Meistaradeildin
253 254 255 256 257 258 259 260 261 … 274 ›
Við bregðumst stuðningsmönnum okkar ekki aftur Sir Alex Ferguson var ekkert að skafa af því í kvöld þegar hann var spurður um yfirlýst markmið Manchester United í riðlakeppni meistaradeildarinnar, en liðið hafnaði í riðli með Glasgow Celtic, Benfica og FC Kaupmannahöfn. Fótbolti 24.8.2006 23:34
Riðillinn verður erfiður en skemmtilegur Arsene Wenger á von á að Arsenal bíði erfitt en skemmtilegt verkefni í G-riðli meistaradeildar Evrópu í vetur þar sem liðið leikur ásamt Porto, CSKA Moskvu og Hamburg. Fótbolti 24.8.2006 23:17
Vissi að við fengjum Barcelona Peter Kenyon segir að það hafi nánast legið í loftinu að Chelsea og Barcelona ættu eftir að mætast enn eina ferðina í dag, þegar dregið var í riðlakeppni meistaradeildar Evrópu. Hann skorar þó á menn að gleyma ekki hinum liðunum tveimur í A-riðlinum. Fótbolti 24.8.2006 22:58
Ronaldinho valinn bestur Brasilíski snillingurinn Ronaldinho var í dag kjörinn besti leikmaðurinn í meistaradeild Evrópu á síðustu leiktíð, en tilkynnt var um valið um leið og dregið var í riðla fyrir keppnina í ár. Leikmenn Barcelona hirtu öll verðlaunin sem veitt voru í dag, nema verðlaunin fyrir besta markmanninn í meistaradeildinni sem féllu í hlut þýska markvarðarins Jens Lehmann hjá Arsenal. Fótbolti 24.8.2006 16:57
Enn mætast Barcelona og Chelsea Nú rétt áðan var dregið í riðla í meistaradeild Evrópu. Englandsmeistarar Chelsea drógust í riðil með Evrópumeisturum Barcelona og því er ljóst að liðin mætast þriðja árið í röð í keppninni. Eiður Smári Guðjohnsen fær því ef til vill tækifæri til að mæta sínum gömlu félögum í Chelsea á knattspyrnuvellinum fyrr en margan hefði grunað. Fótbolti 24.8.2006 16:27
Arsenal í riðlakeppnina Arsenal tryggði sér í kvöld sæti í riðlakeppni meistaradeildar Evrópu með því að leggja króatíska liðið Dynamo Zagreb 2-1 á heimavelli sínum. Arsenal vann fyrri leikinn 3-0 og er því komið áfram samanlagt 5-1. Gestirnir komust í 1-0 í kvöld og hleyptu smá lífi í einvígið, en mörk frá Freddy Ljungberg og Mathieu Flamini tryggðu Arsenal öruggan sigur. Fótbolti 23.8.2006 21:25
Arsenal undir í hálfleik Arsenal er undir 1-0 gegn Dynamo Zagreb þegar flautað hefur verið til hálfleiks í viðureign liðanna í forkeppni meistaradeildar Evrópu. Arsenal vann fyrri leikinn 3-0 og er því enn í ágætum málum með að komast áfram í riðlakeppnina. Leikurinn er sýndur beint á Sýn. Fótbolti 23.8.2006 20:05
Arsenal - Dynamo Zagreb í beinni á Sýn í kvöld Síðari leikur Arsenal og Dynamo Zagreb í forkeppni meistaradeildar Evrópu verður sýndur beint á Sýn í kvöld og hefst útsending klukkan 18:55. Arsenal vann fyrri leikinn 3-0 og er því í afar vænlegri stöðu fyrir heimaleikinn á Emirates-vellinum í kvöld, þar sem sæti í riðlakeppni meistaradeildarinnar er í húfi. Fótbolti 23.8.2006 16:53
