Flogið yfir Goðabungu í dag
Jarðskjálfti að stærð 3,7 reið yfir í Mýrdalsjökli snemma í morgun. Skjálftinn átti upptök sín um 6,4 kílómetra norðaustur af Goðabungu og er sá stærsti sem mælst hefur í jöklinum á þessu ári. Örfáum mínútum síðar mældist annar skjálfti, öllu minni.