Lífið

Shelley Duvall látin

Sólrún Dögg Jósefsdóttir skrifar
Hér sést Duvall í hlutverki sínu í myndinni 3 Women. 
Hér sést Duvall í hlutverki sínu í myndinni 3 Women.  Getty

Bandaríska leikkonan Shelley Duvall er látin. Hún lést í dag, fjórum dögum eftir 75 ára afmælisdaginn sinn. Duvall er þekktust fyrir leik sinn í bíómyndunum Shining og Annie Hall.

Dan Gilroy eiginmaður hennar staðfesti andlátið í samtali við The Hollywood Reporter. Duvall lést úr fylgikvillum tengdum sykursýki að sögn Gilroy. 

Duvall fór með hlutverk í bíómyndunum McCabe & Mrs Miller, Nashville, Popeye og 3 Women. Hér að neðan má sjá brot úr hinni goðsagnakenndu bíómynd The Shining, þar sem hún fór með hlutverk Wendy Torrance.

Ítarlega umfjöllun um líf og störf Duvall má nálgast á vef Hollywood Reporter

Fréttin hefur verið uppfærð með leiðréttum dánardegi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×