Meistaradeildin
242 243 244 245 246 247 248 249 250 … 274 ›
Rooney tryggði United sigur á elleftu stundu Manchester United lagði AC Milan 3-2 í frábærum fyrri undanúrslitaleik liðanna í Meistaradeild Evrópu í kvöld. Ítalska liðið komst í 2-1 í fyrri hálfleik en Wayne Rooney tryggði enska liðinu dýrmætan sigur með marki í uppbótartíma. Fótbolti 24.4.2007 20:32
Rooney jafnar fyrir United Staðan í leik Manchester United og AC Milan er orðin jöfn 2-2. Það var Wayne Rooney sem jafnaði leikinn fyrir United eftir klukkutíma leik og heimamenn allir að lifna við eftir kjaftshöggið sem þeir fengu í fyrri hálfleik. Fótbolti 24.4.2007 20:02
Milan leiðir í hálfleik á Old Trafford AC Milan hefur yfir 2-1 í hálfleik gegn Manchester United í fyrri leik liðanna á Old Trafford í Manchester. Heimamenn byrjuðu betur í leiknum og komust í 1-0 eftir fimm mínútur þegar markvörðurinn Dida sló boltann í eigið net. Það var svo Brasilíumaðurinn Kaka sem stal senunni fyrir gestina og kom liði sínu í 2-1 með mörkum á 22. og 37. mínútu. Fótbolti 24.4.2007 19:32
Kaka kemur Milan yfir á Old Trafford AC Milan hefur náð 2-1 forystu gegn Manchester United í fyrri leik liðanna í undanúrslitum Meistaradeildar Evrópu. Það var Brasilíumaðurinn Kaka sem var aftur á ferðinni fyrir ítalska liðið og skoraði á 37. mínútu. Heimamenn eru því komnir í vond mál í einvíginu. Fótbolti 24.4.2007 19:24
Kaka jafnar Snillingurinn Kaka hjá AC Milan er búinn að jafna fyrir AC Milan gegn Manchester United á Old Trafford. Markið kom á 22. mínútu eftir fallega spilamennsku hjá Milan-liðinu þar sem Kaka fékk góða sendingu inn fyrir vörnina og lagði boltann í hornið. Fótbolti 24.4.2007 19:07
United komið yfir Það tók Manchester United aðeins 5 mínútur að ná forystu gegn AC Milan í fyrri leik liðanna í undanúrslitum Meistaradeildar Evrópu. Cristiano Ronaldo átti fínan skalla að marki ítalska liðsins, en markvörðurinn Dida gerði mistök og kýldi boltann í eigið net. Fótbolti 24.4.2007 19:01
Maldini spilaði í Evrópu áður en Rooney og Ronaldo fæddust Paolo Maldini, fyrirliði AC Milan, spilaði sinn fyrsta Evrópuleik fyrir AC Milan árið 1985, en þá voru þeir Wayne Rooney og Cristiano Ronaldo hjá Manchester United ófæddir. Varamaðurinn Alessandro Costacurta hjá Milan er þó enn eldri og reyndari, en hann á einmitt 41 árs afmæli í dag. Leikmenn Milan eiga góðar minningar frá Old Trafford, því liðið tryggði sér sigur í Meistaradeildinni á þessum velli árið 2003. Fótbolti 24.4.2007 18:09
Byrjunarliðin klár hjá United og Milan Fyrri leikur Manchester United og AC Milan í undanúrslitum Meistaradeildarinnar hefst klukkan 18:45 og verður sýndur beint á Sýn. Búið er að tilkynna byrjunarliðin og þau má sjá hér fyrir neðan. Guðni Bergsson og Heimir Karlsson eru nú að hita upp fyrir leikinn í beinni á Sýn. Fótbolti 24.4.2007 17:59
Hoddle tippar á Milan og Liverpool í úrslitum Glenn Hoddle, fyrrum landsliðsþjálfari Englendinga í knattspyrnu, segist tippa á að það verði Liverpool og AC Milan sem mætast í úrslitaleik Meistaradeildarinnar í Aþenu í vor og endurtaki þar með leikinn frá í Istanbul árið 2005. Fótbolti 24.4.2007 16:39
Mourinho sagður hafa falið sig í þvottakörfu Tvö bresk blöð halda því fram í dag að Jose Mourinho, stjóri Chelsea, hafi notað mjög óhefðbundnar aðferðir til að koma skilaboðum til sinna manna þegar hann var í leikbanni í Meistaradeildinni fyrir tveimur árum. Hann fékk þá tveggja leikja bann fyrir framkomu sína á leik gegn Barcelona. Enski boltinn 24.4.2007 14:26
