Fréttir
29 30 31 32 33 34 35 36 37 … 334 ›
Langflestir telja stríð og átök það sem helst þjakar heiminn Rúmlega tveir af hverjum fimm telja stríð og átök mikilvægasta vandamálið sem heimurinn stendur frammi fyrir í skoðanakönnun. Þrátt fyrir að fátækt hafi verið nefnd næstoftast fækkar þeim töluvert sem nefna efnahagsleg vandamál sem helsta meinið. Innlent 12.5.2025 09:10
„Þau ákváðu einfaldlega að hann væri minna fatlaður í Garðabæ“ „Ég er ekki að segja þessa sögu til að kvarta, heldur af því að þetta er sannleikur sem margir þora ekki að segja upphátt,“ segir Greta Ósk Óskarsdóttir, móðir 19 ára pilts með fötlun, sem hefur nú stigið fram opinberlega til að segja frá því sem hún lýsir sem kerfisbundnu viðnámi gegn lögbundinni þjónustu fyrir son sinn í Garðabæ. Innlent 12.5.2025 08:00
Leysa upp samtökin og leggja niður vopn Ákvörðun hefur verið tekin um að leysa upp PKK, Verkamannaflokk Kúrda, og að liðsmenn þess skuli leggja niður vopn. Erlent 12.5.2025 07:18
Hlýnandi veður og gæti farið í tuttugu stig á morgun Hæð suðsuðvestur í hafi og lægð við norðausturströnd Grænlands mun beina suðvestlægri átt til landsins í dag. Yfirleitt verður vindum átta til átján metrar á sekúndu þar sem hvassast verður í vindstrengjum á norðanverðu landinu. Veður 12.5.2025 06:55
Vopnahlé hélt í nótt og viðræðum fram haldið Háttsettir embættismenn frá Indlandi og Pakistan munu hittast á fundi síðar í dag til að fínpússa skilmála um vopnahlé ríkjanna sem samið var um á laugardag. Erlent 12.5.2025 06:41
Kölluð út vegna viðskiptavinar með æsing Lögregla á höfuðborgarsvæðinu hafði í ýmsu að snúast í gærkvöldi og í nótt og var meðal annars kölluð út vegna heimilisofbeldismála, innbrots í skóla og æsings á öldu-húsi. Innlent 12.5.2025 06:19
Láta bandarískan gísl lausan Hamasliðar tilkynntu í dag að þeir hygðust leysa Bandaríkjamanninn Edan Alexander úr haldi. Hann er síðasti eftirlifandi gíslinn í þeirra haldi með bandarískt ríkisfang en hann er búinn að vera í gíslingu á Gasaströndinni frá sjöunda október 2023. Erlent 11.5.2025 23:55
Íslendingar handteknir á Spáni með mikið magn fíkniefna Þrír Íslendingar voru teknir fastir af spænska þjóðvarðaliðinu í Villajoyosa fyrir vörslu mikils magns fíkniefna. Efnin fundust falin í bíl sem þeir ætluðu flytja til Ibiza. Innlent 11.5.2025 23:06
Lalli Johns er látinn Lalli Johns, réttu nafni Lárus Björn Svavarsson, er látinn. Hann var 74 ára gamall. Innlent 11.5.2025 22:43
Afnám virðisaukaskatts geti skilað björgunarsveitum fúlgum fjár Landsbjörg hefur skorað á stjórnvöld að afnema virðisaukaskattsskyldu björgunarsveita, og telja það geta sparað tugi milljóna á ári hverju. Þá kallar félagið eftir því að brugðist verði við húsnæðisvanda viðbragðsaðila sem allra fyrst. Innlent 11.5.2025 21:21
Ein staða fornleifafræðings eftir á Þjóðminjasafninu Aðeins ein staða fornleifafræðings er eftir við Þjóðminjasafnið eftir uppsagnir þar sem fimm störf voru lögð niður. Þessi eini einstaklingur sér um að taka við öllum fornmunum sem berast safninu og hafa yfirsýn með þeim. Innlent 11.5.2025 19:27
