Fótbolti

Balotelli reisir styttu af sjálfum sér

Styttan af Balotelli verður í þessari stellingu.
Styttan af Balotelli verður í þessari stellingu. vísir/getty
Mario Balotelli, framherji AC Milan, er engum líkur. Þessi skrautlegi Ítali hefur nú ákveðið að reisa styttu af sjálfum sér fyrir utan heimili sitt í Brescia.

Styttan verður af honum að fagna í undanúrslitaleiknum gegn Þjóðverjum á EM síðasta sumar. Það fagn er löngu orðið heimsfrægt.

Balotelli er mikið ólíkindatól og tekur upp á ýmsu sem öðrum dettur ekki í hug.

Hann keypti sér Bentley í herlitum á sínum tíma og svo kom hann einu sinni heim með trampólín og tvær vespur þegar móðir hans sendi hann út í búð.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×