Mourinho afar óhress með styrkleikaflokkana Jose Mourinho, stjóri Englandsmeistara Chelsea, segist ekki skilja í því hvernig standi á því að Chelsea lendi í öðrum styrkleikaflokki þegar dregið verði í riðla í meistaradeild Evrópu á morgun, á meðan lið sem Chelsea hefur skotið aftur fyrir sig í deildinni heimafyrir síðustu tvö ár, eru í fyrsta styrkleikaflokki. Fótbolti 23.8.2006 16:05
Maccabi er hörkulið Peter Crouch, hinn leggjalangi markaskorari Liverpool, sagði að leikmenn Maccabi Haifa hefðu ekki verið nein lömb að leika sér við eftir að liðin skildu jöfn í síðari leik sínum í forkeppni meistaradeildar Evrópu. Fótbolti 22.8.2006 21:09
Naumt hjá Liverpool Liverpool er komið í riðlakeppni meistaradeildar Evrópu eftir 1-1 jafntefli við ísraelska liðið Maccabi Haifa á hlutlausum velli í Kænugarði í kvöld. Liverpool vann því samanlagt 3-2. Peter Crouch kom enska liðinu yfir á 54 mínútu með góðum skalla en ísraelska liðið svaraði aðeins örfáum mínútum síðar. Lengra komust Maccabi-menn þó ekki og Liverpool slapp með skrekkinn. Fótbolti 22.8.2006 20:32
Crouch kemur Liverpool yfir Peter Crouch hefur komið Liverpool yfir 1-0 gegn Maccabi Haifa í leik liðanna í Kænugarði, en hann skoraði með skalla á 54. mínútu eftir laglegan undirbúning frá Jermain Pennant. Liverpool er því komið í 3-1 samanlagt í einvígi liðanna og ætti að vera komið með annan fótinn áfram. Hægt er að fylgjast vel með stöðu mála í leikjum kvöldsins á úrslitaþjónustunni hér á Vísi. Fótbolti 22.8.2006 19:47
Jafnt í hálfleik í Kænugarði Staðan í leik Maccabi Haifa og Liverpool er 0-0 þegar flautað hefur verið til leikhlés í viðureign liðanna í forkeppni meistaradeildarinnar í Kænugarði. Þá hefur spænska liðið Osasuna yfir 1-0 gegn þýska liðinu Hamburger SV í sömu keppni og AC Milan náði forystunni snemma á útivelli gegn Rauðu Stjörnunni frá Belgrad. Fótbolti 22.8.2006 19:36
Gerrard á bekknum hjá Liverpool Leikur Maccabi Haifa og Liverpool í forkeppni meistaradeildar Evrópu hefst nú klukkan 18:30 og verður sýndur í beinni útsendingu á sjónvarpsstöðinni Sýn. Steven Gerrard er á varamannabekknum hjá Liverpool í Kænugarði. Fótbolti 22.8.2006 18:23
Benitez fékk að heyra það Liðsmenn Liverpool hafa ekki átt þægilegt ferðalag til Kænugarðs í Úkraínu í dag þar sem liðið mætir ísraelska liðinu Maccabi Haifa öðru sinni í forkeppni meistaradeildarinnar annað kvöld. Miklar tafir urðu á ferðalagi leikmanna Liverpool til Kænugarðs og þegar þangað kom, þurfti Rafael Benitez að sitja undir árásum ísraelskra blaðamanna sem kenndu honum um að leikurinn hefði verið færður á hlutlausan völl. Fótbolti 21.8.2006 19:30
Liverpool og Haifa leika í Kænugarði Síðari leikur Liverpool og Maccabi Haifa í forkeppni Meistaradeildar Evrópu verður leikinn í Kænugarði í Úkraínu vegna þeirrar ólgu sem ríkir í Ísrael um þessar mundir. Knattspyrnusamband Evrópu tilkynnti í síðustu viku að leikurinn yrði spilaður á hlutlausum velli og hafa forráðamenn Dynamo Kiev nú boðist til að hýsa leikinn. Fótbolti 14.8.2006 14:46
