Veður

Fréttamynd

Engar við­varanir

Lægðin sem olli storminum í gær er nú fyrir norðan land og fjarlægist. Engar veðurviðvaranir eru í gildi en veðrið hefur leikið íbúa landsins grátt síðustu daga. 

Veður

Fréttir í tímaröð

Fréttamynd

Varar við ferðum milli Hafnar og Djúpa­vogs

Einar Sveinbjörnsson veðurfræðingur segir að sérlega varasamar aðstæður verði í kvöld milli Hafnar og Djúpavogs vegna hvassviðris. Leiðin sé þekkt fyrir algenga og skeinuhætta sviptivinda. 

Veður
Fréttamynd

Fylgstu með lægðinni í beinni

Viðvaranir eru í gildi víða um land vegna lægðar sem nálgast landið úr suðri. Appelsínugular viðvaranir verða í gildi í Breiðafirði, á Vestfjörðum og Norðurlandi vestra í kvöld og í nótt.  

Veður
Fréttamynd

Við­varanir á við­varanir ofan

Hringveginum verður lokað undir Eyjafjöllum og alveg að Öræfum frá klukkan fimm í fyrramálið til klukkan níu hið minnsta vegna óveðursins fram undan. Spáð er norðan stórhríð á Vestfjörðum og Norðurlandi og stöku hviðum upp á 40 metra á sekúndu fyrir sunnan.

Veður
Fréttamynd

Appel­sínu­gular og gular við­varanir gefnar út

Veðurstofan hefur gefið út bæði gular og appelsínugular viðvaranir á stærstum hluta landsins á miðvikudag. Von er á stormi og stórhríð og hefur veðurfræðingur sagt að gera megi ráð fyrir að meðal annars verði raskanir á flugi.

Veður
Fréttamynd

Suð­austan stormur og gul við­vörun

Búast má við suðaustan hvassviðri eða stormi sunnan- og suðvestanlands með rigningu í kvöld. Gul viðvörun vegna storms tekur gildi klukkan tíu í kvöld á Suðurlandi.

Veður
Fréttamynd

Milt og blautt í dag

Við erum á milli veðrakerfa í dag samkvæmt veðurfræðingi og hæg breytileg átt því ríkjandi og dálitlar skúrir í flestum hlutum landsins. Hitinn er frá þremur og upp í tíu stig.

Veður
Fréttamynd

All­mikil lægð þokast með­fram landinu

Vindar verða fremur hægir í dag en norðan- og norðvestanstrekkingur úti við norðvestur- og suðvesturströndina. Samkvæmt spá Veðurstofu Íslands fylgir þessu rigning með köflum eða skúrir.

Veður
Fréttamynd

Mikil rigning og all­hvass vindur

Skil eru á leið yfir landið og með þeim fylgir allhvass eða hvass vindur af suðaustri og mikil rigning sunnan- og vestantil á landinu. Það lægir seinnipartinn.

Veður
Fréttamynd

Frost í nótt en hlýnar yfir daginn

Smálægð skammt norðvestur af landinu stjórnar veðrinu í dag og verður áttin því suðlæg eða breytileg. Það fyrsti allvíða í nótt en hiti yfir daginn verður á milli tveggja og níu stiga.

Veður
Fréttamynd

Nætur­frost víða

Kraftlitlar smálægðir eru á sveimi í kringum landið og verður því áttin breytileg í dag samkvæmt spá Veðurstofu Íslands. Það frysti víða í nótt.

Veður
Fréttamynd

Slydda og snjó­koma til fjalla

Búast má við rigningu í norðausturfjórðungi landins en bjartviðri og norðanátt upp á þrjá til átta metra á sekúndu á vestanverðu landinu samkvæmt spá Veðurstofu Íslands.