Sker upp herör gegn kínverskum netrisum Umhverfisráðherra boðar aðgerðir gegn kínversku verslunarrisunum Temu og Shein. Það sé ólíðandi að vörur sem innihalda skaðleg efni séu fluttar inn til landsins í bílförmum. Til skoðunar er að gera greiðslumiðlunarfyriræki eða flutningsfyrirtæki ábyrg og takmarka þannig innflutning Innlent 11.5.2025 18:57
Mun bíða Pútíns í Tyrklandi á fimmtudag Vólódímír Selenskí Úkraínuforseti hefur þegið boð Vladímírs Pútíns Rússlandsforseta um að hefja beinar viðræður í Tyrklandi í vikunni. Hann segist munu bíða Pútíns þar á fimmtudaginn. Erlent 11.5.2025 18:32
Aðgerðir gegn Temu og Shein, hraðbanki í hættu og þreyttir hlaupagarpar í beinni Umhverfisráðherra boðar aðgerðir gegn kínversku verslunarrisunum Temu og Shein. Það sé ólíðandi að vörur sem innihalda skaðleg efni séu flutt inn til landsins í bílförmum. Til skoðunar er að gera greiðslumiðlunarfyriræki eða flutningsfyrirtæki ábyrg og takmarka innflutning. Við fjöllum um málið í kvöldfréttum Stöðvar 2. Innlent 11.5.2025 18:03
„Eiga sína síðustu daga í faðmi ástvina undir hamraslætti og múrborum“ Fjórir læknar mótmæla fyrirætlunum hjúkrunarheimilisins Sóltúns um að framkvæmdir fari fram ofan á byggingunni á meðan heimilisfólkið er vistað þar. Þeir segja múrborar og hamarshögg vanhelga síðustu stundir íbúa með fjölskyldu og vinum. Innlent 11.5.2025 17:41
Mótorhjólasamtök aðstoða börn sem hafa orðið fyrir ofbeldi Bikers against child abuse (BACA) eru alþjóðleg góðgerðarsamtök sem starfa í þeim tilgangi að búa börnum sem hafa orðið fyrir ofbeldi öruggara umhverfi. Íslandsarmur samtakanna starfar með vitund opinberra aðila og stofnana á borð við Kvennaathvarfið. Árlegur fjáröflunarakstur samtakanna verður á laugardaginn næstkomandi. Innlent 11.5.2025 16:21
Hækka þurfi veiðigjald í skrefum Breytingar á veiðigjaldi þurfa að eiga sér stað í skrefum og með samtali. Sjávarútvegurinn er tilbúinn í umræðu um hækkun þess með slíkum hætti segir Heiðrún Lind Marteinsdóttir, framkvæmdastjóri Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi. Innlent 11.5.2025 14:49
230 íbúðir í byggingu í Þorlákshöfn Sjaldan eða aldrei hefur verið jafn mikil uppbygging í Þorlákshöfn og um þessar mundir en í dag eru þar 230 íbúðir í byggingu. Þá er búði að stækka höfnina á staðnum og það er verið að byggja við sundlaugina og byggja við grunnskólann svo eitthvað sé nefnt. Innlent 11.5.2025 14:03
Vilja leggja réttarríkið til hliðar Embættismenn í ríkisstjórn Donalds Trump, forseta Bandaríkjanna, eru að skoða leiðir til að leggja rétt fólks á vernd gegn fangelsun án dóms og laga til hliðar. Það vilja þeir gera svo auðveldara verði fyrir þá að flytja fólk sem sakað er um að vera í Bandaríkjunum ólöglega úr landi. Erlent 11.5.2025 13:23
„Mikilvæg skref“ en allt velti á því hvort Pútín sé í stuði fyrir frið Mikilvæg skref hafa verið stigin í átt að vopnahléi í Úkraínu síðustu daga, að sögn utanríkisráðherra. Rússar segjast tilbúnir til viðræðna, en Úkraína og bandalagsþjóðir hennar hafa gert kröfu um skilyrðislaust vopnahlé fyrst. Erlent 11.5.2025 12:07
