna réð þar mestu um. Óttast er að bandarísk hlutabréf hrynji við opnun markaða klukkan hálf þrjú. Mikið hefur verið um sviptingar á fjármálamörkuðum í morgun. Í nótt sýndu markaðir í Asíu mikla lækkun, til dæmis lækkaði Nikkei vísitalan í Japan um 2,4 prósent og verð á hlutabréfum í Hong Kong, Suður-Kóreu og á Indlandi lækkaði um þrjú til fimm prósent. Þegar hlutabréfamarkaðir í Evrópu opnuðu klukkan sjö í morgun lækkuðu helstu vísitölur álfunnar til að byrja með en síðan dróg úr lækkuninni þegar líða tók á morguninn og var jafnvel vart við hækkun á sumum mörkuðum. Talið er að yfirlýsingar Seðlabanka Evrópu þar sem gefið er til kynna að bankinn ætli sér að kaupa upp skuldir ríkissjóða álfunnar sem verst eru staddir hafi haft einhver áhrif á órólega fjárfesta. Þá hafa G7 ríkin lýst yfir sameiginlegu átaki til að viðhalda fjármálastöðugleika og efnahagsbata. Yfirlýsingarnar virðast hins vegar ekki hafa dugað til en nú fyrir fréttir sýndu allar helstu vísitölur í Evrópu lækkun um eitt til tvö og hálft prósent en um þrjár klukkustundir eru þar til markaðir loka. Viðskipti erlent 8.8.2011 12:13
Evrópumarkaðir taka við sér Hlutabréf á mörkuðum um allan heim hafa lækkað í morgun eftir að Standard og Poors lækkuðu lánshæfiseinkunn Bandaríkjanna á föstudaginn var. Í Evrópu hækkaði verðið þó þegar liðið hefur á morguninn. Viðskipti erlent 8.8.2011 07:39
Verðfall á mörkuðum í Asíu Hlutabréf á mörkuðum í Asíu og í Ástralíu lækkuðu mikið í morgun en þetta voru fyrstu markaðirnir til að opna eftir að Standard & Poors lækkuðu lánshæfiseinkunn Bandaríkjanna á föstudaginn. Viðskipti erlent 8.8.2011 06:59
Bresk sveitarfélög fá um 90% til baka Nú er búist við því að sveitastjórnir sem lögðu peninga inn á reikninga íslenskra banka í Bretlandi fyrir bankahrun muni fá um 90% af fé sínu til baka. Viðskipti erlent 7.8.2011 13:57
Hittast á neyðarfundi til að ræða stöðuna á mörkuðum Stjórn Seðlabanka Evrópu mun koma saman á neyðarfundi í dag til þess að ákveða hvort bankinn eigi að kaupa skuldir ítalska ríksins til þess að reyna að ná stöðugleika á fjármálamörkuðum. Robert Peston, viðskiptafréttamaður hjá BBC fréttastofunni, segir að stjórnin sé klofin í afstöðu sinni til málsins. Viðskipti erlent 7.8.2011 10:58
Lánshæfismat Bandaríkjanna lækkað Matsfyrirtækið Standard & Poor's lækkaði lánshæfismat bandaríska ríkisins í gærkvöld. Matið var fært úr efsta þrepi, eða AAA í næstefsta þrep sem er AA+, með neikvæðum horfum. Þetta er í fyrsta skipti í sögunni sem lánshæfismat Bandaríkjanna er lækkað. Ástæðan er áhyggjur af hallarekstri Bandaríkjanna. Viðskipti erlent 6.8.2011 07:30
Obama: Við munum komast í gegnum þetta Barack Obama, forseti Bandaríkjanna, fagnar nýjum tölum um atvinnuþáttöku/atvinnuleysi sem birtust í Bandaríkjunum í dag. Hann leggur áherslu á að skapa þurfi enn fleiri störf til þess að efnahagslífið blómstri. Viðskipti erlent 5.8.2011 21:33
