Arnaldur situr á 740 milljónum Sigurður Mikael Jónsson skrifar 24. ágúst 2017 06:00 Arnaldur Indriðason.
Glæpasagnahöfundurinn Arnaldur Indriðason hagnaðist um 35,5 milljónir króna á síðasta ári samkvæmt nýbirtum ársreikningi eignarhaldsfélags hans, Gilhaga ehf. Félagið notar hann utan um skrif og útgáfu bóka sinna og gerir velgengni hans á ritvellinum síðasta rúma áratuginn það að verkum að félagið er afar sterkt fjárhagslega. Hagnaður Gilhaga dróst þó verulega saman milli ára, eða um ríflega 66%, samkvæmt ársreikningi enda nam hann 106,7 milljónum króna árið 2015. Einn starfsmaður starfaði hjá félaginu í fyrra, en Arnaldur og eiginkona hans eru skráðir framkvæmdastjórar þess og Arnaldur skráður fyrir öllu hlutafé. Fram kemur í ársreikningi Gilhaga að Arnaldur hafi greitt sér rúmlega 31 milljón króna í arð út úr félaginu. Samanlagður hagnaður Gilhaga frá árinu 2003 nemur 1.087 milljónum króna en samkvæmt ársreikningi nemur óráðstafað eigið fé félagsins rétt tæplega 740 milljónum króna. Ljóst má því vera að krimmakóngurinn er í fjárhagslegum sérflokki meðal íslenskra rithöfunda.
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Búinn að fá sig fullsaddan af þjónustunni hjá Wolt Neytendur Fyrsta íslenska grænkera ostagerðin í hættu Viðskipti innlent Systurfélag ÞG verktaka kaupir Arnarland Viðskipti innlent Framkvæmdastjórar kveðja og sviðum stokkað upp Viðskipti innlent Stefán stefnir á opnun fyrir jól: „Þetta verður bullandi stemning“ Viðskipti innlent Dældi dísil á bensínbíl en fær kostnaðinn endurgreiddan Neytendur Vilja selja Landsbankann Viðskipti innlent „Er nú rétt að jafna mig á slæmu Wham! blæti“ Atvinnulíf Kristín nýr framkvæmdastjóri Eflu Viðskipti innlent Fór yfir breytingarnar sem verði ekki allar þægilegar fyrir starfsfólk Viðskipti innlent Fleiri fréttir Systurfélag ÞG verktaka kaupir Arnarland Play sé ekki að fara á hausinn Fór yfir breytingarnar sem verði ekki allar þægilegar fyrir starfsfólk Framkvæmdastjórar kveðja og sviðum stokkað upp Sammála um aukna verðbólgu í september Tekur við stöðu framkvæmdastjóra LÍS Kristín nýr framkvæmdastjóri Eflu Taka tvær Airbus-þotur til á leigu Stefán stefnir á opnun fyrir jól: „Þetta verður bullandi stemning“ Vilja selja Landsbankann Lísbet nýr lögfræðingur Viðskiptaráðs Ráðin forstöðumaður Trygginga hjá Landsbankanum Samdráttur hafinn í byggingariðnaði sem skapi efnahagslegan vítahring Yrði fljótt kvíðinn með aleiguna í Bitcoin Kormákur og Skjöldur yfirgefa Leifsstöð Egill Örn inn fyrir Stefán hjá Solid Clouds Nýtti glugga þegar hann opnaðist og þurfti ekki að kaupa fyrirtækið til baka Breytingar á tollskrá megi ekki grafa undan íslenskri framleiðslu Matvöruverslanir kattslakar en lyfjarisi fylgist grannt með Stofnar einkahlutafélagið Uppselt ehf. Lítið fékkst upp í háar kröfur í bú Blackbox Bein útsending: Borgar sig að vanmeta menntun? Breytir tollflokkun pitsaosts eftir allt saman Ueno snýr aftur og Haraldur framkvæmdastjóri „Hvert á ég að ráðstafa séreigninni?“ „Óhóflegt gjald“ fyrir símanotkun í Bretlandi heyri fljótt sögunni til Elín Tinna nýr framkvæmdastjóri 66°Norður á Íslandi Heiðrún Lind kaupir í Sýn Ráðin forstöðukona markaðsmála hjá Olís Eldri stjórnendur sætti sig oftar við slæma hegðun og frammistöðu Sjá meira