Vopnahlé og í beinni frá Basel og Öskjuhlíð Mikilvæg skref hafa verið stigin í átt að vopnahléi í Úkraínu síðustu daga, að sögn utanríkisráðherra. Rússar segjast tilbúnir til viðræðna en Úkraína og bandalagsþjóðir hafa gert kröfu um fyrst verði skilyrðislaust vopnahlé. Við ræðum við Þorgerði Katrínu í hádegisfréttum Bylgjunnar og mögulegar vendingar í stríðinu. Innlent 11.5.2025 11:49
Vopnahléið heldur en vígahugur ríkir enn Vopnahlé milli Indlands og Pakistan virðist hafa haldið velli í nótt, þó ráðamenn ríkjanna hafi sakað hvorn annan um að brjóta gegn því. Nokkrum klukkustundum eftir að vopnahléið tók gildi í gær sökuðu Indverjar og Pakistanar hvorn annan um árásir. Erlent 11.5.2025 11:43
Björgunarsveitir vilja undanþágu frá virðisaukaskatti Slysavarnarfélagið Landsbjörg segir nauðsynlegt að rekstrar- og skattaumhverfi björgunarsveitanna sé ekki óhóflega íþyngjandi, og eðlilegt væri að veita þeim undanþágu frá virðisaukaskatti. Innlent 11.5.2025 11:35
Gasa, veiðigjöld, gagnaleki og kolefni í Sprengisandi Sprengisandur er á sínum stað klukkan tíu þar sem Kristján Kristjánsson þáttastjórnandi ræðir samfélagsmálin við góða gesti. Innlent 11.5.2025 09:32
Hafnar aftur almennu vopnahléi og leggur til viðræður Vladimír Pútín, forseti Rússlands, lagði til í gær að hefja beinar viðræður við Úkraínumenn í Tyrklandi í vikunni. Var það í kjölfar þess að leiðtogar Bretlands, Frakklands, Þýskalands og Póllands kröfðust þess að Pútín samþykkti almenn þrjátíu daga vopnahlé, sem ríkisstjórn Donalds Trump, forseta Bandaríkjanna, hefur lagt til. Erlent 11.5.2025 08:12
Starfsmaður verslunar sleginn Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu barst í gærkvöldi tilkynning um líkamsárás þar sem starfsmaður verslunar á höfuðborgarsvæðinu hafði verið sleginn. Þegar lögregluþjóna bar að garði var gerandinn þó farinn af vettvangi og ekki fylgir sögunni í dagbók lögreglu hvort hann hafi verið gómaður seinna meir eða ekki. Innlent 11.5.2025 07:30
Einn fluttur á sjúkrahús vegna reykeitrunar Slökkviliðsmenn frá öllum stöðvum voru sendir að fjölbýlishúsi í Breiðholti þar sem eldur kviknaði í fjölbýlishúsi. Einn var sendur á slysadeild vegna reykeitrunar en slökkvistarfið mun þó hafa gengið mjög vel. Innlent 11.5.2025 07:23
„Vandræðalegt“ að stjórnin hafi ekki mannað eigin þingfund Þingflokksformaður Sjálfstæðisflokksins segir það „smá vandræðalegt“ fyrir ríkisstjórnina að hafa ekki getað mannað atkvæðagreiðslu á þingfundi sem þau sjálf ákváðu að setja á dagskrá. Hún lagði til á þingi í dag að frumvarpið yrði lagt fyrir efnahags og viðskiptanefnd í stað atvinnuveganefndar, en atkvæði verða greidd um tillöguna á mánudaginn. Innlent 11.5.2025 00:19
Handtekinn fyrir að vara við gyðingahatri á samfélagsmiðlum Fyrrverandi breskur lögregluþjónn á eftirlaunum var handtekinn vegna færslu sem hann birti á samfélagsmiðlinum X þar sem meiningin var að vara við vaxandi gyðingahatri á Englandi. Erlent 10.5.2025 23:27
Icelandair hættir rekstri stærstu flugvéla sinna Ráðamenn Icelandair hafa tekið þá ákvörðun að hætta breiðþoturekstri og nota eingöngu mjóþotur í millilandafluginu. Þá er framundan að ákveða hvort aðeins verði reknar Airbus-þotur eða hvort Boeing Max-þoturnar verði áfram í flotanum. Innlent 10.5.2025 22:11