Hlutabréfamarkaðir víðast óstöðugir Það er ennþá óstöðugleiki á fjármálamörkuðum í heiminum, þrátt fyrir að nýjar tölur um atvinnuþátttöku/atvinnuleysi í Bandaríkjunum séu betri en spáð var. Viðskipti erlent 5.8.2011 20:30
Dregur úr falli evrópskra hlutabréfamarkaða Tekið er að draga úr falli evrópskra hlutabréfamarkaða en fréttavefur breska ríkisútvarpsins segir fjárfesta hafa þungar áhyggur af skuldakreppu á evrusvæðinu og veikri stöðu bandaríska hagkerfisins. Þegar hlutbréfamarkaðir í evrópskum kauhöllum opnuðu fyrir viðskiptum klukkan sjö í morgun lækkuðu allar helstu hlutbréfavísitölur. Þýska vísitalan DAX hefur lækkað um rúm tvö prósent, Nasdaq hefur lækkað um rúm fimm prósent og í Lundúnum lækkaði FTSE vísitalan um tvö komma tuttugu og átta prósent. Viðskipti erlent 5.8.2011 12:08
Vefsíða Financial Times hrundi Óróinn á hlutabréfamörkuðum í Evrópu þar sem vísitölur sveiflast upp og niður, þó aðallega niður, frá mínútu til mínútu hafa valdið mikilli eftirspurn eftir nýjustu fjármálafréttunum. Af þeim sökum hrundi vefsíði blaðsins Financial Times um tíma í morgun þar sem hún gat ekki annað umferðinni inn á hana. Viðskipti erlent 5.8.2011 11:02
Olíuverð aftur á uppleið Töluvert hefur dregið úr niðursveiflunni á heimsmarkaðsverði á olíu síðan í morgun. Brent olían er komin í 108 dollara fyrir tunnuna en snemma í morgun hafði verðið hrapað niður í 104 dollara. Viðskipti erlent 5.8.2011 10:15
Silfuræði runnið á almenning í Danmörku Miklar hækkanir á heimsmarkaðsverði á silfri í ár hafa valdið því að silfuræði er runnið á frændur vora Dani. Viðskipti erlent 5.8.2011 08:14
Stjórn Pandóru hélt upplýsingum leyndum Í ljós er komið að stjórn skartgripaframleiðendans Pandóru í Danmörku hélt leyndum viðkvæmum markaðsupplýsingum í uppgjöri sínu fyrir fyrsta ársfjórðung ársins. Viðskipti erlent 5.8.2011 08:05
Tæplega 46 milljónir Bandaríkjamanna fá matarmiða Aldrei í sögunni hafa fleiri Bandaríkjamenn þurft á matarmiðum að halda frá hinu opinbera til að geta átt í sig og á. Alls þiggja tæplega 46 milljónir Bandaríkjamanna slíka matarmiða. Viðskipti erlent 5.8.2011 07:47
Martröðin heldur áfram á hlutabréfamörkuðum Martröðin á hlutabréfamörkuðum heimsins hélt áfram í nótt en þá hröpuðu vísitölur á Asíumörkuðum. Það kom í kjölfar versta dagsins á Wall Street síðan í botni fjármálakreppunnar fyrir rúmum tveimur og hálfu ári síðan. Viðskipti erlent 5.8.2011 07:28
Heimsmarkaðsverð á olíu í frjálsu falli Heimsmarkaðsverð á olíu er nú í frjálsu falli svipað og hlutabréfamarkaðir heimsins. Tunnan af Brent olíunni er komin niður í 105,6 dollara og hefur þar með öll hækkun ársins á henni gengið til baka. Viðskipti erlent 5.8.2011 07:21
Grunuð um brot í starfi Franskur dómstóll ætlar að rannsaka embættisverk Christine Lagarde, nýs framkvæmdastjóra Alþjóðagjaldeyrissjóðsins, frá þeim tíma sem hún var fjármálaráðherra Frakklands. Lagarde er grunuð um að hafa þrýst á fyrrverandi ríkisbankann Credit Lyonnais um að fallast á bindandi málamiðlun í deilu við Adidas-auðkýfinginn Bernard Tapielle sem hann hafði tapað fyrir rétti. Viðskipti erlent 5.8.2011 05:15
