Andlát

Andlát

Fréttamynd

Forrest Gump rokksins allur

Enski gítarleikarinn og rokkgoðsögnin Dave Mason er látinn, 79 ára að aldri. Mason var einn af stofnmeðlimum proggrokksveitarinnar Traffic, spilaði undir á plötum Jimi Hendrix, George Harrison og Rolling Stones, túraði með Eric Clapton og samdi slagarana „Feelin’ Alright?“ og „We Just Disagree“.

Tónlist

Fréttir í tímaröð

Fréttamynd

Patrick Muldoon er látinn

Bandaríski leikarinn og framleiðandinn Patrick Muldoon lést sviplega á sunnudaginn, 57 ára að aldri, eftir að hafa fengið hjartaáfall. Muldoon er þekktastur fyrir leik sinn í sápuóperunum Days of Our Lives og Melrose Place og költklassíkinni Starship Troopers.

Bíó og sjónvarp
Fréttamynd

Leikarinn Michael Patrick látinn eftir bar­áttu við MND

Norður-írski leikarinn og handritshöfundurinn Michael Patrick er látinn, 35 ára að aldri, eftir rúmlega tveggja ára baráttu við taugasjúkdóminn MND. Patrick skrifaði sjónvarpsþættina My Left Nut sem byggðu á hans eigin reynslu, lék á sviði og smáhlutverk í hinum ýmsu þáttum, þar á meðal í sjöttu seríu Krúnuleikanna.

Bíó og sjónvarp
Fréttamynd

Goð­sögn fallin frá

Rúmenski knattspyrnuþjálfarinn Mircea Lucescu er fallinn frá eftir baráttu við skammvinn veikindi. Hann lést á spítala í Búkarest í dag, áttræður að aldri.

Fótbolti
Fréttamynd

Eduard Koksharov fallinn frá

Fyrrverandi leikmaður og þjálfari rússneska karlalandsliðsins í handbolta, Eduard Koksharov, lést í dag. Hann var fimmtugur að aldri.

Handbolti
Fréttamynd

Pétur Marteinn Páll Urbancic er látinn

Pétur Marteinn Páll Urbancic, fyrrverandi starfsmaður Seðlabanka Íslands, tónlistarmaður, leiðsögumaður og löggiltur skjalaþýðandi, lést á Hrafnistu laugardaginn 21. mars síðastliðinn, 94 ára að aldri.

Menning
Fréttamynd

Eig­andi OnlyFans látinn

Leonid Radvinsky, eigandi OnlyFans, er látinn, 43 ára. Hann lést úr krabbameini. OnlyFans var stofnað 2016 og Radvinsky eignaðist móðurfélag þess, Fenix International Limited, árið 2018. Í frétt Reuters segir að hann hafi verið stjórnarformaður félagsins og meirihlutaeigandi.

Erlent
Fréttamynd

Lionel Jospin er látinn

Lionel Jospin, fyrrverandi formaður Sósíalistaflokks Frakka, er látinn 88 ára að aldri. Hann var forsætisráðherra Frakka í fimm ár en sagði skilið við stjórnmálin eftir að hafa tapað í forsetakosningunum árið 2002.

Erlent
Fréttamynd

Robert Mueller er látinn

Robert S. Mueller, sem stýrði bandarísku alríkislögreglunni í tólf ár og starfaði sem sérstakur saksóknari hjá dómsmálaráðuneyti Bandaríkjanna, er látinn. Hann varð 81 árs.

Erlent
Fréttamynd

Nicholas Brendon er látinn

Bandaríski leikarinn Nicholas Brendon er látinn, 54 ára að aldri. Hann var hvað þekktastur fyrir að fara með hlutverk Xander Harris í sjónvarpsþáttunum vinsælu Buffy the Vampire Slayer.

Lífið
Fréttamynd

Chuck Norris er látinn

Bardagakappinn og leikarinn Chuck Norris er látinn, 86 ára að aldri. Hann lést í gærmorgun í Havaí eftir að hafa verið lagður þar inn á spítala fyrr í vikunni.

Bíó og sjónvarp
Fréttamynd

Einn helsti sam­starfs­maður Berlusconi látinn

Umberto Bossi, stofnandi ítalska harðlínuflokksins Norðurbandalagsins, er látinn 84 ára að aldri. Undir stjórn Bossi átti flokkurinn sæti í ríkisstjórnum Silvios Berlusconi, þáverandi forsætisráðherra.

Erlent
Fréttamynd

John Alford fannst látinn í fangelsinu

Leikarinn John Alford er látinn. Hann lést föstudaginn 13. mars í HMP Bure fangelsinu í Norfolkfangelsi, tveimur mánuðum eftir að hann var dæmdur fyrir kynferðisbrot gegn tveimur unglingsstúlkum. 

Erlent
Fréttamynd

Hjálmar H. Ragnars­son er látinn

Hjálmar H. Ragnarsson, tónskáld og fyrrverandi rektor Listaháskólans, er látinn, 74 ára að aldri. Hjálmar lést á líknardeild Landspítalans í nótt. Hjálmar starfaði sem tónskáld, söngstjóri, kennari og var rektor LHÍ til fimmtán ára auk þess sem hann tók virkan þátt í félagsmálum listamanna. 

Menning
Fréttamynd

Vaktin: Út­för Davíðs Odds­sonar

Davíð Oddsson, fyrrverandi borgarstjóri, forsætisráðherra, seðlabankastjóri og ritstjóri verður jarðsunginn í dag klukkan 13. Útförinni verður streymt á Vísi.

Innlent
Fréttamynd

Soham-morðinginn látinn

Ian Huntely, sem myrti tvær ungar stúlkur í Soham árið 2002, lést á sjúkrahúsi eftir að hafa orðið fyrir árás í hámarksöryggisgæslufangelsi. Hann starfaði sem húsvörður í skóla stúlknanna.

Erlent
Fréttamynd

Gimpið í Pulp Fiction er látið

Breski leikarinn Stephen Hibbert er látinn, 68 ára að aldri. Hann er þekktastur fyrir hlutverk sitt sem gimpið í kvikmyndinni Pulp Fiction eftir Quentin Tarantino.

Lífið