Körfubolti
187 188 189 190 191 192 193 194 195 … 217 ›
Indiana vann í Miami Lið Indiana Pacers minnir rækilega á sig í upphafi leiktíðar í NBA og í nótt vann það góðan 105-102 útisigur á Miami Heat. Jermaine O'Neal skoraði 27 stig og hirti 9 fráköst fyrir Indiana, en nafni hans Shaquille O´Neal þurfti að fara meiddur af leikvelli í síðari hálfleiknum með snúinn ökkla og missir væntanlega af næsta leik Miami. Sport 4.11.2005 04:59
Flautukarfa Bryant tryggði Lakers sigur Fjórtán leikir voru á dagskrá í NBA deildinni í nótt. Kobe Bryant tryggði Los Angeles Lakers sinn fyrsta sigur á tímabilinu með flautukörfu í framlengingu gegn Denver og LeBron James fór mikinn hjá Cleveland gegn New Orleans Hornets. Þá átti Michael Redd stórleik þegar Milwaukee vann annan sigurinn í röð á tveimur dögum. Sport 3.11.2005 15:52
Rafmögnuð spenna í opnunarleikjunum Leiktíðin í NBA deildinni hófst í nótt með fjórum leikjum og ekki er hægt að segja annað en að byrjunin lofi góðu, því tveir leikjanna fóru í framlengingu og mjög óvænt úrslit urðu í fyrsta leiknum sem háður var í Oklahoma City. Sport 2.11.2005 07:00
Dunleavy samdi við Golden State Framherjinn ungi Mike Dunleavy hjá Golden State Warriors, framlengdi í gær samning sinn við félagið um fimm ár og fær fyrir það um 44 milljónir dollara. Dunleavy var valinn þriðji í nýliðavalinu árið 2002 og fetaði með samningnum í fótspor Tayshaun Prince sem undirritaði svipaðan samning við Detroit skömmu áður. Sport 1.11.2005 04:50
Prince semur við Detroit Framherjinn Tayshaun Prince hefur framlengt samning sinn við Detroit Pistons til fimm ára og fær fyrir það um 47 milljónir dollara í laun. Samningar milli umboðsmanns Prince og félagsins náðust á elleftu stundu, en ef það hefði ekki tekist, hefði Prince verði með lausa samninga næsta sumar. Sport 31.10.2005 18:01
Magloire til Milwaukee Bucks Milwaukee Bucks var duglegt á leikmannamarkaði NBA í sumar og fékk meðal annars fyrsta valréttinn í nýliðavalinu. Í gærkvöldi nældi félagið svo í enn einn leikmanninn þegar það fékk til sín miðherjann Jamaal Magloire frá New Orleans, í skiptum fyrir framherjann Desmond Mason og valrétt í nýliðavalinu á næsta ári. Sport 27.10.2005 04:15
Flautukarfa Payton tryggði Miami sigur Fjórir æfingaleikir voru á dagskrá í NBA deildinni í nótt og þar bar hæst að Gary Payton tryggði Miami Heat eins stigs sigur á Atlanta Hawks með körfu á síðustu sekúndu leiksins. Sport 25.10.2005 05:47
Þrír leikir í kvennakörfunni Þrír leikir voru á dagskrá í 1. deild kvenna í körfuknattleik í dag. Keflavíkurstúlkur héldu uppteknum hætti og völtuðu yfir Breiðablik 106-50 á útivelli. Haukar sigruðu KR 82-34 og Grindavíkurstúlkur lögðu ÍS í hörkuleik í Grindavík, 75-67. Keflavík og Grindavík eru því bæði með fullt hús stiga eftir þrjár umferðir. Sport 23.10.2005 17:51
Auðvelt hjá Njarðvík og Fjölni Njarðvíkingar unnu sannfærandi sigur á Hetti í Hópbílabikarnum í körfubolta á Egilsstöðum í gærkvöldi 107-77 og Fjölnir gerði góða ferð á Ísafjörð og lagði KFÍ 90-61. Sport 23.10.2005 17:51
Sex æfingaleikir í NBA í nótt Sex æfingaleikir voru á dagskrá í NBA deildinni í nótt og þar á meðal var leikur LA Lakers og Denver Nuggets, sem sýndur var beint á NBA TV á Digital Ísland. Leikurinn var hin besta skemmtun, en það voru gestirnir frá Denver sem voru sterkari og sigruðu 105-94. Þá háðu Allen Iverson og LeBron James mikið einvígi í nótt. Sport 23.10.2005 17:51