Veður
Fréttamynd

Lægðin ætlar ekki að láta okkur í friði al­veg strax

Lægðin sem olli úrhelli í gær er hvergi á förum og mun áfram stýra veðrinu víða um landið í dag. Þá er víða væta og vestan norðvestan 8 til 13 metrar á sekúndu en búast má við snarpari vindi syðst á landinu og getur verið varasamt fyrir ökutæki sem taka á sig mikinn vind að ferðast undir Mýrdals- og Öræfajökli svo dæmi sé tekið.

Veður
Fréttamynd

Lægð sendir regnsvæði sitt yfir landið

Það er blautur laugardagur í vændum og lægð sendir regnsvæði sitt yfir allt landið, að sögn veðurfræðings. Spáð er suðaustan og sunnan átta til þrettán metrum á sekúndu með rigningu í dag og gert ráð fyrir talsverðri úrkomu á Suður- og Vesturlandi fram undir kvöld. Hiti á bilinu sjö til tólf stig.

Veður
Fréttamynd

Vara við stormi á norðaustan­verðu landinu

Gular viðvaranir hafa verið gefnar út vegna suðaustan storms á norðaustanverðu landinu í nótt og fram á morgundaginn. Viðvaranir eru þegar í gildi á Suðausturlandi og miðhálendinu vegna mikillar úrkomu.

Veður
Fréttamynd

Auknar líkur á skriðu­föllum á Suðaustur­landi og Aust­fjörðum

Auknar líkur eru á skriðuföllum á Suðausturlandi, sunnanverðum Austfjörðum og á miðhálendinu fram á aðfaranótt föstudags. Frá þessu er greint í tilkynningu frá Veðurstofunni. Þar kemur fram að talsverðri til mikilli úrkomu sé spáð, einkum á Suðausturlandi, við jökla á Suðurlandi, á sunnanverðu miðhálendinu og sunnanverðum Austfjörðum fram á fimmtudagskvöld.

Veður
Fréttamynd

Gular við­varanir í nótt vegna rigningar

Gular veðurviðvaranir taka gildi á Suðausturlandi og miðhálendinu klukkan tvö í nótt vegna mikillar úrkomu. Viðvaranirnar verða í gildi til klukkan þrjú síðdegis á morgun, miðvikudaginn 30. september.

Veður
Fréttamynd

Á­fram spáð tals­verðri úr­komu norðvestan­lands

Búast má við talsverðri úrkomu á norðvesturhluta landsins, rigningu á láglendi en slyddu eða snjókomu til fjalla. Úrkomulítið verður annars staðar á landinu, þó má búast við vætu á köflum suðaustan- og austanlands. Hiti verður á bilinu þrjú til ellefu stig, svalast á Vestfjörðum.

Veður
Fréttamynd

Enn hætta á skriðum

Enn er hætta á skriðum og grjóthruni á norðanverðum Vestfjörðum og Ströndum og nokkuð hefur verið um grjót sem hefur fallið á vegi.  Mikil úrkoma hefur verið á svæðinu síðan á fimmtudag og spáð er áframhaldandi úrkomu fram á mánudag. 

Veður
Fréttamynd

Líkur á slyddu og snjó­komu á Vest­fjörðum

Gera má ráð fyrir talsverðri úrkomu um norðvestanvert landið í dag en slyddu og snjókomu til fjalla. Skýjað verður með köflum sunnan- og austantil og sums staðar væta. Hiti verður á bilinu þrjú til tólf stig, svalast á Vestfjörðum en mildast á landinu austanverðu.

Veður
Fréttamynd

Við­varanir fyrir vestan í allan dag

Gular viðvaranir eru í gildi á Vestfjörðum, Ströndum og Norðurlandi vestra vegna storms og mikillar rigningar. Viðvaranirnar verða í gildi í allan dag og fram á kvöld.

Veður
Fréttamynd

Rigning og vindur

Í dag er vaxandi austanátt, víða 13 til tuttugu metrar á sekúndu með morgninum en átján til 25 metrar á sekúndu sunnanlands fram að hádegi. Rigning um allt land og talsverð eða mikil úrkoma á Suðausturlandi og Austfjörðum fram á kvöld. 

Veður