Innlent
102 103 104 105 106 107 108 109 110 … 334 ›
Einbeitti sér alfarið að Svedda Tönn Lögreglufulltrúi segir Sverri Þór Gunnarsson, betur þekktan sem Svedda tönn, hafa rætt um fíkniefnaviðskipti við notanda sem lögregla telur ljóst að sé Pétur Jökull Jónasson. Pétur Jökull sætir ákæru fyrir aðild að stóra kókaínmálinu sem kom upp sumarið 2022. Lögreglufulltrúinn kafaði ofan í samskipti Sverris Þórs á Signal. Innlent 13.8.2024 21:00
Finnst líklegt að vindorka verði þriðja stoðin í orkukerfi landsins Vindorka verður að líkindum þriðja stoðin í orkukerfi landsins. Þetta er mat forstjóra Landsvirkjunar sem kallar eftir skilvirkara regluverki. Orkustofnun veitti Landsvirkjun í gær virkjunarleyfi fyrir fyrsta vindorkuveri landsins sem á að rísa við Búrfell. Innlent 13.8.2024 19:27
Íbúi á sjötugsaldri lést í brunanum við Amtmannsstíg Karlmaður á sjötugsaldri sem var í íbúðarhúsnæði við Amtmannsstíg í miðborg Reykjavíkur þegar eldur kviknaði í morgun hefur verið úrskurðaður látinn. Þetta staðfestir Grímur Grímsson, yfirlögregluþjónn hjá rannsóknarsviði lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Innlent 13.8.2024 17:28
Milla hætt hjá Willum Milla Ósk Magnúsdóttir hefur látið af störfum sem aðstoðarmaður Willums Þórs Þórssonar heilbrigðisráðherra. Hún hafði verið aðstoðarmaður ráðherra frá árinu 2021. Innlent 13.8.2024 15:06
Fimm milljarðar í húsnæðisúrræði fyrir hælisleitendur Kostnaður við húsnæðisúrræði fyrir hælisleitendur nam tæplega fimm milljörðum króna árið 2023 og áætlaður kostnaður fyrir þetta ár er tæplega 4,7 milljarðar. Innlent 13.8.2024 14:58
Lögreglan leitar að stolnum Volvo Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir svörtum Volvo XC90 með skráningarnúmerið MH048. Honum var stolið úr Sóltúni í Reykjavík í gær. Innlent 13.8.2024 14:16
Svipaður hlátur á öllum upptökunum Sérfræðingur í raddbeitingu við Háskólann í Árósum segir ýmislegt benda til þess að rödd Péturs Jökuls Jónassonar sé sú sem heyrist á upptöku sem er meðal helstu sönnunargagna lögreglu í stóra kókaínmálinu. Þetta kom fram við aðalmeðferð á þætti Péturs Jökuls Jónassonar í málinu í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag. Innlent 13.8.2024 13:45
Viðskiptaráð biður ráðuneytið um niðurstöður námsmats Viðskiptaráð hefur sent mennta- og barnamálaráðuneytinu upplýsingabeiðni um niðurstöður námsmats í grunnskólum. Í beiðninni er óskað eftir PISA-einkunnum, niðurstöðum samræmdra könnunarprófa og skólaeinkunnum sundurgreindum eftir grunnskólum. Innlent 13.8.2024 13:11
Telja áform um uppbyggingu vindmyllugarða verulegt áhyggjuefni Framkvæmdastjóri Landverndar segir að leyfi Orkustofnunar til vindorkuvers sé mikið áhyggjuefni. Nú þurfi að þrýsta á stjórnvöld að móta framtíðarstefnu í vindorkumálum áður en lengra er haldið. Innlent 13.8.2024 12:51
