Erlent
1 2 3 4 5 6 7 8 … 334 ›
Mangione líka ákærður af alríkissaksóknurum Luigi Mangione, sem er grunaður um að hafa ráðið Brian Thompson, forstjóra UnitedHealthcare, bana hefur verið ákærður af alríkissaksóknurum í New York fyrir manndráp. Erlent 19.12.2024 21:08
Saksóknari sagður óhæfur í síðasta málinu gegn Trump Þriggja dómara áfrýjunarnefnd í Georgíu hefur komist að þeirri niðurstöðu að héraðssaksóknarinn Fani Willis sé óhæf til að sækja mál gegn Donald Trump, þar sem hann og aðrir hafa verið ákærðir fyrir að reyna að snúa úrslitum forsetakosninganna 2020 í ríkinu. Erlent 19.12.2024 16:28
Þrjátíu og fimm börn tróðust undir á jólahátíð Að minnsta kosti 35 börn eru látin eftir að hafa troðist undir á jólahátíð í Ibadan í Nígeríu í gær. Forsvarsmenn hátíðarinnar höfðu lofað peningaverðlaunum og mat fyrir gesti en íbúar segja rúmlega fimm þúsund börn hafa mætt, auk foreldra og annarra. Erlent 19.12.2024 16:00
Danskt sjúkrahús kært til lögreglu vegna tilrauna á ungum drengjum Rannsóknasiðanefnd Danmerkur hefur kært ríkissjúkrahúsið í Kaupmannahöfn og lækni vegna rannsóknar á ungum drengjum. Upp komst um ágalla á rannsókninni þegar þurfti að skrá hana í nýtt samevrópskt kerfi. Erlent 19.12.2024 15:33
Musk og Trump valda uppnámi í Washington Donald Trump, sem tekur við embætti forseta Bandaríkjanna eftir rúman mánuð, gekk að öllum líkindum frá nýju fjárlagafrumvarpi til skamms tíma sem byggði á samkomulagi milli Repúblikana og Demókrata á Bandaríkjaþingi. Í leiðinni gróf hann verulega undan Mike Johnson, forseta fulltrúadeildarinnar, og það gerði hann að undirlagi auðjöfursins Elons Musk. Erlent 19.12.2024 14:54
Skorar vestrið á hólm í 21. aldar einvígi Valdimír Pútín, forseti Rússlands, skoraði í morgun Vesturlönd á hólm í Úkraínu. Pútín sagði að Vesturlönd ættu að koma öllum sínum bestu loftvarnarkerfum fyrir í Kænugarði og reyna að stöðva eldflaugaárás Rússa á borgina. Hann sagði vestræn loftvarnarkerfi ekki eiga séns á að stöðva nýlega eldflaug Rússa. Erlent 19.12.2024 13:39
Vaktin: Dominique Pelicot dæmdur í tuttugu ára fangelsi Dominique Pelicot hefur verið sakfelldur í öllum ákæruliðum fyrir að nauðga eiginkonu sinni í mörg ár og byrla henni ólyfjan svo aðrir menn gætu nauðgað henni. Enginn af hinum mönnunum fimmtíu var sýknaður að fullu. Í einu tilfelli var einn sýknaður af ákæru um nauðgun en sakfelldur fyrir annarskonar kynferðisbrot. Erlent 19.12.2024 08:55
Hætta að rukka í almenningssamgöngurnar Borgaryfirvöld í serbnesku höfuðborginni Belgrad hafa ákveðið að gera notkun almenningssamgangna í borginni gjaldfrjálsa frá og með áramótum. Er þetta liður í því að reyna að létta á umferð í borginni og draga úr töfum. Erlent 19.12.2024 07:53
Dómar yfirvofandi í máli Pelicot Dómarar í frönsku borginni Avignon munu dæma Pelicot málinu svokallaða síðar í dag en þar eru fimmtíu og einn karl ákærðir fyrir að nauðga Gisèle Pelicot reglulega í um áratug. Erlent 19.12.2024 06:38
