Innlent

86 prósent horfðu ekki á úr­slit Euro­vision

Rúmlega 86 prósent landsmanna horfðu ekki á úrslitakvöld Eurovision sem haldið var í Vín í Austurríki samkvæmt nýrri skoðanakönnun Maskínu. Rúmlega 27 prósent sögðust sakna þátttöku Íslands í keppninni en 73 prósent ekki. 

Innlent

Ráð­herra vill varamótor Herjólfs til­tækan hér­lendis

Áfram eru tafir á viðgerðum á Herjólfi vegna seinkunar á afhendingu varahluta til verkstæðis í Hollandi. Innviðaráðherra, Eyjólfur Ármannsson, leitar nú leiða til að tryggja að rekstraraðilar Herjólfs eigi til aukalegan varamótor fyrir Herjólf hér á Íslandi.

Innlent

„Best að taka menn og sekta dug­lega“

Vegurinn sem erlendir ferðamenn fóru um og ollu síðan spjöllum utanvegar við Einhyrning, Kötlujökul og á Emstruleið, var lokaður og merktur með skiltum. Hlið á veginum á að koma í veg fyrir umferð, en þó bregður við að ökumenn, ekki síst Íslendingar, fari þar um og aki spottakorn, og snúi við, en loki ekki hliðinu á eftir sér.

Innlent

Slags­mál tveggja í Kópa­vogi enduðu á slysa­deild

Einn var fluttur á slysadeild í kjölfar slagsmála tveggja í Kópavogi í gærkvöldi. Heimir Ríkharðsson, stöðvarstjóri á lögreglustöð 3 í Kópavogi, segir slagsmálin hafa átt sér stað fyrir utan hús. Það sé þó ekki heimili mannanna.

Innlent

Kom ekki til skoðunar að gera Land Rover-jeppana upp­tæka

Erlendir ferðamenn sem ollu miklu tjóni með utanvegaakstri á Land Rover-bifreiðum þurftu að borga fleiri hundruð þúsunda í sekt en lögreglu þótti ekki ástæða til að gera jeppana upptæka. Fjallamaður meðlimur í 4x4 klúbbnum telur að herða þurfi viðurlög við utanvegaakstri.

Innlent

BSO-stöðin komin á nýtt heimili

Húsnæði Bifreiðastöðvar Oddeyrar, BSO, er komið á nýjan stað. Húsið stendur nú á bílaplani Jólagarðsins og fær varanlegan stað í garðinum á næstu mánuðum. Eigandi hússins segir það fá að halda sinni upprunalegu mynd. 

Innlent

Hrafni bjargað af þaki Byko

Þegar starfsmenn mættu til starfa í morgun, í Kjalarvogi nánar tiltekið, blasti við hrafn hangandi í girni sem fast var við þak Byko. Starfsmenn Húsasmiðjunnar höfðu samband við lögreglu sem sendi slökkviliðið á staðinn. Slökkviliðið virtist vel búið til að sinna verkefnum sem þessum, þeir höfðu snör handtök og björguðu krumma.

Innlent

Segir þörf á fræðslu um kyrkingar­tak í grunn­skólum

Sérfræðingur í ofbeldismálum hjá þróunarmiðstöð íslenskrar heilsugæslu segir þörf á fræðslu um kyrkingartak í grunnskólum landsins en boðað hefur verið til samfélagmiðlaátaks um kyrkingartak. Margir unglingar telji það hluta af eðlilegu kynlífi.

Innlent

Fyrstu hvalirnir skotnir í nótt

Hvalur 9, sem sigldi út á miðin á föstudagskvöld, hefur skotið tvo hvali og er nú á leið með þá í land. Þetta eru fyrstu hvalirnir sem veiddir eru á Íslandsmiðum síðan 2023.

Innlent

Ekki lengur flestir sem út­skrifast af náttúrufæðibraut

Í fyrra var fyrsta árið þar sem náttúrufræðibraut var ekki fjölmennasta brautin meðal brautskráðra stúdenta í nær áratug, eða frá árinu 2016. Flestir sem brautskráðust með stúdentspróf í fyrra útskrifuðust af öðrum en hefbundnum námsbrautum.

Innlent

Einn kærður fyrir stór­fellda líkams­á­rás

Einn hefur verið kærður fyrir stórfellda líkamsárás í Kópavogi í gærkvöld eða nótt. Greint er frá í dagbók lögreglu en ekki kemur nánar fram um atvik eða þann sem er ákærður en einn er samkvæmt dagbók vistaður í fangageymslu eftir nóttina.

Innlent

Flytur sig í starfi um 900 kíló­metra

Bragi Þór Thoroddsen hefur verið ráðinn sveitarstjóri Fljótsdalshrepps. Bragi hefur síðustu sjö ár verið verið sveitarstjóri Súðavíkurhrepps en flytur sig nú um í starfi hinum megin á landið. 

Innlent