Dida klár í slaginn með Milan Markvörðurinn Dida er leikfær og er í leikmannahópi AC Milan sem mætir meiðslum hrjáðu liði Manchester United í undanúrslitum Meistaradeildarinnar í kvöld. Fótbolti 24.4.2007 13:58
Ferguson: Við óttumst ekki AC Milan Sir Alex Ferguson, stjóri Manchester United, segir sína menn ekki óttast ítalska liðið AC Milan fyrir fyrri leik liðanna í undanúrslitum Meistaradeildarinnar í kvöld. Leikið verður á Old Trafford og verður leikurinn sýndur beint á sjónvarpsstöðinni Sýn. Fótbolti 24.4.2007 13:52
Maldini hrósar Manchester United Paolo Maldini, fyrirliði AC Milan, hrósar liði Manchester United fyrir slag liðanna í undanúrslitum Meistaradeildarinnar í kvöld. Hann segir liðið vera mun sterkara nú en það var fyrir tveimur árum, en segir sína menn tilbúna í slaginn. Fótbolti 24.4.2007 13:46
Maldini verður ekki settur til höfuðs Ronaldo Carlo Ancelotti, knattspyrnustjóri AC Milan, hefur ekki í hyggju að breyta leikskipulagi sínu út af vananum til að halda sem mest aftur af Cristiano Ronaldo, leikmanni Manchester United, í fyrri viðureign liðanna í Meistaradeild Evrópu á morgun. Orðrómur hafði verið um að fyrirliðinn Paulo Maldini yrði settur í vinstri bakvörðinn til höfuðs Ronaldo, en Ancelotti segir svo ekki vera. Fótbolti 23.4.2007 20:22
Shevchenko vill frekar mæta Milan Úkraínumaðurinn Andriy Shevchenko hjá Chelsea segist heldur vilja mæta AC Milan en Manchester United ef Chelsea nær að vinna sér sæti í úrslitaleik Meistaradeildarinnar í Aþenu. Svo gæti farið að Manchester United og Chelsea spiluðu þrjá úrslitaleiki á hálfum mánuði í vor. Fótbolti 17.4.2007 16:58
Dida tæpur fyrir leikinn á Old Trafford Brasilíski markvörðurinn Dida hjá AC Milan gæti misst af fyrri leik liðsins gegn Manchester United á Old Trafford þann 24. apríl vegna meiðsla á öxl. Hann meiddist í leik gegn Messina á dögunum þegar hann skall ár markstönginni. Fótbolti 17.4.2007 13:59
Stuðningsmenn United beðnir að draga úr áfengisneyslu Knattspyrnusamband Evrópu hefur farið þess á leit við stuðningsmenn Manchester United að stilla áfengisneyslu í hóf þegar liðið sækir AC Milan heim í Meistaradeildinni í byrjun næsta mánaðar. Talsmaður UEFA segir að hluta þeirra vandamála sem komið hafi upp á leikjum undanfarið megi rekja til ofdrykkju. Fótbolti 12.4.2007 18:11
Ancelotti: United er sterkara núna Carlo Ancelotti, þjálfari AC Milan, segist hlakka mikið til að mæta Manchester United í undanúrslitum Meistaradeildarinnar, þar sem ítalska liðið verður nú í fjórða sinn á síðustu fimm árum. Ancelotti segir Manchester United mun sterkara nú en fyrir tveimur árum, þegar Milan vann báða leiki liðanna. Fótbolti 11.4.2007 23:08
Sálfræðistríðið hafið hjá Benitez og Mourinho Í kvöld varð ljóst að það verða Liverpool og Chelsea sem mætast í undanúrslitum Meistaradeildarinnar. Liðin háðu eftirminnilegt einvígi í keppninni fyrir tveimur árum og segja má að sálfræðistríðið fyrir undanúrslitin hafi byrjað strax í dag þegar Benitez skaut föstum skotum að kollega sínum. Fótbolti 11.4.2007 22:21
Crouch: Draumaeinvígi í undanúrslitunum Peter Crouch skoraði sigurmark Liverpool gegn PSV í síðari leik liðanna í Meistaradeildinni í kvöld og skaut sína menn því auðveldlega í undanúrslitin með samanlögðum 4-0 sigri á hollenska liðinu. Crouch hélt með Chelsea á sínum yngri árum og segir einvígið við liðið í undanúrslitum Meistaradeildarinnar verða mjög sérstakt. Fótbolti 11.4.2007 21:50
