Körfubolti
164 165 166 167 168 169 170 171 172 … 217 ›
Sjötti sigur Detroit í röð Rasheed Wallace spilaði líklega sinn besta leik á tímabilinu og leiddi Detroit til sigurs gegn Toronto í NBA-deildinni í nótt, 98-92. Þetta var sjötti sigurleikur Detroit í röð en Toronto hefur hins vegar tapað síðustu átta leikjum sínum gegn Detroit. Körfubolti 11.2.2007 12:41
Boston Celtics sett nýtt félagsmet Boston Celtics setti nýtt félagsmet í NBA-deildinni í nótt með því að tapa 17. leik sínum í röð. Í þetta sinn steinlá liðið á heimavelli fyrir New Jersey, 92-78, þrátt fyrir að Paul Pierce, helsta stjarna liðsins, hafi spilað með liðinu á ný eftir langa fjarveru vegna meiðsla. Fjölmargir leikir fóru fram í NBA í nótt. Körfubolti 10.2.2007 12:10
Fimm sigrar í röð hjá Pistons Þrír leikir voru í NBA-körfuboltanum í gærkvöld. Detroit Pistons sigraði Los Angeles Lakers 93-78 en þetta var fimmti sigurleikur Pistons í röð. Körfubolti 9.2.2007 10:20
Kobe Bryant funheitur gegn Boston Celtics Kobe Bryant skoraði 43 stig, átti átta stoðsendingar og hirti átta fráköst þegar erkifjendurnir Los Angeles Lakers og Boston Celtics mættust í NBA-deildinni í gærkvöld. Lakers fóru með sigur af hólmi, 111-98. Körfubolti 1.2.2007 09:47
Finley skoraði flautukörfu gegn LA Lakers Michael Finley skoraði þriggja-stiga körfu og tryggði San Antonio 96-94 sigur á LA Lakers þegar 1,3 sekúndur voru eftir í leik liðanna í NBA-deildinni í nótt. Phoenix gefur ekkert eftir og vann sinn 17. sigur í röð. Körfubolti 29.1.2007 11:43
Sagan er með Phoenix Phoenix Suns er óumdeilanlega heitasta liðið í NBA-deildinni um þessar mundir og hefur nú unnið 16 leiki í röð. Sú sigurhrina fer í sögubækur NBA sem sú sjötta besta frá upphafi. Miðað við tölfræðina bendir margt til þess að Phoenix verði meistarar þegar uppi er staðið í haust. Körfubolti 28.1.2007 16:29
Chicago með gott tak á Miami Meistarar Miami töpuðu í þriðja sinn á tímabilinu fyrir Chicago í nótt, 100-97. þar sem Shaquille O'Neal lék ekki með. Kirk Hinrich spilaði frábæra vörn á Dwayne Wade og Miami tapaði í fimmta sinn í síðustu sex leikjum. Körfubolti 28.1.2007 12:27
Phoenix setti félagsmet Phoenix setti nýtt félagsmet í nótt með 16. sigri sínum í röð í NBA-deildinni. Það var Milwaukee sem lá í valnum í nótt, en allir byrjunarliðsleikmenn Pheonix í leiknum skoruðu yfir 10 stig. Shaquille O´Neal byrjaði sinn fyrsta leik fyrir Miami í langan tíma, en hafði ekki þau áhrif sem vonast var eftir á lið sitt. Körfubolti 27.1.2007 12:15
Papaloukas leikmaður ársins í Evrópu Gríski leikstjórnandinn Theo Papaloukas hjá CSKA Moskvu var í dag kjörinn körfuboltamaður ársins í Evrópu nokkuð óvænt, en hann hafði þar með betur gegn besta manni heimsmeistaramótsins Pau Gasol og hinum frábæra Dirk Nowitzki, sem er einhver besti körfuboltamaður heimsins. Körfubolti 26.1.2007 20:23
Tap hjá Jóni Arnóri og félögum Jón Arnór Stefánsson og félagar hans í spænska liðinu Valencia töpuðu naumlega fyrir liði Etosa Alicante 75-74 í ABC deildinni í dag. Jón Arnór skoraði 11 stig á 30 mínútum fyrir Valencia. Liðið er nú í 10. sæti deildarinnar með 9 sigra og 9 töp. Körfubolti 21.1.2007 23:32