Liverpool hefur leik Liverpool er rétt í þessu að hefja leik í Meistaradeild Evrópu gegn Macabi Haifa á Anfield Road í Liverpool. Tveir af þeim nýju leikmönnum sem Liverpool fékk til liðs við sig fyrir keppnistímabilið eru í byrjunarliðinu, þeir Jermaine Pennant og Craig Bellamy. Leikurinn er í beinni á Sýn og VefTV. Fótbolti 9.8.2006 19:14
Glórulaust að fara til Ísrael Rafa Benitez segir það glórulaust að ætlast til þess að lið Liverpool fari til Ísrael til að spila í forkeppni meistaradeildarinnar á þeim ófriðartímum sem geysa í landinu. Benitez hefur biðlað til stjórnar evrópska knattspyrnusambandsins að láta í sér heyra sem fyrst, því hann segist ekki eiga von á því að leikmenn sínir né stuðningsmenn vilji fara til lands að spila þar sem ástandið sé svo eldfimt. Fótbolti 28.7.2006 16:38
Stuðningsmenn Liverpool smeykir við að fara til Ísrael Formaður alþjóðlegs stuðningsmannaklúbbs Liverpool er lítt hrifinn af því að liðið neyðist til að spila síðari leik sinni í þriðju umferð forkeppni meistaradeildarinnar í Ísrael, en mikill ófriður hefur verið í landinu að undanförnu. Liverpool mætir liði Maccabi Haifa frá Ísrael og á að spila útileik sinn í Haifa þann 22. eða 23. ágúst. Fótbolti 28.7.2006 14:36
FH færi til Úkraínu Í morgun var dregið í þriðju umferð forkeppni meistaradeildar Evrópu og fari svo að Íslandsmeisturum FH takist að slá út pólska liðið Legia Varsjá, mæta þeir úkraínska liðinu Shakhtar Donetsk í næstu umferð. Fótbolti 28.7.2006 13:12
Framtíð Milan í meistaradeild ræðst fljótlega Knattspyrnusamband Evrópu mun taka ákvörðun um framtíð AC Milan í meistaradeildinni þann 2. ágúst nk, en þá verður gefið endanlegt svar um það hvort liðið fær að taka þátt í keppninni. Þangaði til annað kemur í ljós verða það því Milan, Inter, Chievo og Roma sem verða fulltrúar Ítala í keppninni. Fótbolti 27.7.2006 14:00
Súrt tap FH fyrir Legia Varsjá Íslandsmeistarar FH töpuðu fyrri leik sínum gegn pólska liðinu Legia Varsjá 1-0 í Kaplakrika í kvöld. Markið skoraði Brasilíumaðurinn Elton undir lok leiksins og því bíður Hafnfirðinga afar erfitt verkefni úti í Póllandi eftir viku þegar liðin spila síðari leik sinn í annari umferð forkeppni meistaradeildarinnar. Bæði lið fengu raunar fín marktækifæri í kvöld en aðeins einstaklingsframtak varamanns Pólverjanna skildi að í lokin. Fótbolti 26.7.2006 20:34
Markalaust í hálfleik í Kaplakrika Staðan í leik FH og Legia Varsjá í forkeppni meistaradeildarinnar er markalaus 0-0 þegar flautað hefur verið til hálfleiks. Bæði lið hafa fengið nokkur góð færi og fékk Tryggvi Guðmundsson besta færi Hafnfirðinga undir lok hálfleiksins. Pólska liðið er vel stutt af fjölda landa sinna sem mættir eru í stemminguna í Kaplakrika. Leikurinn er sýndur beint á Sýn. Fótbolti 26.7.2006 19:15
