Hafnar 14,5 milljóna kröfu Benna í slitabú Kristinn Ingi Jónsson skrifar 2. nóvember 2017 09:45 Héraðsdómur Reykjavíkur hafnaði öllum kröfum Benedikts Eyjólfssonar, sem kenndur er við Bílabúð Benna, í málinu. Vísir/Vilhelm
Héraðsdómur Reykjavíkur hafnaði í síðustu viku kröfu Benedikts Eyjólfssonar, sem er jafnan kenndur við Bílabúð Benna, um að 14,5 milljóna króna fjárkrafa hans yrði viðurkennd sem almenn krafa í slitabú gamla Landsbankans. Benedikt átti meðal annars í afleiðuviðskiptum við Landsbankann árið 2007. Krafðist hann þess fyrir dómi að krafa hans, upp á 14,5 milljónir króna, yrði viðurkennd við slitameðferð gamla Landsbankans og að henni yrði jafnframt skipað í réttindaröð sem almennri kröfu. Byggði hann á því að Landsbankinn hefði innleyst og ráðstafað umræddum fjármunum án heimildar af vörslureikningi hans hjá bankanum vegna uppgjörs á framvirkum samningi í október árið 2007. Hélt Benedikt því fram að honum hefði verið ókunnugt um þessi viðskipti og að þau hefðu verið gerð í hans óþökk. Slitastjórn bankans mótmælti þessum málatilbúnaði. Hafnaði hún kröfunni á þeim grundvelli að ekki væri fyrir hendi viðurkennd bótaskylda, enda hefði ekki verið sýnt fram á að Landsbankinn hefði sýnt af sér saknæma og ólögmæta háttsemi. Kjartan Bjarni Björgvinsson héraðsdómari komst að þeirri niðurstöðu að Benedikt hefði ekki tekist að sýna fram á að umræddur framvirkur samningur hefði verið gerður í hans óþökk. Auk þess hefði Benedikt vegna eigin tómlætis glatað rétti til að bera fyrir sig mótbárur um skuldbindingargildi samningsins og uppgjör hans þegar hann beindi loks kröfu að slitastjórn Landsbankans í október árið 2009. Var kröfu hans í slitabúið þannig hafnað. Var Benedikt enn fremur gert að greiða gamla Landsbankanum 850 þúsund krónur í málskostnað.
Mest lesið Systurfélag ÞG verktaka kaupir Arnarland Viðskipti innlent Búinn að fá sig fullsaddan af þjónustunni hjá Wolt Neytendur „Er nú rétt að jafna mig á slæmu Wham! blæti“ Atvinnulíf Play sé ekki að fara á hausinn Viðskipti innlent Framkvæmdastjórar kveðja og sviðum stokkað upp Viðskipti innlent Fór yfir breytingarnar sem verði ekki allar þægilegar fyrir starfsfólk Viðskipti innlent Nýtti glugga þegar hann opnaðist og þurfti ekki að kaupa fyrirtækið til baka Viðskipti innlent Dældi dísil á bensínbíl en fær kostnaðinn endurgreiddan Neytendur Að púsla saman vinnu, aukavinnu og lífinu Atvinnulíf Stefán stefnir á opnun fyrir jól: „Þetta verður bullandi stemning“ Viðskipti innlent Fleiri fréttir Systurfélag ÞG verktaka kaupir Arnarland Play sé ekki að fara á hausinn Fór yfir breytingarnar sem verði ekki allar þægilegar fyrir starfsfólk Framkvæmdastjórar kveðja og sviðum stokkað upp Sammála um aukna verðbólgu í september Tekur við stöðu framkvæmdastjóra LÍS Kristín nýr framkvæmdastjóri Eflu Taka tvær Airbus-þotur til á leigu Stefán stefnir á opnun fyrir jól: „Þetta verður bullandi stemning“ Vilja selja Landsbankann Lísbet nýr lögfræðingur Viðskiptaráðs Ráðin forstöðumaður Trygginga hjá Landsbankanum Samdráttur hafinn í byggingariðnaði sem skapi efnahagslegan vítahring Yrði fljótt kvíðinn með aleiguna í Bitcoin Kormákur og Skjöldur yfirgefa Leifsstöð Egill Örn inn fyrir Stefán hjá Solid Clouds Nýtti glugga þegar hann opnaðist og þurfti ekki að kaupa fyrirtækið til baka Breytingar á tollskrá megi ekki grafa undan íslenskri framleiðslu Matvöruverslanir kattslakar en lyfjarisi fylgist grannt með Stofnar einkahlutafélagið Uppselt ehf. Lítið fékkst upp í háar kröfur í bú Blackbox Bein útsending: Borgar sig að vanmeta menntun? Breytir tollflokkun pitsaosts eftir allt saman Ueno snýr aftur og Haraldur framkvæmdastjóri „Hvert á ég að ráðstafa séreigninni?“ „Óhóflegt gjald“ fyrir símanotkun í Bretlandi heyri fljótt sögunni til Elín Tinna nýr framkvæmdastjóri 66°Norður á Íslandi Heiðrún Lind kaupir í Sýn Ráðin forstöðukona markaðsmála hjá Olís Eldri stjórnendur sætti sig oftar við slæma hegðun og frammistöðu Sjá meira