Fyrrum leikmaður Man City og Leeds misnotaður af þjálfara þegar hann var unglingur Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 23. nóvember 2016 18:12 White skoraði 79 mörk í 286 deildarleikjum fyrir Manchester City. vísir/getty
David White, fyrrverandi leikmaður Manchester City, Leeds United og Sheffield United, hefur stigið fram og greint frá því að hann var misnotaður af þjálfara sínum þegar hann var unglingur. Í síðustu viku steig Andy Woodward fram og tjáði sig um misnotkun sem hann varð fyrir af hendi Barry Bennell, fyrrum þjálfara hjá Crewe, þeim sama og misnotaði White. Í gær tjáði Steve Walters, fyrrum leikmaður Crewe, sig um að Bennell hefði misnotað hann. Fyrr í dag steig Paul Stewart, fyrrverandi leikmaður Tottenham Hotspur og Liverpool, fram og greindi frá því hann hefði verið misnotaður af þjálfara sínum er hann var unglingur. Og nú rétt í þessu bættist White í þennan hóp. Þrír af þeim fjórum sem hafa stigið fram á síðustu dögum voru misnotaðir af Barry Bennell, þekktum barnaníðingi.David White lék einn A-landsleik fyrir England.vísir/getty„Vegna ýmissa ástæðna hélt ég þessu leyndu í nærri tvo áratugi,“ sagði hinn 49 ára gamli White sem hefur skrifað bók um misnotkunina sem hann varð fyrir. „Ég tek hatt minn ofan fyrir Andy Woodward, Steve Walters og Paul Stewart fyrir hugrekki þeirra að koma fram,“ sagði White. „Ofbeldið sem þeir og aðrir urðu fyrir var mun alvarlegra og stóð lengur yfir en hjá mér og ég er ekki viss um að ég hefði sýnt sama hugrekki og þeir.“ White var misnotaður af Bennell, sem hann leit mikið upp til, þegar hann var 11 ára. White hóf feril sinn hjá Manchester City og lék með liðinu til ársins 1993 þegar hann gekk í raðir Leeds. Árið áður lék hann sinn fyrsta og eina A-landsleik fyrir England. White náði sér ekki á strik hjá Leeds, var mikið frá vegna meiðsla og fór til Sheffield United 1995. Hann lagði skóna á hilluna tveimur árum síðar vegna meiðsla. Hinn 62 ára gamli Bennell var dæmdur í níu ára fangelsi fyrir barnaníð 1998. Í maí í fyrra fékk hann svo annan fangelsisdóm fyrir að misnota 12 ára gamlan dreng á fótboltavelli í Macclesfield.
Enski boltinn Tengdar fréttir Þjálfarinn minn misnotaði mig Paul Stewart, fyrrum leikmaður Tottenham og Liverpool, steig fram í dag og upplýsti að hann hefði verið misnotaður kynferðislega af þjálfaranum sínum er hann var unglingur. 23. nóvember 2016 11:30 Mest lesið „Það var eins og við værum á heimavelli“ Sport „Mér er alveg sama hvað aðrir halda“ Körfubolti Tuttugu og níu ára bið Wrexham á enda Enski boltinn Þróttarar ekki í vandræðum með Blika Íslenski boltinn Þorsteinn Leó öflugur í sigri Porto Handbolti Byrja á Eistum og enda loksins á heimavelli Fótbolti Dramatík í Suðurnesjaslag Íslenski boltinn Elín Klara með sex mörk í mikilvægum sigri Handbolti Umfjöllun og viðtöl: Tindastóll 113-76 Ármann | Stólarnir ekki í vandræðum í Síkinu Körfubolti Gómaður á ÓL eftir sextán ár á flótta Sport Fleiri fréttir Chelsea ekki í neinum vandræðum í enska bikarnum Tuttugu og níu ára bið Wrexham á enda Fyrrum þjálfari Úlfanna tekur við hjá Forest Er Thomas Frank sá versti? Tudor tekur við Tottenham „Hann er skíthræddur“ Landsliðsþjálfari Norður-Íra tekur við liði Andra Lucasar Þjálfari fær níu leikja bann fyrir að svívirða kvenkyns dómara „Tottenham er ekki stór klúbbur“ Laskað topplið missti niður forystu gegn Brentford Ratcliffe þykir leitt að hafa „móðgað sumt fólk“ Sjáðu sigurmark Liverpool, markaveislu City í fyrri og tvö sjálfsmörk sem réðu öllu Nottingham Forest rak stjórann í þriðja sinn á leiktíðinni Forsætisráðherra og fleiri krefjast afsökunarbeiðni frá eiganda Man. United Liverpool fyrsta liðið til að sækja sigur gegn Sunderland Burnley sótti lygilegan sigur og Villa vann þökk sé sjálfsmarki City kláraði Fulham fagmannlega í fyrri hálfleik Frank rekinn frá Tottenham Sjáðu ótrúlega dauðafærið sem Palmer klúðraði og öll mörkin úr enska Finnst ólukkan elta Liverpool Engin klipping því Manchester United gerði jafntefli Tottenham í tómu tjóni Chelsea glutraði niður góðri forystu gegn Leeds United Ræddu mögulegan arftaka Pep Langerfiðasta leiktíð Slot: „Leikmennirnir finna vonbrigðin“ „Hann er kominn í rétta stöðu“ „Vildi ekki ljúka tímabilinu svona“ Hárið ekki notað í neina ræðu Getur þjálfað Hollywood-liðið ævilangt „Tottenham er í fallbaráttu“ Sjá meira
Þjálfarinn minn misnotaði mig Paul Stewart, fyrrum leikmaður Tottenham og Liverpool, steig fram í dag og upplýsti að hann hefði verið misnotaður kynferðislega af þjálfaranum sínum er hann var unglingur. 23. nóvember 2016 11:30