Flug

Flug

Allt það helsta sem viðkemur flugi.

Fréttir í tímaröð

Fréttamynd

Fréttaþyrla NBC hrapaði í Los Angeles

Þrír létust og að minnsta kosti einn var fluttur á sjúkrahús þegar þyrla hrapaði í úthverfi Los Angeles í nótt. Um var að ræða fréttaþyrlu frá sjónvarpsstöðinni NBC og á myndbandi úr þyrlunni má sjá síðustu augnablikin áður en hún hrapaði til jarðar.

Erlent
Fréttamynd

Flug­virkjar fara í verk­fall

Flugvirkjafélag Íslands (FVFÍ) hefur tilkynnt Icelandair að flugvirkjar félagsins sem starfa hjá fyrirtækinu muni hefja ótímabundnar verkfallsaðgerðir miðvikudaginn 23. september næstkomandi. 

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Atlantic Airways gefur eftir í sam­keppni við Icelandair

Færeyska flugfélagið Atlantic Airways, eða Atlantsflog eins og það heitir á móðurmálinu, hefur ákveðið að fækka flugferðum milli Íslands og Færeyja í vetur, og raunar leggja Íslandsflug alfarið niður yfir háveturinn. Ástæðan er aukin samkeppni frá Icelandair, sem tilkynnti í lok maímánaðar að það hygðist fljúga allt árið til Færeyja.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Flug­virkjar hafi þegar fengið hækkanir

Forstjóri Icelandair segir að ef flugvirkjar samþykki að fara í verkfall hafi það verulega alvarlegar afleiðingar fyrir félagið sem nú þegar glími við krefjandi aðstæður. Hann segir að þó samningur flugvirkja sé sex ára gamall hafi komið til hækkanir á samningstímabilinu í takt við þróun á almennum vinnumarkaði.

Innlent
Fréttamynd

Lét lífið á Kefla­víkur­flug­velli

Erlendur ríkisborgari lést í Flugstöð Leifs Eiríkssonar á Keflavíkurflugvelli aðfaranótt 24. ágúst síðastliðinn. Þetta staðfestir lögreglan á Suðurnesjum sem telur að andlátið hafi ekki borið að með saknæmum hætti.

Innlent
Fréttamynd

Vara við af­leiðingunum

Stjórnendur Icelandair harma að Flugvirkjafélag Íslands hafi sett af stað atkvæðagreiðslu um ótímabundið allsherjarverkfall og vara við afleiðingunum ef slíkar aðgerðir verða að veruleika. Fulltrúi flugvirkja segir þá hafa dregist aftur úr almennri launaþróun á meðan Icelandair segir kröfurnar óraunhæfar. Flugfélagið geti ekki teygt sig lengra.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Reyndi að vara við að flug­vélin færi of hratt

Annar flugmanna fraktflugvélar Amazon sem rann út af flugbraut í Miami reyndi að vara hinn við að vélin færi of hratt í tvær mínútur fyrir lendinguna og eftir að hún snerti flugbrautina. Sérfræðingar segja að flugmennirnir hefðu auðveldlega getað komið í veg fyrir slysið.

Erlent
Fréttamynd

Hekla Aurora skorin niður í minja­gripi

Norðurljósaflugvélin Hekla Aurora fór ekki öll í bræðslupotta. Þýskt félag, Aviationtag, með aðsetur í Köln, fékk við niðurrif hennar að skera búta úr skrokknum til að smíða úr þeim minjagripi.

Innlent
Fréttamynd

Telja ís­lenska birgja sátta og áfengisverð í frí­höfninni sam­keppnis­hæft

Forsvarsmenn Heinemann sem opnuðu nýja og endurbætta fríhöfn á Keflavíkurflugvelli í dag segjast telja íslenska birgja sem selja vörur sínar í fríhöfninni vera sátta, þeir hafi lært margt síðan þeir tóku yfir rekstur fríhafnarinnar á síðasta ári. Þá segja þeir áfengisverð í fríhöfninni samkeppnishæft þó ekki sé hægt að fullyrða að allar vörur séu ódýrari en í fríhöfnum í Kaupmannahöfn og í Frankfurt.

Innlent
Fréttamynd

Breytingar á innan­lands­flugi vegna bilunar

Icelandair þarf að gera breytingar á innanlandsflugáætlun tímabundið vegna bilunar á einni flugvélanna sem sinna fluginu. Í tilkynningu kemur fram að breytingin muni vara frá og með morgundeginum, 10. september, og í tvær vikur.

Innlent
Fréttamynd

Svona er um­horfs í endur­bættri frí­höfn

Forsvarsmenn Ísland Duty Free kynntu breytingar á fríhafnarverslunum á Keflavíkurflugvelli á blaðamannafundi klukkan tíu. Fréttastofa kíkti á fríhöfnina í beinni útsendingu en horfa má á bæði blaðamannafundinn og gönguna um fríhöfnina hér fyrir neðan.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Ekkert heitt vatn á Suður­nesjum í dag

HS Veitur og HS Orka ráðast í viðamiklar framkvæmdir í dag og verður lokað fyrir heitt vatn á Suðurnesjum vegna þeirra. Búið er að skrúfa fyrir vatnið á hluta svæðisins.

Innlent
Fréttamynd

Allir þeir látnu í bílum sem flug­vélin rann á

Fimm manns sem létust þegar fraktflugvél Amazon rann út af flugbraut í Miami í Bandaríkjunum á sunnudag voru allir í bílum sem urðu fyrir flugvélinni. Rannsókn á slysinu beinist meðal annars að hvers vegna flugmenn vélarinnar hættu ekki við lendinguna.

Erlent
Fréttamynd

Minnst fimm látnir eftir flug­slys í Flórída

Minnst fimm eru látnir eftir flugslys í Flórídaríki í Bandaríkjunum þar sem fraktflugvél á vegum netverslunarinnar Amazon fór út af flugbraut og lenti á bifreiðum utan hennar. Vélin var á leið frá San Juan í Púertó Ríkó til Miami-borgar.

Erlent
Fréttamynd

Narsarsuaq-flugvöllur að öðlast fram­halds­líf

Helsti tengiflugvöllur milli Grænlands og Íslands um áratugaskeið, flugvöllurinn í Narsarsuaq, er á leið með að öðlast framhaldslíf. Varnarmálaráðherra Danmerkur hefur óskað eftir samþykki fjárlaganefndar danska þingsins fyrir fjárveitingu sem tryggir lágmarksrekstur Narsarsuaq-flugvallar í ár og næsta ár.

Innlent
Fréttamynd

Fegursta flug­vél Ís­lands rifin

Niðurrif Boeing 757-þotunnar Heklu Auroru, eða Norðurljósaþotunnar, er hafið. Flugáhugamenn sögðu margir þotuna eina fegurstu flugvél heims en hún flaug sitt síðasta flug í október síðastliðnum. 

Innlent
Fréttamynd

„Ekkert af þessu er bein­línis að hjálpa okkur“

Ríkissáttasemjari segir óljóst hvort kjarasamningar Icelandair og flugmanna náist fyrir 15. september eins og stefnt var að. Enn beri mikið á milli og deilan sé snúin. Kaup Icelandair á Play Europe og nýleg svefnkönnun Félags íslenskra atvinnuflugmanna hjálpi ekki til í viðræðunum.

Innlent