Segja næsta fasa stríðsins að hefjast

Ísraelsmenn segja „næsta fasa" stríðs við Hezbolla-samtökin í Líbanon við það að hefjast. Bandaríkjamenn voru í dag upplýstir um áhlaup Ísraelshers inn í Líbanon, til undirbúnings innrásar sem gæti hafist hvað úr hverju. Næstráðandi í Hezbolla hét því í morgun að samtökin myndu berjast áfram gegn Ísrael og væru tilbúin til langvarandi átaka.

8
00:37

Vinsælt í flokknum Fréttir