Ætla að birta Gaetz-skýrsluna eftir allt saman Meðlimir siðanefndar fulltrúadeildar Bandaríkjaþings héldu fyrr í desember leynilega atkvæðagreiðslu. Atkvæðagreiðslan var um skýrslu nefndarinnar um Matt Gaetz, umdeildan fyrrverandi þingmann Repúblikanaflokksins sem Donald Trump tilnefndi um tíma í embætti dómsmálaráðherra, og var samþykkt að birta skýrsluna. Erlent 18.12.2024 16:49
Hæstiréttur staðfestir dóm yfir Sarkozy Hæstiréttur Frakklands staðfesti í dag þriggja ára fangelsisdóm fyrir forsetanum fyrrverandi, Nicolas Sarkozy. Tvö ár skulu vera skilorðsbundin en hann mun geta afplánað það þriðja með því að bera ökklaband. Erlent 18.12.2024 14:20
Segir sýrlensku þjóðina þreytta og vilja fá að lifa í friði Ahmed al-Sharaa, valdamesti maður Sýrlands þessa dagana, vill að viðskiptaþvinganir gegn Sýrlandi verði felldar niður. Annars verði gífurlegar erfitt að endurbyggja Sýrland eftir þrettán ára borgarastyrjöld. Hann segir endurbyggingu landsins vera í algjörum forgangi. Erlent 18.12.2024 13:49
Bera til baka fregnir um að ferðamenn hafi veikst af menguðu áfengi Ferðamálayfirvöld á Fídji segja að sjö erlendir ríkisborgarar sem veiktust eftir að þeir drukku hanastél á lúxushóteli hafi ekki orðið fyrir eitrun af völdum tréspíra eða ólöglegra lyfja. Málið olli fjaðrafoki í eyríkinu sem reiðir sig að miklu leyti á ferðaþjónustu. Erlent 18.12.2024 13:40
Lýsa þungum áhyggjum af HM í Sádi-Arabíu Hópur Evrópuþingmanna hefur sent Alþjóðaknattspyrnusambandinu (FIFA) bréf þar sem lýst er þungum áhyggjum af ákvörðun sambandsins um að halda heimsmeistaramótið 2034 í Sádi-Arabíu. Hún veki spurningar um hvort FIFA láti sig mannréttindi varða. Erlent 18.12.2024 12:17
„Kimdátar“ berjast og falla í Kúrsk Undanfarna daga hafa fregnir borist af því að dátar Kims Jong Un frá Norður-Kóreu hafi tekið þátt í bardögum gegn úkraínskum hermönnum í Kúrskhéraði í Rússlandi. Þar eru þeir sagðir hafa orðið fyrir mannfalli en úkraínskir hermenn hafa sagt þá sækja fram án stuðnings og bryndreka. Erlent 18.12.2024 10:52
Einkavæðingaráform gætu hrakið Ísrael úr Eurovision Stríðsrekstur Ísraela á Gasa og víðar fyrir botni Miðjarðarhafs leiddi til mikilla mótmæla þegar Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva, Eurovision, fór fram í Malmö í Svíþjóð í maí síðastliðinn. Nú er hugsanlegt að Ísrael verði meinuð þátttaka í keppninni, þó af allt annarri ástæðu. Erlent 18.12.2024 08:38
Úsbeki í haldi Rússa grunaður um drápið á Kirillov Rússneska leyniþjónustan FSB segist hafa handtekið tuttugu og níu ára gamlan mann frá Úsbekistan grunaðan um að hafa ráðið Igor Kirillov, rússneska hershöfðingjann sem var sprengdur í loft upp í Moskvu í gærmorgun, af dögum. Erlent 18.12.2024 07:37
Mangione ákærður fyrir morðið á forstjóranum Luigi Mangione, sem er grunaður um að hafa ráðið forstjóra UnitedHealthcare, bana hefur verið ákærður fyrir manndráp af héraðssaksóknara í New York-borg. Erlent 17.12.2024 21:37
