Fótbolti

Ítalía: Higuain með þrennu

Emil Hallfreðsson í baráttunni
Emil Hallfreðsson í baráttunni Vísir/Getty
Emil Hallfreðsson var í byrjunarliði Hellas Verona í tapi gegn Fiorentina í ítölsku úrvalsdeildinni í dag. Emil var tekinn af velli eftir 87 mínútur en gat ekki komið í veg fyrir tap.

Verona komst yfir eftir fjórtán mínútna leik en Fiorentina setti í gír og komst í 3-1 áður en Marco Donadel, leikmaður Verona fékk rautt spjald um miðbik seinni hálfleiks. Verona náði að tvisvar að klóra í bakkann en Fiorentina bætti við öðrum tveimur mörkum og vann að lokum góðan sigur. Verona hefur sogast úr baráttunni um sæti í Evrópudeildinni og er í tíunda sæti eftir leiki dagsins.

Birkir Bjarnason kom ekki við sögu í 0-4 tapi Sampdoria gegn Inter. Inter fékk sannkallaða draumabyrjun en eftir tuttugu mínútur voru leikmenn Inter komnir 1-0 yfir ásamt því að Eder, leikmaður Sampdoria fékk reisupassann. Í seinni hálfleik gerðu leikmenn Inter út um leikinn með tveimur mörkum á þremur mínútum og bætti Rodrigo Palacio við fjórða markinu á lokamínútum leiksins. Sampdoria situr um miðja deild eftir leikinn þegar fimm leikir eru eftir af tímabilinu.

Napoli vann mikilvægan sigur á Lazio í Napoli í baráttunni um þriðja og síðasta Meistaradeildar sætið. Þrátt fyrir að vera manni fleiri lengst af í seinni hálfleik náðu leikmenn Napoli ekki að tryggja sigurinn fyrr en í uppbótartíma þegar Gonzalo Higuain innsiglaði þrennuna.

Í kvöld fer svo fram lokaleikur dagsins þegar AC Milan tekur á móti Catania.

Úrslit dagsins:

Bologna 1-1 Parma

Livorno 2-4 Chievo

Napoli 4-2 Lazio

Sampdoria 0-4 Inter

Torino 2-1 Genoa

Verona 3-5 Fiorentina

Gonzalo Higuain var á skotskónum í dagVísir/Getty



Fleiri fréttir

Sjá meira


×