Hitzfeld: Milan tók okkur í kennslustund Ottmar Hitzfeld, þjálfari Bayern Munchen, viðurkenndi að AC Milan hefði einfaldlega verið betri aðilinn í leik liðanna í Meistaradeildinni í kvöld. Milan sigraði 2-0 í Munchen og mætir Manchester United í undanúrslitum. Fótbolti 11.4.2007 21:45
Frækinn sigur AC Milan í Munchen AC Milan tryggði sér í kvöld sæti í undanúrslitum Meistaradeildar Evrópu með fræknum 2-0 útisigri á Bayern Munchen. Ítalska liðið fer því áfram samtals 4-2 og mætir Manchester United í næstu umferð. Liverpool vann 1-0 sigur á PSV Eindhoven og 4-0 samanlagt og mætir Chelsea í undanúrslitum. Fótbolti 11.4.2007 20:33
2-0 fyrir Milan í hálfleik AC Milan hefur yfir 2-0 í hálfleik gegn Bayern Munchen á útivelli í síðari leik liðanna í 8-liða úrslitum Meistaradeildarinnar. Clarence Seedorf skoraði með laglegu skoti á 27. mínútu og Filippo Inzaghi bætti öðru við skömmu síðar þegar hann fékk boltann inn fyrir vörn heimamanna. Nokkur rangstöðulykt var af markinu, en það telur og ítalska liðið skyndilega komið í afar vænlega stöðu. Enn er markalaust í leik Liverpool og PSV á Anfield. Fótbolti 11.4.2007 19:16
Byrjunarliðin í klár í Meistaradeildinni Nú styttist í að flautað verði til leiks í lokaleikjum 8-liða úrslita Meistaradeildar Evrópu. Bayern tekur á móti AC Milan í Munchen og Liverpool tekur á móti PSV á Anfield. Steven Gerrard og Jamie Carragher eru hvíldir í liði Liverpool. Byrjunarlið beggja má sjá hér fyrir neðan. Fótbolti 11.4.2007 18:38
Gætið ykkar á leikaranum Ottmar Hitzfeld, þjálfari Bayern Munchen, hefur varað leikmenn sína sérstaklega við því að mynda óþarfa snertingu við ítalska framherjann Filippo Inzaghi í síðari leik liðanna í Munchen í kvöld. Hann kallar Inzaghi leikara og segir að hann muni nota hvert mögulegt tækifæri til að fiska aukaspyrnur á þýsku varnarmennina. Fótbolti 11.4.2007 16:52
Hitzfeld treystir á heimavöllinn Ottmar Hitzfeld, þjálfari Bayern Munchen, segir að liðið verði að setja í fluggírinn ef það ætli sér að slá AC Milan út úr 8-liða úrslitum Meistaradeildarinnar í kvöld. Dramatískt jöfnunarmark varnarmannsins Daniel Van Buyten kom í veg fyrir að Bayern tapaði sjöunda leiknum af síðustu níu gegn ítalska liðinu í fyrri viðureigninni á dögunum. Fótbolti 11.4.2007 04:39
Benitez: Mikilvægt að stjórna hraðanum frá byrjun Rafa Benitez, stjóri Liverpool, hefur farið þess á leit við sína menn að þeir byrji vel í síðari leiknum við PSV á heimavelli í kvöld. Liverpool hefur örugga 3-0 forystu frá fyrri leiknum í Hollandi og því ætti það aðeins að vera formsatriði fyrir þá rauðu að klára dæmið gegn meiðslum hrjáðu liði PSV. Fótbolti 11.4.2007 04:19
Carrick: Þetta var eins og í draumi Miðjumaðurinn Michael Adrian Carrick hjá Manchester United er ekki þekktur fyrir að skora mikið af mörkum, en hann setti tvö í ótrúlegum 7-1 sigri United á Roma í Meistaradeildinni í gær. Hann sagði leikinn hafa verið draumi líkastan. Fótbolti 11.4.2007 04:09
Totti: Erfiðasta stundin á ferlinum Francesco Totti, fyrirliði Roma, sagði að 7-1 tapið gegn Manchester United í Meistaradeildinni í gær hafi verið erfiðasta stund hans á ferlinum. Fótbolti 11.4.2007 04:55
Mourinho: Besti útisigur liðsins í þrjú ár Jose Mourinho var alsæll með leik sinna manna í Chelsea í kvöld þegar liðið gerði sér lítið fyrir og lagði Valencia 2-1 á útivelli í síðari leik liðanna í 8-liða úrslitum Meistaradeildarinnar. Sigur Chelsea var fyllilega verðskuldaður og engu líkara en eitt lið væri á vellinum í síðari hálfleik. Fótbolti 10.4.2007 21:26