Innlent
82 83 84 85 86 87 88 89 90 … 334 ›
Mega ekki leita að vopnum í töskum og fatnaði barnanna Vopnaburður grunnskólabarna og unglinga hefur aukist á síðustu árum segir formaður Skólastjórafélags Íslands. Enn uggvænlegri þróun hafi orðið nýlega í þá átt að ungmenni eru farin að beita vopnunum. Samfélagið sé komið á alvarlegan stað og nú þurfi að spyrna við fótum. Innlent 2.9.2024 20:00
Viðauki við samning SÍ og SÁÁ hluti af aðgerðum gegn ópíóðavandanum Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra staðfesti í dag viðauka við samning Sjúkratrygginga Íslands og SÁÁ um flýtiþjónustu vegna fíknisjúkdóma og snemminngrip fyrir einstaklinga með alvarlega ópíóíðafíkn. Samningurinn er liður í aðgerðum stjórnvalda til að sporna við skaða af völdum ópíóðafíknar. Innlent 2.9.2024 19:14
Samfélagið einkennist af spennu sem brýst út í ofbeldi „Ég man í mínu ungdæmi, við strákarnir vorum með hnífa. Við vorum með dálka, meira að segja mjög hættulega dálka. Fengum þetta frá foreldrum í afmælisgjöf eða eitthvað slíkt. Það er ekkert nýtt að það séu hnífar í umhverfi okkar. Notuðum þá til að tálga og gera alls konar hluti en það hvarflaði ekki að okkur að beina þessu gegn öðrum. Þar er ákveðin breyting sem hefur átt sér stað.“ Innlent 2.9.2024 18:38
Vopnaburður ungmenna ekki nýr af nálinni Formaður skólastjórafélags Íslands segir ekki nýtt af nálinni að börn og ungmenni gangi um með vopn. Það sem hafi breyst sé vilji þeirra til að beita þeim. Rætt verður við hann í kvöldfréttum Stöðvar 2. Innlent 2.9.2024 18:12
Þræleðlilegt að reka ríkissjóð í halla í heimi „Litla-Miðflokksins“ Þingmaður Viðreisnar segir furðulegt að hafa fylgst með flokksráðsfundi Sjálfstæðisflokksins sem fór fram um helgina. Hún gagnrýnir ábyrgðarleysi á sögulega lágu fylgi flokksins í því sem hún kallar „Litla-Miðflokknum“. Innlent 2.9.2024 17:57
Segir Sigurjón Kjartansson ekki ofbjóða sér Eiríkur Örn Norðdahl rithöfundur fettir fingur út í það sem honum þykir einfeldningsleg nálgun á gríni. Hann segist hafa rekið augu í að enn og aftur sé hún hafin umræðan um hvort gera megi grín að hræðilegum hlutum. Innlent 2.9.2024 16:36
Elsti karlmaður landsins fallinn frá Karl Sigurðsson, elsti íslenski karlmaðurinn, er fallinn frá 106 ára að aldri. Karl fæddist á Ísafirði þann 14. maí 1918 og var skírður 1. desember 1918 á sama degi og Ísland varð fullvalda. Karl lætur eftir sig stóran hóp afkomenda. Innlent 2.9.2024 16:33
Dyraverðir vilja fá að nota handjárn: „Það er orðið svo mikið ofbeldi niðri í bæ“ Dyraverðir kalla eftir því að fá heimild til að nota handjárn í þágu aukins öryggis. Dyravörður sem stendur fyrir undirskriftasöfnun þess efnis segir aukið ofbeldi í miðborginni kalla á breytingar á lögum sem heimili dyravörðum, með skilyrðum, að bera og beita handjárnum. Sjálfur hafi hann í tvígang lent í því á undanförnum mánuðum að ráðist var að honum með eggvopni. Innlent 2.9.2024 16:01
Tvö þúsund ferðamenn án sambands: „Við erum mjög stressaðir yfir þessu“ Rafmagnsleysi í Mýrdal olli því að símasambandslaust var á stóru svæði í Mýrdal, þar á meðal í Reynisfjöru og Reynishverfi, fram eftir degi. Landeigandi á svæðinu segir óboðlegt að símasamband detti út á svæðinu svo lengi, sér í lagi í ljósi þess fjölda ferðamanna sem sækir Reynisfjöru. Innlent 2.9.2024 15:36