Skiptu um síma og símkort eins og nærbuxur til að hylja slóð sína Lögreglufulltrúar sem rannsökuðu stóra kókaínmálið lýstu því fyrir dómi í morgun að sakborningar hefðu endurtekið skipt út símum og breytt um notendanöfn í þeim tilgangi að hylja slóð sína við innflutninginn. Þeir komust á sporið í málinu við rannsókn á saltdreifaramálinu svokallaða vegna tengingar milli aðila í því máli og stóra kókaínmálinu. Innlent 13.8.2024 12:35
Starfsmenn Veðurstofunnar í biðstöðu og kvikusöfnun heldur áfram Náttúruvársérfræðingur segir litlar líkur á að gos hefjist innan bæjarmarka Grindavíkur. Starfsmenn Veðurstofunnar eru nú í biðstöðu og bíða eftir kvikuhlaupi eða eldgosi sem gæti hafist hvenær sem er. Innlent 13.8.2024 12:16
Sex sóttu um embætti forstjóra Náttúrufræðistofnunar Sex sóttu um embætti forstjóra Náttúrufræðistofnunar. Meðal umsækjenda eru settur forstjóri Náttúrufræðistofnunar, líftæknir og forstöðumaður Rannsóknaseturs HÍ á Snæfellsnesi. Hæfnisnefnd fer yfir umsóknirnar. Innlent 13.8.2024 11:31
Bruni í miðbænum og Landvernd slæst við vindmyllur Í hádegisfréttum fjöllum við um bruna sem kom upp á Amtmannsstíg í morgun þar sem einn var fluttur á slysadeild. Innlent 13.8.2024 11:31
Mikill og dökkur reykur í íbúðinni Einn var fluttur á slysadeild eftir bruna í íbúðarhúsnæði við Amtmannsstíg í morgun. Aðstoðarvarðstjóri segir mikinn og þykkan reyk hafa verið í íbúðinni þegar viðkomandi fannst. Innlent 13.8.2024 11:06
Einn fluttur á slysadeild eftir bruna á Amtmannsstíg Einn var fluttur á slysadeild vegna bruna í húsi á Amtmannsstíg 6. Allt tiltækt lið slökkviliðs er á vettvangi en búið er að slökkva eldinn. Slökkvilið vinnur nú að því að reykræsta. Innlent 13.8.2024 08:35
„Það er öllum brögðum beitt til að koma vörunum sem víðast“ Lára Guðrún Sigurðardóttir læknir segir sárvanta meira fjármagn til að koma í veg fyrir neyslu nikótíns. Neysla á nikótínpúðum og rafsígarettum hafi aukist síðustu ár. Innlent 13.8.2024 08:21
Þurfi að sýna skynsemi við uppbyggingu vindorkuvera Fyrsta leyfið fyrir vindorkuver á Íslandi var veitt í dag. Orkustofnun hefur veitt Landsvirkjun virkjanaleyfi fyrir Búrfellslundi þar sem stefnt er að því að reisa þrjátíu vindmyllur. Innlent 12.8.2024 23:05
Fluttur á sjúkrahús eftir að bát hvolfdi Einn var fluttur á sjúkrahús í kvöld eftir að bát hvolfdi í Hvalfirði. Tilkynning barst um málið á áttunda tímanum og var þyrlusveit Landhelgisgæslunnar, lögregla, áhöfn á sjómælingaskipinu Baldri og sjóbjörgunarsveitir kallaðar út. Innlent 12.8.2024 21:14
Ekki óyggjandi sönnun fyrir meintu dýraníði blóðbónda að mati MAST Matvælastofnun hefur komist að þeirri niðurstöðu að myndbrot sem meðal annars sýna manneskju sparka í höfuð fylfullrar hryssu séu ekki þess eðlis að stofnunin kæri til lögreglu og hefur lokað málinu. Innlent 12.8.2024 19:41
Hringveginum lokað við Borgarnes vegna elds í vörubíl Hringvegurinn er lokaður við Hafnarskóg rétt sunnan við Borgarnes eftir að eldur kviknaði í stýrishúsi vörubíls. Slökkvilið hefur ráðið niðurlögum eldsins en áfram er unnið að því að þrífa veginn og fjarlægja ökutækið. Bílstjóra sakaði ekki. Innlent 12.8.2024 19:17
Malarvagn kramdi bílstjórahús flutningabíls Pallur flutningabíls gaf sig í Grjótási í Reykjanesbæ með þeim afleiðingum að malarvagn féll á bílstjórahús bílsins. Innlent 12.8.2024 18:19
