Viðskipti innlent

Reyna að koma öllum pökkum til skila fyrir jól

Bjarki Sigurðsson skrifar
Hrólfur Andri Tómasson er framkvæmdastjóri Dropp.
Hrólfur Andri Tómasson er framkvæmdastjóri Dropp. Vísir/Sigurjón

Stóraukin netverslun Íslendinga skilar sér í auknu álagi hjá sendingarfyrirtækjum. Einhverjar tafir hafa verið á afhendingu sendinga sem framkvæmdastjóri dreifingarfyrirtækis segir vera vegna plássleysis í flugvélum á leið til landsins

Erlend netverslun Íslendinga hefur tvöfaldast á milli ára og Rannsóknarsetur verslunarinnar spáir því að hún nái 45 milljörðum á þessu ári.

Netverslun eykst alltaf síðustu mánuði ársins þegar það styttist í jólin með tilheyrandi álagi á sendingarfyrirtæki sem reyna að koma mögulegum jólagjöfum og áramótakjólum til skila á réttum tíma.

Fleiri og fleiri verslanir nýta sér þjónustu dreifingarfyrirtækisins Dropp til að koma sendingum til skila og eru þær orðnar átta hundruð talsins.

„Við erum með mjög mikið af duglegu starfsfólki og samstarfsaðilum. Allir hafa látið þetta ganga. Þetta er vertíð í sex vikur og þetta hefur gengið vel,“ segir Hrólfur Andri Tómasson, framkvæmdastjóri Dropp. „Það sem kemur erlendis frá hefur verið aðeins lengur á leiðinni en við vorum að vona. Það er einfaldlega vegna þess að flugvélar hafa verið fullar.“

Starfsmenn Dropp voru á fullu að flokka sendingar þegar fréttastofu bar að garði. Starfsmannafjöldinn er tvöfaldaður dagana fyrir jól til að anna eftirspurn.

„Allar sendingar koma í gegnum húsið hjá okkar og eru flokkaðar. Við förum á 115 afhendingarstaði um land allt. Hér finnum við út úr því hvað á að fara hvert, svo fara þeir beint aftur úr húsi,“ segir Hrólfur. 

Starfsmenn Dropp vinna hörðum höndum að því að koma öllum sendingum til skila.Vísir/Sigurjón

Hann vonast til þess að allir pakkar komist til síns heima fyrir jól.

„Allt sem við fáum í hús til hádegis á morgun og á að fara á landsbyggðina fer út, og það sem við fáum á Þorláksmessu til hádegis á höfuðborgarsvæðinu sömuleiðis. Það mun allt komast til skila,“ segir Hrólfur. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×