„Þetta er aðför að veikum rétti leigjenda“ Formaður samtaka leigjenda gagnrýnir harðlega breytingu á húsaleigulögum sem tók gildi nú um mánaðarmótin. Um sé að ræða aðför að leigjendum þar sem staða leigusalans sé fyrst og fremst styrkt. Ekki hafi verið tekið tillit til krafna samtakanna við breytingu laganna heldur þvert á móti. Innlent 2.9.2024 13:55
Mættu í bleiku til að heiðra minningu Bryndísar Klöru Verzlingar mættu í bleiku í dag til að heiðra minningu Bryndísar Klöru Birgisdóttur, sautján ára stúlku sem lést af sárum sínum á föstudag. Bleikur var hennar eftirlætislitur. Forseti nemendafélagsins í Verzlunarskólanum segir að nemendur og kennarar séu í sárum og hafi viljað senda frá sér falleg skilaboð. Hann segir þörf á fræðslu um ofbeldi á landsvísu. Innlent 2.9.2024 11:45
Leigjendur ósáttir við ný lög Í hádegisfréttum verður rætt við formann Samtaka leigjenda sem gagnrýnir harðlega nýgerðar breytingar á húsaleigulögum sem tóku gildi nú um mánaðarmótin. Innlent 2.9.2024 11:37
Laxaseiði úr landeldisstöð sluppu í sjó Allt að þrjú hundruð laxaseiði sluppu í sjó á Kópaskeri í júlí. Ekki tókst að fanga neitt hinna stroknu seiða eftir að ljóst varð um óhappið sem leiddi til stroks laxfiska úr landeldisstöð. Fiskeldisfyrirtækið Kaldvík ehf. tilkynnti Matvælastofnun um óhappið þriðjudaginn 30. júlí en seiðin sluppu í sjó við dælingu laxaseiða úr eldisstöð fyrirtækisins á Röndinni á Kópaskeri yfir í brunnbátinn Ronja Fjord. Innlent 2.9.2024 11:14
Slökktu minniháttar eld í Litlatúni Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins sinnti útkalli í verslunarkjarnanum í Litlatúni í Garðabæ, þar sem minniháttar eldur kviknaði í rafmagnstöflu. Innlent 2.9.2024 11:06
Blöskrar grín árum saman að þjáningum kvenna Stjórnarformaður Hagsmunasamtaka brotaþola segir grín að nauðgunum ýta undir kynbundið ofbeldi. Hún tínir til dæmi frá mörgum helstu skemmtikröftum þjóðarinnar og segir tíma til kominn til að hætta að gera lítið úr ofbeldi. Innlent 2.9.2024 10:53
Unglingaslagsmál á Selfossi á borði lögreglu Lögreglan á Suðurlandi hefur til rannsóknar slagsmál unglinga undir Ölfusárbrú á Selfossi í gærkvöldi. Íbúi í bænum fullyrðir að fjórir til fimm grímuklæddir hafi ráðist að einum. Innlent 2.9.2024 10:10
Sjálfstæðismenn óánægðir með það sem flokkurinn „hefur þurft að kyngja“ Diljá Mist Einarsdóttir og Jón Gunnarsson, þingmenn Sjálfstæðisflokksins, segja stöðu Sjálfstæðisflokksins alvarlega og að það verði að bregðast við. Þau segja að á flokksráðsfundi hafi komið fram skýr krafa um að sjálfstæðisstefnan verði fyrirferðarmeiri. Samstarf við vinstriflokka sé fullreynt en þau gangi óbundin til kosninga. Innlent 2.9.2024 09:21
Á leið í flug og vildarpunktarnir eru útrunnir Óánægju gætir meðal ungra Sjálfstæðismanna í garð forystu flokksins ef marka má skrif Franklíns Ernis Kristjánssonar, sem situr í stjórn Sambands ungra Sjálfstæðismanna. Innlent 2.9.2024 08:35
Unnið að því að gera við alvarlega rafmagnsbilun í Mýrdal Alvarleg rafmagnsbilun er í gangi í Mýrdal, en samkvæmt tilkynningu hjá RARIK er búið að staðsetja bilunina og unnið að viðgerð. Innlent 2.9.2024 07:05
Þeim fjölgar sem ná ekki lestrarviðmiðum í 1. bekk „Erlendar rannsóknir hafa sýnt fram á að ef börn hafa ekki náð nægilegri færni í 3. bekk þá næst hún sjaldnast. Þá ná þau í rauninni aldrei jafnöldrum sínum og sitja einfaldlega eftir.“ Innlent 2.9.2024 07:02