Ákærður fyrir sjöunda morðið Rex Heuermann, sem grunaður er um að hafa framið Gilgo Beach morðin svokölluðu, hefur verið ákærður fyrir sjöunda morðið. Saksóknarar segja Heuermann vera raðmorðingja og er nú sakaður um morðið á vændiskonunni Valerie Mack, sem hvarf fyrir rúmum tveimur áratugum. Erlent 17.12.2024 16:03
Útsendarar SBU sagðir hafa ráðið herforingjann af dögum Úkraínskir embættismenn segja að útsendarar Öryggisstofnunar Úkraínu, sem er leyniþjónsta og í daglegu tali kallast SBU, hafi ráðið rússneskan herforingja af dögum í Mosvku í morgun. Herforinginn var í gær ákærður í Úkraínu fyrir notkun efnavopna. Erlent 17.12.2024 11:21
Losnar úr fangelsi og verður ekki framseldur til Japan Kanadíski umhverfisaðgerðasinninn Paul Watson verður ekki framseldur til Japan. Honum verður sleppt úr haldi í Grænlandi, eftir að hafa setið í gæsluvarðhaldi þar í tæpa fimm mánuði. Erlent 17.12.2024 11:02
Viðræður um vopnahlé sagðar á lokametrunum Embættismenn í bæði Palestínu og Ísrael hafa gefið til kynna að eftir margra mánaða viðræður sé vopnahlé á Gasaströndinni í sjónmáli. Viðræður um vopnahlé og mögulega frelsun þeirra gísla sem Hamas-liðar halda enn hafa virst frosnar um mánaða skeið. Erlent 17.12.2024 10:37
Sakfelling Trumps stendur Sakfelling Donalds Trump, verðandi forseta Bandaríkjanna, í þöggunarmálinu svokallaða í New York verður ekki felld niður. Lögmenn Trumps höfðu farið fram á það á grunni úrskurðar Hæstaréttar Bandaríkjanna um að forseti Bandaríkjanna nyti friðhelgi vegna opinberra starfa. Erlent 17.12.2024 09:53
Morðinginn í Madison var fimmtán ára unglingsstúlka Lögreglan í Madison í Wisconsin í Bandaríkjunum hefur nú nafngreint gerandann í skotárás sem gerð var í grunnskóla í borginni í gær. Erlent 17.12.2024 08:25
Öflugur skjálfti reið yfir Vanúatú Öflugur jarðskjálfti sem mældist 7,3 stig reið yfir smáríkið Vanúatú í Kyrrahafi í nótt. Erlent 17.12.2024 08:17
Kanni frekar mögulegar aukaverkanir af notkun Ozempic Tvær nýjar rannsóknir vísindamanna við Háskólann í Suður-Danmörku (d. Syddansk Universitet) í Óðinsvéum benda til að mögulega séu auknar líkur á að þeir sem notist við þyngdarstjórnunarlyfið Ozempic þrói með sér sjaldgæfan augnsjúkdóm, Naion. Erlent 17.12.2024 07:51
Rússneskur hershöfðingi sprengdur í loft upp í Moskvu Rússneskur hershöfðingi, Igor Kirillov, var drepinn í Moskvu í morgun þegar sprengja sprakk um leið og hann kom út úr íbúðabyggingu í höfuðborginni. Erlent 17.12.2024 07:29
Fjármálaráðherra Kanada segir af sér Chrystia Freeland fjármálaráðherra Kanada sagði af sér í dag. Ástæðuna sagði hún ágreining milli sín og Justin Trudeau forsætisráðherra Kanada. Erlent 16.12.2024 22:07
Þrír látnir eftir skotárás í grunnskóla Þrír eru látnir eftir skotárás í grunnskóla í Madison í Wisconsin-ríki Bandaríkjanna. Sex eru að auki særð, þar af tvö lífshættulega. Erlent 16.12.2024 21:50
Sérfræðingi í rannsókn Letby hafi snúist hugur Lögmenn Lucy Letby, sem dæmd hefur verið fyrir að bana sjö ungbörnum á tveggja ára tímabili, segja sérfræðingnum sem var yfir rannsókn á máli hennar hafa snúist hugur. Hann muni biðja um að mál hennar verði tekið upp á ný. Erlent 16.12.2024 20:25