Ferðamenn í báðum bifreiðum Enn er lokað fyrir umferð um Hringveginn við Skeiðarársand eftir harðan árekstur tveggja fólksbifreiða í Öræfasveit við Gígjukvísl upp úr klukkan 14 í dag. Tveir erlendir ferðamenn voru í hvorri bifreið og hafa þeir allir fjórir verið fluttir á sjúkrahús með þyrlu Landhelgisgæslunnar. Innlent 12.8.2024 18:06
Landsvirkjun skrefi nær því að reisa fyrsta vindorkuverið Orkustofnun veitti í dag virkjunarleyfi fyrir vindorkuverið Búrfellslund við Vaðöldu í Rangárþingi ytra. Landsvirkjun hyggst þar byggja upp fyrsta vindorkuver landsins. Gert er ráð fyrir að 28 til 30 vindmyllur rísi sunnan Sultartangastíflu á 17 ferkílómetra svæði og uppsett afl verði um 120 megavött. Innlent 12.8.2024 17:32
Rannsaka hugsanleg veikindi af völdum E.coli Veikindi meðal göngufólks á Rjúpnavöllum í Rangárþingi ytra sem mögulega er talið að megi rekja til kólíbaktería, E.coli eru til rannsóknar hjá Sóttvarnalækni og Heilbrigðiseftirliti Suðurlands. Innlent 12.8.2024 17:04
Makaði tómatsósu á útidyrahurð nágranna sinna Rawad Nouman vissi ekki hvaðan á sig stóð veðrið þegar nágranni hans á Selfossi hafði uppi hótanir við hann og litla bróður hans, og makaði svo tómatsósu á hurðina að íbúð þeirra. Rawad segist ekkert hafa á móti manninum en vill vera látinn í friði. Innlent 12.8.2024 16:36
Þvert nei á línuna kom saksóknara í opna skjöldu Allir sakborningar í stóru fíkniefnamáli þar sem kókaín var flutt í pottum sem farþegar höfðu með sér í skemmtiferðaskipi neituðu sök við þingfestingu málsins í dag. Það kom saksóknara og dómara í málinu í opna skjöldu að allir neituðu sök. Innlent 12.8.2024 15:43
Gelt á Heiðu Eiríks í miðborginni Gelt var á Heiði Eiríksdóttur tónlistarkonu á laugardagskvöld af ungum drengjum, þar sem hún var á leið heim á göngu í miðbæ Reykjavíkur ásamt vinkonu sinni eftir gleðskap þeirra í tilefni af Hinsegin dögum. Drengirnir tóku geltið upp á myndband. Hún segir að um hafi verið að ræða ömurlegan endi á kvöldinu og að það sé alveg ljóst að þörf sé á hinsegin dögum. Innlent 12.8.2024 15:23
Hringveginum lokað við Skeiðarársand vegna alvarlegs bílslyss Alvarlegur árekstur varð í Öræfasveit við Gígjukvísl á þriðja tímanum í dag þegar tveir bílar skullu saman. Þyrla Landhelgisgæslunnar var kölluð á vettvang og mikill viðbúnaður er á svæðinu. Lokað er fyrir umferð um veginn. Innlent 12.8.2024 14:50
Féll af hesti og var án meðvitundar Miklar umferðartafir eru við Kirkjubæjarklaustur vegna slyss sem varð á þriðja tímanum í dag. Þyrla Landhelgisgæslunnar er á vettvangi ásamt lögreglu og sjúkraflutningamönnum. Innlent 12.8.2024 14:45
Hafnar því að hafa reynt að drepa mann og dreifa dópi Karlmaður á fertugsaldri sem ákærður er fyrir tilraun til manndráps og aðild að umfangsmiklu fíkniefnamáli neitaði sök við þingfestingu málsins í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag. Hann játaði þó vopna- og fíkniefnalagabrot í málinu. Innlent 12.8.2024 14:17