Erlent
7 8 9 10 11 12 13 14 15 … 334 ›
Opinberaði „siguráætlun“ sína á þingi Vólódímír Selenskí, forseti Úkraínu, kynnti á þingi landsins í morgun „siguráætlun“ sína. Í ávarpi á þinginu fór hann yfir helstu atriði áætlunarinnar og reyndi að stappa stálinu í þjóð sína. Áætlunin veltur að miklu leyti á bakhjörlum Úkraínu og skilyrðislausu boði um inngöngu í Atlantshafsbandalagið. Erlent 16.10.2024 11:22
Klófestu leigumorðingja sem dulbjó sig sem gamlan mann Lögreglan í Serbíu handtók í gær leigumorðingja sem myrti mann í Belgrad fyrir skipulögð glæpasamtök árið 2021. Leigumorðinginn er sagður hafa dulbúið sig sem gamlan mann til þess að nálgast fórnarlambið. Erlent 16.10.2024 09:05
Metsekt fyrir að mismuna gyðingum og banna þeim að fljúga Bandaríska ríkið hefur sektað flugfélagið Lufthansa um fjórar milljónir dala fyrir að hafa bannað gyðingum að ganga um borð í vél félagsins árið 2022 þar sem sumir þeirra neituðu að bera sóttvarnagrímu. Erlent 16.10.2024 08:15
Lagði Trump til 10 milljarða króna á þremur mánuðum Auðjöfurinn Elon Musk gaf 75 milljónir dala, jafnvirði rúmlega 10 milljarða króna, í kosningasjóðinn America PAC á aðeins þremur mánuðum, sem fjármagnar aðgerðir til að fá kjósendur Donald Trump á kjörstað í barátturíkjunum sjö. Erlent 16.10.2024 07:09
Halda áfram árásum á Beirút en með gult spjald frá Bandaríkjunum Ísraelsher gerði loftárásir á skotmörk í Beirút, höfuðborg Líbanon, í morgun í fyrsta sinn í fimm daga. Samkvæmt hernum var ráðist gegn vopnageymslum Hezbollah í suðurhluta Beirút og var íbúum á svæðinu ráðlagt að forða sér áður en þær hófust. Erlent 16.10.2024 06:44
Hugmyndir uppi um „úrvinnslumiðstöðvar“ utan Evrópusambandsins Ursula von der Leyen, forseti framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins, hefur viðrað þá hugmynd að aðildarríkin horfi til þess að gera samninga um „úrvinnslumiðstöðvar“ fyrir hælisleitendur utan sambandsins. Erlent 16.10.2024 06:23
Lauk afplánun fyrir teikningu dóttur sinnar Rússneskur faðir sem var sakfelldur fyrir óhróður um herinn vegna myndar sem dóttir hans teiknaði er laus úr fangelsi eftir eins og hálfs árs vist. Skólastjóri stúlkunnar tilkynnti lögreglu um teikninguna á sínum tíma. Erlent 15.10.2024 15:49
Stofna herfylki skipað mönnum frá Norður-Kóreu Forsvarsmenn rússneska hersins eru sagðir vera að stofna nýtt herfylki sem skipað verður allt að þrjú þúsund mönnum frá Norður-Kóreu. Kim Jon Un, einræðisherra Norður-Kóreu, hefur heitið Vladimír Pútín, kollega sínum, fullum stuðningi vegna innrásar Rússa í Úkraínu. Erlent 15.10.2024 14:14
Sagður ekki munu ráðast gegn olíu- né kjarnorkuinnviðum Heimildarmenn Washington Post innan bandaríska stjórnkerfisins segja Benjamin Netanyahu, forsætisráðherra Ísrael, hafa greint Joe Biden Bandaríkjaforseta frá því í samtali þeirra á dögunum að hann hefði í hyggju að ráðast gegn hernaðarskotmörkum í Íran til að hefna fyrir árásir Írana á Ísrael. Erlent 15.10.2024 12:10