Liðin úr riðli Njarðvíkur standa vel að vígi Átta liða úrslit Áskorendakeppni Evrópu klárast í vikunni en þar mætast liðin sem voru með Njarðvík og Keflavík í riðli fyrir áramót. Liðin sem fóru upp úr riðli Njarðvíkur (CSK-VVS Samara og Cherkaski Mavpy) unnu liðin sem voru með Keflavík í riðli (BC Dnipro og Mlekarna Kunin). Körfubolti 16.1.2007 21:08
Evrópukeppnin í körfubolta á Eurosport 2 í dag Það verður mikið um dýrðir á Eurosport 2 á Fjölvarpinu í dag þegar stöðin sýnir tvo leiki beint úr Evrópukeppninni í körfubolta. Leikur Hapoel Jerusalem og Alba Berlin verður sýndur klukkan 17 og klukkan 19 eigast við Lietuvos Rytas frá Litháen og AEK Aþena frá Grikklandi. Sport 16.1.2007 14:32
Webber fer til Detroit Miðherjinn Chris Webber hefur staðfest að hann muni ganga til liðs við Detroit Pistons í NBA-deildinni en búist er við að gengið verði formlega frá félagsskiptum hans úr Philadelphia síðar í þessari viku. Mörg félög voru á höttunum á eftir Webber, sem er einn reyndasti miðherji deildarinnar. Körfubolti 15.1.2007 21:33
Arenas hetja Washington - enn einu sinni Gilbert Arenas skoraði 51 stig, þar af sigurkörfu með þriggja stiga skoti um leið og flautan gjall, þegar Washington lagði Utah af velli í NBA-deildinni nú í kvöld, 114-111. Körfubolti 15.1.2007 21:17
Dallas með sigurkörfu á síðustu sekúndu Josh Howard tryggði Dallas sigur á Toronto í NBA-deildinni í nótt með því að skora sigurkörfuna þegar innan við sekúnda var til leiksloka. Dallas náði að vinna upp 16 stiga forystu Toronto á tiltölulega skömmum tíma og tryggja sér þannig sinn 17. sigur í síðustu 18 leikjum. Körfubolti 15.1.2007 12:13
10 þúsund fráköst hjá Garnett Kevin Garnett, leikmaður Minnesota, skorað 32 stig og reif niður 14 fráköst í 109-98 sigri liðs síns á New Jersey í NBA-deildinni í nótt. Garnett hefur nú tekið 10.007 fráköst á ferlinum og er hann 32. leikmaðurinn í sögu deildarinnar sem rýfur 10 þúsund frákasta múrinn. Pheonix vann sinn áttunda leik í röð í nótt. Körfubolti 14.1.2007 11:30
Allen og Nowitzki stálu senunni Dirk Nowitzki hjá Dallas og Ray Allen hjá Seattle voru menn næturinnar í NBA-boltanum. Nowitzki skoraði 43 stig, það mesta sem hann hefur skorað á leiktíðinni, þegar Dallas lagði Indiana af velli en Allen gerði enn betur og setti niður 54 stig í sigri Seattle á Utah. Allen hefur aldrei skorað meira á sínum ferli. Körfubolti 13.1.2007 12:39
Langþráður sigur hjá námshestunum í Caltech Liðsmenn körfuboltaliðs Caltech háskólans í Kaliforníu í Bandaríkjunum unnu heldur betur langþráðan sigur í gærkvöldi þegar liðið lagði lið Bard háskólans frá New York óvænt 81-52. Sigurinn batt enda á 207 leikja taphrinu liðsins í háskóladeildinni sem náði allt aftur til ársins 1996. Körfubolti 7.1.2007 20:34
Garnett fagnaði gamla boltanum með stórleik Tveir leikir fóru fram í deildarkeppninni í NBA í nótt þar sem gamli leðurboltinn var tekinn formlega í notkun á ný. Kevin Garnett hjá Minnesota Timberwolves var einn þeirra sem gagnrýndu boltann sem notaður var í fyrsta sinn í haust og hann hélt upp á endurkomu gamla boltans með góðum leik. Körfubolti 2.1.2007 14:26
Línur að skýrast í NBA Þrjú efstu lið NBA-deildarinnar; Dallas, San Antonio og Pheonix, unnu öll góða sigra í leikjum sínum í nótt. Þegar tímabilið er nú tæplega hálfnað eru línur teknar að skýrast og er ljóst að Vesturdeildin er mun sterkari en Austurdeildin. Körfubolti 1.1.2007 15:50
