Lögreglumál
18 19 20 21 22 23 24 25 26 … 276 ›
Þrjár líkamsárásir, vinnuslys og mannlaus bíll á ferð Tveir menn voru handteknir í Seljahverfi í gær, fyrir sitthvora líkamsárásina. Báðir voru vistaðir í fangageymslu. Þá var þriðji maðurinn handtekinn fyrir líkamsárás í póstnúmerinu 213. Innlent 17.7.2024 06:15
Mál á hendur skipverjum Polar Nanoq fellt niður Meint kynferðisbrotamál á hendur þremur skipverjum grænlenska togarans Polar Nanoq hefur verið lagt niður. Það er ákvörðun ákærusviðs lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Innlent 16.7.2024 16:14
„Það eina sem stoppar þá er hnefinn, valdbeiting“ Helgi Magnús Gunnarsson vararíkissaksóknari segir marga fegna því að sjá Mohamad Kourani bak við lás og slá. En þó hann sé ýkt dæmi erum við að flytja inn í stórum stíl menn sem gefa ekki mikið fyrir okkar samfélagsgerð og sáttmála. Innlent 16.7.2024 15:09
Lögreglurannsókn hafi engin áhrif á veitingu læknaleyfis Læknir sem sætir enn rannsókn grunaður um að hafa orðið sjúklingum sínum að aldurstila hefur fengið ótakmarkað læknaleyfi á ný. Að sögn Embættis landlæknis er hvergi fjallað um að yfirstandandi lögreglurannsókn sé takmarkandi þáttur, þegar endurveiting starfsleyfis er annars vegar, í lögum um landlækni og lýðheilsu. Innlent 16.7.2024 11:49
Helga Vala hefur litlar áhyggjur af málinu Helga Vala Helgadóttir lögmaður Semu Erlu Serdoglu telur sérkennilegt að eyða tíma lögreglu í annað eins og það að rökstyðja betur ákvörðun sína um niðurfellingu máls á hendur skjólstæðingi sínum. Innlent 16.7.2024 11:37
Tvö þyrluútköll á Suðurlandi í gær og í nótt Lögreglan á Suðurlandi óskaði í tvígang eftir aðstoð þyrlu Landhelgisgæslunnar í gær og í nótt vegna göngumanna sem lentu í vandræðum á fjöllum. Innlent 16.7.2024 10:30
Betlari til leiðinda í miðbænum Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu var tilkynnt um betlara sem hafði verið til leiðinda og „ágengur mjög“ í miðbænum í dag. Innlent 15.7.2024 18:41
Ákærður vegna andlátsins í Naustahverfi Karlmaður á sjötugsaldi hefur verið ákærður í tengslum við andlát eiginkonu hans að heimili þeirra að Kjarnagötu á Akureyri í apríl. Ákæran hefur ekki verið birt manninum og því getur Héraðssaksóknari ekki gefið upp fyrir hvað maðurinn er ákærður nákvæmlega. Innlent 15.7.2024 11:23
Handtekinn grunaður um rán og frelsissviptingu Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur rán og frelsissviptingu til rannsóknar en einn var handtekinn í gær í tengslum við málið. Frá þessu er greint í yfirliti lögreglu yfir verkefni gærkvöldsins og næturinnar. Innlent 15.7.2024 06:22
Stúlkan er fundin Stúlkan sem lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsti eftir fyrr í kvöld er fundin. Innlent 14.7.2024 19:06
Tveimur vísað úr Þórsmörk eftir líkamsárás Líkamsárás var framin í Þórsmörk að morgni föstudags. Tveimur mönnum var vísað af svæðinu af lögreglu vegna málsins, en ekki þótti ástæða til að aðhafast frekar. Innlent 14.7.2024 14:32
Ölvaður ökumaður velti bíl í Breiðholti Lögreglunni var tilkynnt um ölvaðan mann sem sýndi ógnandi tilburði gagnvart vegfarendum í miðbæ Reykjavíkur í gærkvöldi eða nótt. Innlent 14.7.2024 08:23
Starfsmaður verslunar réðst á „þjóf“ sem reyndist saklaus Starfsmaður matvöruverslunar á höfuðborgarsvæðinu var handtekinn grunaður um líkamsárás eftir að til átaka kom milli hans og meints þjófs, sem reyndist síðan saklaus. Innlent 13.7.2024 19:19
Lögregla látin skila milljónum sem dómurinn telur líklega illa fengið fé Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu þarf að láta af hendi 7,13 milljónir króna í reiðufé sem hún lagði hald á árið 2021 í tengslum við rannsókn á skipulagðri brotastarfsemi. Maður, sem er eigandi peninganna, er ásamt öðrum grunaður í máli sem varðar innflutning, framleiðslu og dreifingu fíkniefna, sem og ýmis auðgunarbrot, stórfelldan þjófnað og peningaþvætti. Innlent 13.7.2024 14:10
Einn handtekinn í aðgerðum sérsveitar í Hrísey Einn var handtekinn í Hrísey í aðgerðum lögreglunnar á Norðurlandi-Eystra síðdegis á fimmtudaginn. Lögregla naut aðstoðar sérsveitarmanna ríkislögreglustjóra sem hafa aðsetur á Akureyri í verkefninu. Þetta staðfestir Andri Freyr Sveinsson, varðstjóri hjá lögreglunni á Norðurlandi-Eystra í samtali við fréttastofu. Innlent 13.7.2024 10:30