Kosningafundur breyttist í undarlegt diskótek Kosningafundur Donalds Trump, fyrrverandi forseta Bandaríkjanna, í Pennsylvaníu í gær breyttist í einhverskonar diskótek eftir að huga þurfti að tveimur áhorfendum í salnum. Í stað þess að svara spurningum úr sal, eins og til stóð, lét Trump spila tónlist í tæpar fjörutíu mínútur á meðan hann stóð á sviðinu og vaggaði sér. Erlent 15.10.2024 11:40
Saka yfirvöld í Indlandi um ofbeldi og morð í Kanada Justin Trudeau, forsætisráðherra Kanada, hefur sakað ríkisstjórn Indlands um aðild að glæpum, ofbeldi og morðum í Kanada. Hann sakaði Indverja um að hafa gert „grundvallar mistök“ og að aðgerðir þeirra væru alfarið óásættanlegar. Erlent 15.10.2024 10:41
Fyrrum Stasímaður dæmdur fyrir fimmtíu ára gamalt morð Áttræður fyrrverandi fulltrúi austurþýsku öryggislögreglunnar Stasí hefur verið dæmdur í tíu ára fangelsi fyrir að myrða pólskan mann sem reyndi að flýja til Vestur-Berlínar fyrir hálfri öld. Maðurinn var ákærður eftir rannsókn sagnfræðinga og pólskra yfirvalda. Erlent 15.10.2024 09:36
Taugaeitur til að drepa þúsundir manna skilið eftir á glámbekk Taugaeitrið sem rússneskir útsendarar höfðu komið fyrir í ilmvatnsflösku og skilið eftir á glámbekk í Bretlandi árið 2018, eftir að þeir reyndu að ráða njósnarann Sergei Skripal af dögum, var í nægjanlegu magni til að drepa þúsundir manna. Hin 44 gamla Dawn Sturgess dó eftir að hún sprautaði því sem hún hélt að væri ilmvatn á sig. Erlent 15.10.2024 08:01
Harris situr fyrir svörum hjá Fox News á morgun Kamala Harris, varaforseti Bandaríkjanna og forsetaefni Demókrata, hefur samþykkt að veita Fox News viðtal, sem tekið verður á morgun og sýnt um kvöldið. Erlent 15.10.2024 07:04
Hóta frekari aðgerðum eftir umfangsmiklar æfingar Kínverjar héldu í dag gífurlega umfangsmiklar heræfingar kringum Taívan. Æfingarnar voru haldnar í kjölfar þess að forseti eyríkisins hélt í síðustu viku ræðu þar sem hann ítrekaði fullveldi Taívans og sagði ráðamenn Í Peking ekki eiga tilkall til eyjunnar. Erlent 14.10.2024 15:29
Leggur til að beita hernum gegn andstæðingum sínum Donald Trump, fyrrverandi forseti Bandaríkjanna, segist mögulega vilja siga þjóðvarðliði ríkisins eða bandaríska hernum, gegn „innri óvinum“. Fólki sem hann lýsti um helgina sem „öfga-, vinstri geðsjúklingum“ en slíka orðræðu hefur hann ítrekað notað um pólitíska andstæðinga sína. Erlent 14.10.2024 14:01
Leggur upp í leit að lífvænlegum aðstæðum á Evrópu Fyrsti könnunarleiðangurinn til ístunglsins Evrópu gæti hafist í dag með geimskoti bandaríska geimfarsins Europa Clipper. Evrópa þykir einn mest spennandi hnöttur sólkerfisins því neðanjarðarhaf er talið að finna undir ísilögðu yfirborðinu. Erlent 14.10.2024 12:02
Verðlaunaðir fyrir rannsóknir á áhrifum stofnana á auðlegð þjóða Þrír hagfræðingar deila Nóbelsverðlaunum í hagfræði fyrir rannsóknir sem sýna hvaða þýðingu stofnanir samfélagsins hafa fyrir velgengni þess. Rannsóknir þeirra eru sagðar hafa varpað ljósi á hvers vegna sumum þjóðum vegnar vel en öðrum illa. Erlent 14.10.2024 11:40
Nota óbreytta Palestínumenn til að leita að sprengjum og gildrum Ísraelskir hermenn hafa ítrekað notað óbreytta Palestínumenn sem handsamaðir eru á Gasaströndinni sem mennska skildi, meðal annars með því að þvinga þá til að fara inn í byggingar og leita að sprengjum og gildrum. Tilfellum sem þessum hefur farið fjölgandi. Erlent 14.10.2024 10:19