Akureyringar segja vöggu flugsins vera fyrir norðan Flugáhugamenn sunnan og norðan heiða hafa löngum togast á um það hvort vagga íslensks flugs eigi að teljast vera í Reykjavík eða á Akureyri. Þótt fyrsta flugvélin á Íslandi hafið tekið flugið í Reykjavík halda Akureyringar því gjarnan fram að vagga flugsins sé í raun fyrir norðan. Innlent 1.9.2024 23:00
Leggja aukinn þunga í að rannsaka ásetning hins grunaða Lögregla leggur nú áherslu á að kanna ásetning drengsins sem grunaður er um að hafa stungið þrjú ungmenni á menningarnótt, með þeim afleiðingum að sautján ára stúlka lést. Málið hefur hreyft við þjóðinni og á samfélagsmiðlum biðlar fólk til ungmenna að hætta hnífaburði. Innlent 1.9.2024 20:03
Nýr biskup tekur við þjóðkirkjunni Guðrún Karls Helgudóttir var vígð til biskups Íslands í Hallgrímskirkju í dag. Fjöldi fólks tók þátt í athöfninni, þar á meðal íslenskir prestar og biskupar, auk biskupa frá Norðurlöndum, Bretlandi, Wales og Palestínu. Innlent 1.9.2024 20:02
„Þau stóðu og tröðkuðu á andlitinu á honum“ „Ég er að beygja inn á planið þegar dóttir mín argar „það er verið að meiða“,“ segir kona sem varð vitni að fólskulegri hópárás fyrir utan Breiðholtslaug í dag. Innlent 1.9.2024 19:07
Fengu óljósar ábendingar um hefndaraðgerðir Lögreglu bárust óljósar ábendingar úr ýmsum áttum um helgina um mögulegar hefndaraðgerðir vegna stunguárásarinnar í Skúlagötu á Menningarnótt þar sem 17 ára stúlka lét lífið. Áttu hefndaraðgerðirnar að fara fram í Mosfellsbæ þar sem bæjarhátíðin Í túninu heima er haldin. Innlent 1.9.2024 18:48
Þjóð í áfalli vegna hnífaburðar og mótmælaalda í Ísrael Lögregla leggur nú áherslu á að kanna ásetning drengsins sem grunaður er um að hafa stungið þrjú ungmenni á menningarnótt, með þeim afleiðingum að sautján ára stúlka lést. Málið hefur hreyft við þjóðinni og á samfélagsmiðlum biðlar fólk til ungmenna að hætta hnífaburði. Við ræðum við yfirlögregluþjón í kvöldfréttum Stöðvar 2 klukkan 18:30. Innlent 1.9.2024 18:18
Fréttamaðurinn hafi vart getað varist hlátri Skúli Magnússon umboðsmaður Alþingis fer um víðan völl í viðtali á Sprengisandi í dag. Hann ræðir grundvallarréttindi borgaranna og spyr hvort viðhorf stjórnvalda hafi breyst eftir tíma heimsfaraldurs og eldsumbrota. Fréttamaður Ríkisútvarpsins hafi vart getað varist hlátri fyrir tveimur árum við lestur fréttar um að umboðsmaður hefði sett spurningarmerki við samkomutakmarkanir. Innlent 1.9.2024 16:16
Verður veturinn nýja ferðamannatímabilið í Fjallabyggð? Mannlíf og atvinnulíf blómstrar, sem aldrei fyrr í Fjallabyggð þessi misserin enda hefur sjaldan eða aldrei verið eins mikið að gera í sveitarfélaginu og nú. Bæjarstjórinn spáir því að veturinn verði nýja ferðamannatímabilið í sveitarfélaginu vegna góðrar skíðaaðstöðu. Innlent 1.9.2024 15:06
Mikill viðbúnaður í túninu heima Skipuleggjandi hátíðarinnar Í túninu heima í Mosfellsbæ segir hana farið að mestu leyti vel fram fyrir utan líkamsárás á föstudag þar sem hníf var beitt. Viðbúnaður hafi verið töluverður og gæsla hafi verið aukin til muna eftir stunguárásina á menningarnótt. Innlent 1.9.2024 14:38
Biskupar frá öllum heimshornum á vígsluathöfninni Guðrún Karls Helgudóttir verður vígð í embætti biskups Íslands í Hallgrímskirkju klukkan tvö í dag. Hún tekur við embættinu af Agnesi M. Sigurðardóttur sem hefur verið biskup síðan árið 2012. Innlent 1.9.2024 13:41