Mikil lækkun á hlutabréfamörkuðum Hlutabréfamarkaðir víða um heim hríðféllu í dag og er ástæðan talin vera sú að fjárfestar hafi áhyggjur af því að hagvöxtur verði hægari en áður var talið. Menn hafa líka áhyggjur af skuldavanda Evrópuríkja, svo sem Ítalíu og Spánar. Ástandið er grafalvarlegt og vestanhafs óttast menn að önnur dýfa fylgi á eftir kreppunni 2007 og 2008. Viðskipti erlent 4.8.2011 16:23
Barroso segir að evrukreppan smiti út frá sér Jose Manuel Barroso, forseti framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins, varar við því að skuldakreppa evruríkjanna sé að breiðast út til ríkja utan myntbandalagsins. Í bréfi til ríkisstjórna innan Evrópusambandsins hvatti hann til þess að evrusvæðinu yrði veittur fullur stuðningur. Viðskipti erlent 4.8.2011 15:35
Reynir að róa markaði Silvio Berlusconi, forsætisráðherra Ítalíu, reynir nú að róa markaði en skuldastaða Ítalíu er slæm. Gagnrýnendur forsætisráðherrans segja hann sjálfan hlut vandans. Viðskipti erlent 4.8.2011 13:50
Grunur um að framkvæmdastjóri AGS hafi misbeitt valdi Franskur dómstóll rannsakar nú hvort Christine Lagarde, nýr yfirmaður Alþjóðagjaldeyrissjóðsins, hafi misnotað vald sitt í stöðu fjármálaráðherra Frakklands. Lagarde er sökuð um að hafa þrýst á banka í deilum við kaupsýslumann sem studdi kosningabaráttu Nicolas Sarkozy, forseta Frakklands. Fréttaritari BBC segir að málið sé mjög neyðarlegt fyrir Lagarde. Einungis um mánuður er síðan hún tók við embætti framkvæmdastjóra Alþjóðagjaldeyrissjóðsins eftir að Dominique Strauss Kahn hætti. Viðskipti erlent 4.8.2011 12:53
Óbreyttir vextir á Bretlandi þrátt fyrir verðbólguskot Englandsbanki hefur ákveðið að halda stýrivöxtum sínum óbreyttum í 0,5% þrátt fyrir mikið verðbólguskot í landinu. Verðbólgan á Bretlandi mælist nú yfir 4% sem er tvöfalt hærra en verðbólgumarkmið bankans er. Viðskipti erlent 4.8.2011 11:21
Vextir hækka á spænskum skuldabréfum Vextir á spænskum ríkisskuldabréfum hækkuðu töluvert í útboði sem fór fram í morgun. Skuldabréf til þriggja og fjögurra ára seldust fyrir samtals rúmlega 3,3 milljarða evra eða um 545 milljarða kr. Viðskipti erlent 4.8.2011 09:38
Telja útilokað að forða Ítalíu frá skuldakreppu Það er nánast útilokað að forða því að Ítalía lendi í skuldakreppu. Aðeins mjög mikill hagvöxtur í landinu getur komið í veg fyrir slíkt og hann er ekki í sjónmáli. Viðskipti erlent 4.8.2011 07:51
Randi Zuckerberg hættir hjá Facebook Randi Zuckerberg markaðsstjóri Facebook hefur látið af störfum hjá vefsíðunni en Randi er systir stofnenda Facebook, Mark Zuckenbergar. Viðskipti erlent 4.8.2011 07:46
Hamborgarar, varalitur og nærbuxur gefa mynd af hagkerfinu Big Mac vísitalan fagnar tuttugu og fimm ára afmæli sínu um þessar mundir, en vísitalan er einföld leið til að meta hvort gjaldmiðlar séu rétt skráðir hver gagnvart öðrum. Vísitalan ruddi brautina fyrir fjölda óvenjulegra mælistikna á hagkerfið. Viðskipti erlent 3.8.2011 12:30