Ekki grunaður um að hafa ætlað að drepa Trump Manninum sem var handtekinn á kosningafundi Donalds Trump í Kalíforníu um helgina hefur nú verið sleppt úr haldi gegn tryggingu. Erlent 14.10.2024 08:55
Vilja endurreist æru þeirra sem neituðu að berjast Fjölskyldur 20 manna sem voru fangelsaðir fyrir að neita að berjast fyrir yfirráðum Hollands á Indónesíu eftir seinni heimstyrjöldina krefjast þess að mennirnir verði hreinsaðir af sök. Erlent 14.10.2024 08:09
Fjórir létust og sjö særðust alvarlega í árás á ísraelska herstöð Fjórir hermenn Ísraelshers létust og sjö særðust alvarlega í drónaárás Hezbollah á herstöð nærri Binyamina í gær. Um var að ræða hefndarárás vegna árása Ísraels á Beirút á fimmtudag, þar sem 22 létu lífið. Erlent 14.10.2024 06:48
„Þriðja banatilræðinu“ gegn Trump afstýrt Maður sem var með tvö skotvopn og fjölmörg vegabréf í fórum sínum var handtekinn á kosningafundi Donald Trump, fyrrverandi forseta Bandaríkjanna, við Coachella-dal í Kaliforníu-ríki í Bandaríkjunum í gær. Erlent 13.10.2024 23:04
Gripu eldflaugarþrep á stærð við Hallgrímskirkju með vélarmi Geimferðafyrirtækinu SpaceX tókst í fyrsta skipti að grípa risavaxið eldflaugarþrep með vélarmi á skotpallinum við tilraunaflug í dag. Eldflaugarþrepið er 71 metri á hæð, örlítið lægra en Hallgrímskirkjuturn. Erlent 13.10.2024 13:56
Vill friðargæsluliðið út úr Suður-Líbanon strax Forsætisráðherra Ísraels krefst þess að framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna dragi friðargæslulið þeirra frá Líbanon nú þegar. Tugir ríkja hafa fordæmt árásir Ísraela á friðargæsluliðana undanfarna daga. Erlent 13.10.2024 13:15
Óútskýrður dauði ungrar blaðakonu í haldi Rússa Rússneska varnarmálaráðuneytið hefur engar skýringar á dauða Viktoriiu Roshchynu, úkraínskrar blaðakonu, í rússnesku fangelsi. Blaðakonan, sem var 27 ára gömul, hvarf í hernumdri Austur-Úkraínu í ágúst í fyrra. Erlent 13.10.2024 10:00
Segja átta manna fjölskyldu hafa fallið í loftárás Ísraela Palestínsk heilbrigðisyfirvöld segja að átta manna fjölskylda í Nuseirat-flóttamannabúðunum hafi fallið í loftárás Ísraela á miðri Gasaströndinni seint í gærkvöldi. Ísraelar hafa skipað hátt í hálfri milljón manna að rýma norðanverða Gasa. Erlent 13.10.2024 08:20
Hundrað og fjögur ríki lýsa yfir stuðningi við Guterres Hundrað og fjögur ríki eiga aðild að sameiginlegri stuðningsyfirlýsingu við António Guterres, framkvæmdastjóra Sameinuðu þjóðanna, eftir að stjórnvöld í Ísrael lýstu hann „persona non grata“. Erlent 12.10.2024 23:34
Afnema tímabundið réttinn til að óska hælis Donald Tusk, forsætisráðherra Póllands, hefur kynnt fyrirætlanir stjórnvalda í landinu um að taka tímabundið úr gildi réttinn til að óska hælis. Erlent 12.10.2024 21:57
Birtu gögn um heilsu Harris og sjúkrasögu hennar Framboð Kamölu Harris birti í dag skýrslu um heilsu varaforsetans og forsetaframbjóðandans þar sem niðurstaðan er sú að hún sé bæði líkamlega og andlega fær um að sinna forsetaembættinu. Erlent 12.10.2024 21:23