Slagsmál reyndust hnefaleikaæfingar að nóttu Lögreglunni var tilkynnt um slagsmál í Kópavogi rétt eftir miðnætti í nótt. Sá sem tilkynnti sagði að menn væru berir að ofan með boxhanska. Þegar lögreglu bar að garði kom í ljós að þrír menn væru að æfa sig í hnefaleikum. Innlent 13.7.2024 07:24
Valsmenn senda frá sér yfirlýsingu: UEFA lítur málið alvarlegum augum Valur hefur sent frá sér yfirlýsingu vegna óláta áhorfenda á leik karlaliðs félagsins í fótbolta við Vllaznia frá Albaníu í Sambandsdeild Evrópu í fótbolta í gærkvöld. Hegðun stuðningsmanna er fordæmd en öll einbeiting sögð á síðari leiknum eftir viku. Fótbolti 12.7.2024 11:47
UEFA á viðvörunarstigi, Interpol í málinu og Albaníuferðin í hættu Hegðun stuðningsmanna og starfsfólks albanska félagsins Vllaznia í kringum leik liðsins við Val að Hlíðarenda í Sambandsdeild Evrópu í gærkvöld gæti dregið dilk á eftir sér. Málið er á borði KSÍ og UEFA auk lögreglunnar og Interpol. Fótbolti 12.7.2024 11:10
Manndrápsmálið á Akureyri komið til saksóknara Mál manns sem grunaður er um að hafa orðið konu sinni að bana á Akureyri í lok aprílmánaðar þessa árs er komið á borð héraðssaksóknara. Innlent 12.7.2024 11:03
Bíða eftir niðurstöðum blóðsýnatöku Lögregla bíður eftir niðurstöðum blóðsýnis sem tekið var úr manninum sem ók yfir umferðareyju í vesturbæ Reykjavíkur í síðustu viku. Málið er fullrannsakað að öðru leyti og það skýrist um mánaðamótin hvort gefin verði út ákæra vegna málsins. Innlent 12.7.2024 10:13
„Þeir voru hissa að þarna hafi einhver komið lifandi út“ Betur fór en á horfðist þegar vörubíll hafnaði á hvolfi á vegakafla í Gatnabrún í Mýrdalshreppi í gær. Ökumannshús bílsins féll saman. Innlent 12.7.2024 09:20
Stefndi í slagsmál ungmenna Lögreglu var tilkynnt um hópamyndun við verslunarmiðstöð á höfuðborgarsvæðinu. Sá sem tilkynnti sagði að það hafi verið að stefna í slagsmál. En þegar lögreglu bar að garði voru flestir farnir. Innlent 12.7.2024 08:47
Svikahrappar reyna að gabba lögregluna Óprúttinn aðili gerði í dag tilraun til að gabba lögregluna á Suðurnesjum með póstsvindli svokölluðu sem herjað hefur á landsmenn í auknum mæli undanfarin ár. Innlent 11.7.2024 18:58
Spyr hvort Íslendingar megi einir nauðga á Íslandi „Er kannski málið að það er auðveldara að kenna erlendum manni um að vera nauðgari en að horfast í augu við að vinur þinn sé mögulega slíkt ómenni?“ Innlent 11.7.2024 12:05
Eigandi stakk af eftir að hundur beit konu með ungbarn Þýskur fjárhundur, sjeffer, réðst á konu sem var á gangi með ungbarn sitt í Árbænum í síðasta mánuði með þeim afleiðingum að hún hlaut áverka á hendi. Konan segir eigandann hafa flúið vettvang og hunsað beiðni hennar um að hringja á sjúkrabíl. Innlent 11.7.2024 11:53
Einn alvarlega slasaður eftir slysið Einn er alvarlega slasaður eftir bílslys sem varð á Holtavörðuheiði síðdegis í gær þegar tveir bílar sem komu úr gagnstæðri átt skullu saman. Innlent 11.7.2024 09:08
Fleygði lögreglumanni í jörðina eftir hlaup um miðbæ Akureyrar Karlmaður á fertugsaldri hlaut þriggja mánaða fangelsisdóm, skilorðsbundinn til þriggja ára, í Héraðsdómi Norðurlands eystra fyrir að veitast að lögreglumanni í miðbæ Akureyrar í júlí í fyrra. Innlent 11.7.2024 07:19
Var að ónáða fólk og taka af því myndir Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu barst tilkynning í gærkvöldi eða nótt þar sem óskað var aðstoðar vegna einstaklings sem var sagður vera að ónáða fólk og taka af því myndir. Innlent 11.7.2024 06:21
Þyrla kölluð út vegna bílslyss á Holtavörðuheiði Þyrla Landhelgisgæslunnar hefur verið kölluð út vegna áreksturs á Holtavörðuheiði og er hún á leið á vettvang. Lögregla hefur lokað fyrir umferð í báðar áttir á meðan aðgerðir standa yfir. Innlent 10.7.2024 16:47
Vegabræði í Breiðholti endaði með árás Upp úr sauð í umferðinni á Stekkjarbakka í Breiðholti um hádegisleytið í gær. Annar maðurinn mundaði óþekkt barefli og sló öryggisvörð með því þegar þeir mættust á umferðareyju á Stekkjarbakka. Hann særðist þó ekki alvarlega. Innlent 10.7.2024 13:59