Jordan skilinn við eiginkonu sína Michael Jordan, besti körfuboltamaður sem uppi hefur verið, er skilin við eiginkonu sína til 17 ára, Juanitu. Í sameiginlegri tilkynningu frá lögmönnum þeirra segir að skilnaðurinn fari fram í mestu vinsemd. Körfubolti 31.12.2006 11:43
58 stig Kobe dugðu ekki til Kobe Bryant átti stórleik og skoraði alls 58 stig fyrir LA Lakers í leik liðsins gegn Charlotte í NBA-deildinni í nótt. Frammistaðan var hins vegar ekki nóg til að skila Lakers sigri því að Charlotte sigraði eftir þrjár framlengingar, 133-124. Körfubolti 30.12.2006 11:00
Fratello rekinn frá Memphis Mike Fratello var á fimmtudag rekinn úr starfi sínu sem þjálfari Memphis Grizzlies í NBA-deildinni í körfubolta. Það var gamla kempan Jerry West, núverandi forseti Memphis, sem lét Fratello fjúka. Körfubolti 30.12.2006 00:04
Dallas vann stórleik næturinnar Dallas hafði betur gegn Pheonix í uppgjöri tveggja heitustu liða NBA-deildarinnar í nótt, 101-99, í æsispennandi og skemmtilegum leik. Dirk Nowitzki skoraði sigurkörfuna rúmri sekúndu fyrir leikslok en Dallas hefur nú unnið átta leiki í röð. Körfubolti 29.12.2006 17:34
Ming hefur fengið flest atkvæði Yao Ming hjá Houston og LeBron James hjá Cleveland hafa fengið langflest atkvæði fyrir hinn árlega stjörnuleik NBA-deildarinnar í körfubolta sem fram fer í febrúar. Það eru áhorfendur og áhugamenn um NBA út um alla veröld sem sjá um að velja byrjunarliðin í leiknum með því að senda sitt atkvæði með einföldu sms-skilaboði. Körfubolti 28.12.2006 23:39
Wade ómeiddur en Riley æfur Dwayne Wade, stjörnuleikmaður Miami í NBA-deildinni í körfubolta, er ekki alvarlega meiddur á hendi eftir að hafa lent í samstuði við Kirk Hinrich hjá Chicago í viðureign liðanna í fyrradag. Þetta leiddu niðurstöður röngtenmyndatöku í ljós. Pat Reily, þjálfari Miami, er þó allt annað en sáttur við framkomu Hinrich. Körfubolti 28.12.2006 23:35
New York sigraði í maraþon leik New York sigraði Detroit í þríframlengdum maraþon leik í NBA-deildinni í körfubolta í nótt. Lokatölur urðu 151-145 og dugðu 51 stig frá Richard Hamilton ekki til fyrir Detroit. Hjá New York skoraði Stephan Marbury 41 stig. Körfubolti 28.12.2006 15:27
Fyrsti sigur Iverson hjá Denver Allen Iverson fagnaði sigri í í treyju Denver í fyrsta sinn í nótt þegar liðið bar sigurorð af Boston, 116-105, í NBA-deildinni. Iverson skoraði 28 stig og gaf 13 stoðsendingar. Dallas sigraði Charlotte auðveldlega, 97-84, og hefur nú unnið sjö leiki í röð. Körfubolti 27.12.2006 10:01
Wade skyggði algjörlega á Kobe Einvígi Dwayne Wade og Kobe Bryant í viðureign Miami og LA Lakers í NBA-deildinni í nótt náði aldrei þeim hæðum sem vonast var eftir. Það er skemmst frá því að segja að Bryant kolféll á prófinu á meðan Wade blómstraði í sannfærandi 101-85 sigri Miami. Körfubolti 26.12.2006 15:01
Kristic með slitin krossbönd Lið New Jersey Nets í NBA-deildinni hefur orðið fyrir miklu áfalli því einn þeirra besti leikmaður, Nenad Kristic, er með slitin krossbönd og mun ekki spila meira með á þessu tímabili. Hinn 23 ára gamli Serbi hefur skorað rúm 16 stig og tekið sjö fráköst á tímabilinu. Körfubolti 25.12.2006 13:56