Bað um að dómur sinn yrði þyngdur Menn ganga misjafnlega langt til að hylla íþróttastjörnur sem þeir hafa í uppáhaldi. Sennilega hafa fáir gengið jafn langt og Eric James Torpy sem var fundinn sekur um morð. Sport 23.10.2005 17:51
Fyrsta Evrópuleikur kvennaliðs Haukar leika í kvöld fyrsta leik íslensks kvennaliðs í Evrópukeppni í körfubolta en bikarmeistararnir taka á móti spænska liðinu Caja Canarias. Þetta verður fyrsti leikur Hauka af sex í riðlinum en auk þess leika Haukar gegn ítölsku og frönsku liði. Sport 23.10.2005 17:51
Jordan viðurkennir mistök Körfuboltagoðsögnin Michael Jordan viðurkennir í viðtali við þáttinn "60 Minutes" á CBS sjónvarpsstöðinni í Bandaríkjunum, að hann hafi gengið of langt í fjárhættuspilum á tíunda áratugnum, en segir að hann hafi náð að hætta að spila þegar honum þótti hann fara yfir strikið. Sport 23.10.2005 17:50
Tap hjá Haukastúlkum Kvennalið Hauka spilaði sinn fyrsta leik í Evrópukeppninni í körfubolta í kvöld og máttu þola slæmt tap á heimavelli fyrir Caja Canarias, 97-58. Kesha Tardy skoraði 20 stig fyrir Haukaliðið og Helena Sverrisdóttir skoraði 15 stig og átti 9 stoðsendingar. Sport 23.10.2005 17:51
Hópbílabikarinn í kvöld Þremur leikjum er lokið í Hópbílabikarnu í körfubolta í kvöld. ÍRingar lögðu Tindastól 90-80 á Sauðárkróki, KR vann Hamar/Selfoss á útivelli 92-72 og Þór á Akureyri lagði Skallagrím 95-91. Úrslit úr leik Stjörnunnar og Keflavíkur verða tilkynnt fljótlega. Sport 23.10.2005 17:51
Fimm æfingaleikir í NBA í nótt Átta æfingaleikir voru á dagskrá í NBA deildinni í nótt, þar sem liðin sem mættust í úrslitunum í fyrra, San Antonio Spurs og Detroit Pistons, töpuðu bæði leikjum sínum. Sport 23.10.2005 17:50
Hópbílabikarinn í kvöld Tveir leikir verða á dagskrá í Hópbílabikarnum í körfubolta í kvöld, en þeir eru báðir í karlaflokki. Valur og Snæfell mætast klukkan 19:00 í íþróttahúsi Kennaraháskólans, en klukkan 21 hefst leikur Hauka og Grindavíkur að Ásvöllum. Fyrri leikir í 16-liða úrslitunum klárast annað kvöld, en síðari leikirnir verða allir á sunnudag. Sport 23.10.2005 17:50
Keflavík kjöldró KR Keflavíkurstúlkur völtuðu yfir stöllur sínar í KR í Iceland Express deild kvenna í körfuknattleik í gærkvöld 130-36. Þá unnu Grindavíkurstúlkur auðveldan 91-48 sigur á Breiðablik. Sport 23.10.2005 17:50
Fjórir æfingaleikir í NBA í nótt Fjórir æfingaleikir fóru fram í NBA í nótt, en áskrifendur Sportpakkans á Digital Ísland fengu einmitt að sjá skemmtilegan leik Houston Rockets og Seattle Supersonics í beinni útsendingu. Houston var án þeirra Yao Ming og Tracy McGrady, en það kom ekki að sök, því liðið hafði sigur, 93-85. Sport 23.10.2005 17:50
Divac formlega hættur Serbneski miðherjinn Vlade Divac hjá Los Angeles Lakers tilkynnti í gærkvöldi formlega að hann væri búinn að leggja skóna á hilluna. Hann mun þó ekki hætta afskiptum sínum af körfuknattleik, því hann hefur verið ráðinn útsendari Lakers í heimalandi sínu. Sport 23.10.2005 17:50
Larry Brown hellti sér yfir nýliða Larry Brown, nýráðinn þjálfari New York Knicks, las nýliðanum Nate Robinson pistilinn um helgina þegar hann reyndi að kasta boltanum af spjaldinu og troða í leik gegn New Jersey Nets, með sinni fyrstu snertingu í leik með New York Knicks. Sport 23.10.2005 17:50