FH - Legia Varsjá í beinni á Sýn Nú styttist í að fyrri leikur FH og pólska liðsins Legia Varsjá í annari umferð forkeppni meistaradeildar Evrópu hefjist á Kaplakrikavelli og verður leikurinn sýndur beint á Sýn. Útsending hefst klukkan 18:15. Búist er við gríðarlegri stemmingu á vellinum og fregnir herma að miðasala hafi gengið vonum framar. Búist er við hundruðum Pólverja á leikinn í kvöld, en eins og flestir vita er fjöldi Pólverja búsettur hérlendis og því má eiga von á líflegri stemmingu á pöllunum. Fótbolti 26.7.2006 17:52
FH-ingar áfram eftir jafntefli FH-ingar eru komnir í aðra umferð forkeppni meistaradeildar Evrópu eftir 1-1 jafntefli við TVMK Tallin í Kaplakrika í kvöld og mætir Legia Varsjá frá Póllandi í næstu umferð. FH sigraði því samanlagt 4-3. Eistarnir komust yfir 1-0 á 60. mínútu leiksins með marki úr vítaspyrnu, en Atli Guðnason reyndist bjargvættur Hafnfirðinga eins og í fyrri leiknum þegar hann jafnaði undir lokin með laglegu marki. Sport 19.7.2006 20:39
Jafnt í Kaplakrika í hálfleik Staðan í leik FH og TVMK Tallin í forkeppni meistaradeildar Evrópu er 0-0 þegar flautað hefur verið til hálfleiks í síðari leik liðanna í Kaplakrika. FH hefur því enn yfir 3-2 samanlagt í einvíginu og er í ágætum málum. Eistarnir hafa átt besta færið í leiknum til þessa, en Hafnfirðingar virðast þó hafa góð tök í leiknum sem sýndur er beint á Sýn. Sport 19.7.2006 20:01
FH - Tallin í beinni á Sýn í kvöld Síðari leikur FH-inga og eistnesku meistaranna TVMK Tallin í forkeppni meistaradeildar Evrópu fer fram í Kaplakrika í kvöld og verður sýndur beint á Sýn. Hafnfirðingar unnu frækinn 3-2 sigur ytra í fyrri leiknum og eru því í góðri stöðu fyrir hinn síðari í kvöld. Leikurinn hefst klukkan 19:15. Sport 19.7.2006 18:12
Frækinn sigur FH í Tallin Íslandsmeistarar FH unnu í dag frækinn útisigur á eistneska liðinu TVMK Tallin í forkeppni meistaradeildar Evrópu 3-2 og eru því í góðri stöðu fyrir síðari leikinn hér heima. Tryggvi Guðmundsson og Sigurvin Ólafsson komu FH í 2-0 en heimamenn jöfnuðu metin á skömmum tíma þegar um stundarfjórðungur var eftir. Það var svo Atli Guðnason sem tryggði FH sigurinn með góðu einstaklingsframtaki þegar þrjár mínútur voru komnar fram yfir venjulegan leiktíma. Sport 11.7.2006 16:55
FH hefur yfir 2-1 FH-ingar eru í ágætum málum úti í Eistlandi gegn Tallin í fyrri leik liðanna í forkeppni meistaradeildarinnar. Tryggvi Guðmundsson kom FH yfir í fyrri hálfleik og Sigurvin Ólafsson kom FH í 2-0 á 69. mínútu. Aðeins mínútu síðar minnkuðu heimamenn muninn og nú þegar rúmar tíu mínútur eru eftir af leiknum hafa Hafnfirðingar því forystu og eru í ágætum málum fyrir síðari leikinn á heimavelli. Sport 11.7.2006 16:33
FH yfir í hálfleik í Tallin Íslandsmeistarar FH hafa yfir 1-0 í leikhléi í fyrri leik sínum gegn eistneska liðinu Tallin, en leikið er ytra. Tryggvi Guðmundsson skoraði mark Hafnfirðinga eftir um hálftíma leik og stendur FH því ágætlega að vígi. Sport 11.7.2006 16:04