Allan Houston hættur Skotbakvörðurinn Allan Houston hjá New York Knicks, ákvað í gærkvöldi að leggja skóna á hilluna vegna þrálátra hnémeiðsla. Houston er 34 ára gamall og lék í tólf ár í deildinni, lengst af með New York, þar sem hann skrifaði undir samning upp á 100 milljónir dollara árið 2001, en náði aldrei að vinna fyrir broti af þeirri upphæð, stuðningsmönnum liðsins til mikils ama. Sport 23.10.2005 17:50
Baldur kominn aftur í KR Miðherjinn Baldur Ólafsson er kominn aftur í KR og hefur hug á að byrja að leika körfuknattleik á ný eftir eins og hálfs árs fjarveru frá leiknum. Baldur lagði skóna tímabundið á hilluna vegna álagsmeiðsla, en hefur nú snúið aftur til síns gamla liðs. Sport 23.10.2005 17:34
Þrír æfingaleikir í NBA í nótt Þrír æfingaleikir voru á dagskrá í NBA í nótt. Larry Brown tapaði fyrsta leik sínum með New York Knicks í Madison Square Garden, þegar liðið lá fyrir Dallas Mavericks, 104-102. Detroit lagði Minnesota 91-80 og Sacramento sigraði Golden State 114-99. Sport 23.10.2005 17:34
Fjögur lið með fullt hús Njarðvíkingar gerðu góða ferð í Vesturbæinn í kvöld og sigruðu þar KRinga 69-59. Jeb Ivey var stigahæstur í liði Njarðvíkur með 21 stig, en Ashley Champion skoraði 19 stig hjá KR og reyndar flest þeirra snemma leiks. Njarðvíkingar voru skrefinu á undan lengst af, en segja má að Jeb Ivey hafi gert út um leikinn í fjórða leikhluta þegar hann fór mikinn í sókninni. Sport 23.10.2005 15:05
Drungi á æfingum Atlanta Hawks "Ég hef lent í ýmsu á 23 ára ferli sem þjálfari, en ekkert getur búið mann undir svona lagað," sagði Mike Woodson, þjálfari Atlanta Hawks, sem í gær stýrði fyrstu æfingu liðsins eftir að miðherjinn Jason Collier lét lífið á heimili sínu um helgina. Sport 23.10.2005 15:05
Curry með hjartað á réttum stað Miðherjinn Eddy Curry, sem nýverið gekk í raðir New York Knicks frá Chicago Bulls, skoraði 16 stig í fyrsta æfingaleik sínum með liðinu um helgina, eftir að hafa fengið grænt ljós á að spila þrátt fyrir að hafa tvisvar greinst með óreglulegan hjartslátt á ferlinum. Sport 23.10.2005 15:05
Heil umferð í körfunni í kvöld Heil umferð er á dagskrá Iceland Express-deildar karla í körfubolta í kvöld og hefjast leikirnir allir kl. 19:15. Stórleikur umferðarinnar er án efa viðureign KR og Njarðvíkur í DHL-höllinni en þessum liðum er spáð góðu gengi í vetur af forsvarsmönnum, þjálfurum og fyrirliðum félaganna. Njarðvík er spáð meistaratitlinum en KR fjórða sæti. Sport 23.10.2005 15:05
NBA TV komið á fullt Ný sjónvarpsstöð, NBA TV, er farin í loftið á Digital Ísland. NBA TV er gríðarlega stór sjónvarpsstöð sem sérhæfir sig í NBA körfuboltanum. Á stöðinni eru yfir 250 beinar útsendingar frá NBA á ári auk fjölda NBA-sjónvarpsþátta á hverjum degi. NBA TV er á Digital Ísland og er í sportpakkanum. Ráðgerðar eru 36 beinar útsendingar í nóvember. Sport 23.10.2005 15:04
Leikmaður Atlanta Hawks lést Miðherjinn Jason Collier hjá Atlanta Hawks í NBA deildinni lést í sjúkrabifreið í dag eftir að hafa átt erfitt með andardrátt og hnigið niður á heimili sínu. Hann var 28 ára gamall og lætur eftir sig eiginkonu og unga dóttur, en dánarorsök er enn óljós. Sport 23.10.2005 15:04