Gengishagnaður strax við kaup 26. júlí 2004 00:01 "
Þetta er ósköp einfalt. Bréf KB banka hafa verið að seljast á genginu 420 til 450 krónur á hlut. Gengið í útboðinu er 360 krónur á hlut," segir Karl Finnbogason hjá Verðbréfastofunni um hlutafjárútboð KB banka. "Við ráðleggjum okkar viðskiptavinum að taka þátt í þessu útboði, það er engin spurning." Karl segir að kaupendur séu þegar við kaup með gengishagnað af nýjum bréfum. KB banki hyggst afla 40 milljarða í hlutafjárútboði til kaupa á danska bankanum FIH. Þeir sem áttu hlut í bankanum þann 5. júlí hafa rétt til kaupa í hlutfalli við eign sína. Hluthafar bankans hafa fengið sent bréf þar sem þeim er úthlutað lykilorði. Borið hefur á þeim misskilningi að fólk hafi reynt að skrá sig nú þegar, en ekki verður opnað fyrir skráningu fyrr en á fimmtudag. Bankinn mun birta sex mánaða uppgjör þann dag. Fjárfestar hafa svo tíma til 6. ágúst til að taka ákvörðun, en þurfa ekki að greiða hlut sinn fyrr en 20. ágúst. Karl segir þá hjá Verðbréfastofunni hafa svarað fyrirspurnum viðskiptavina um útboðið. "Við erum einnig með hóp fólks í eignastýringu hjá okkur. Sá hópur þarf ekki að hafa áhyggjur af útboðinu. Við sjáum um kaupin fyrir það."
Fréttir Innlent Viðskipti Mest lesið Kaldvík sett í skammarkrókinn í Ósló Viðskipti innlent Flugmenn Air Atlanta hafa fellt nýjan kjarasamning í tvígang Viðskipti innlent Ræða möguleika á næsta á fundi í kjaradeilu Icelandair Viðskipti innlent Næst stærsti hluthafi Icelandair segir óbreytta stöðu ekki valkost Viðskipti innlent Hvernig get ég forðast netsvik? Viðskipti innlent Hluthafar Brims seldu félaginu fyrir sex milljarða Viðskipti innlent Anthropic nær forskoti í kapphlaupinu gegn OpenAI Viðskipti erlent Engar málamiðlanir í 810 kílómetra drægni Samstarf Bein útsending: Valkostir Íslands í gjaldmiðlamálum Viðskipti innlent Hundruðum sagt upp í maí Viðskipti innlent Fleiri fréttir Leiðin að lægri vöxtum sé sú sama með krónu og evru Bein útsending: Valkostir Íslands í gjaldmiðlamálum Kaldvík sett í skammarkrókinn í Ósló Flugmenn Air Atlanta hafa fellt nýjan kjarasamning í tvígang Hluthafar Brims seldu félaginu fyrir sex milljarða Ræða möguleika á næsta á fundi í kjaradeilu Icelandair Beint streymi: Framtíð matvælaframleiðslu á Íslandi Hvernig get ég forðast netsvik? Hundruðum sagt upp í maí Næst stærsti hluthafi Icelandair segir óbreytta stöðu ekki valkost Opna opinbera upplýsingagátt um almyrkvann Hagnaðurinn tæplega tvöfaldaðist milli ára Vildu leggja stór deiluefni til hliðar til að skapa starfsfrið Einar einbeitir sér að norðurslóðum og Hjalti tekur við Gengi Oculis hrynur Tuttugustu ferð Icelandair aflýst vegna manneklu Samþykkja að kaupa Lýsi og selja í öðrum félögum fyrir milljarða Hröð og slæm þróun á fasteignamarkaði Aflýsa sex flugferðum vegna áhafnarskorts Atvinnuleysi lækkar en óvissa eykst Prentmet Oddi kaupir Ísafoldarprentsmiðju Kaupa Sóma og Þykkvabæ Ákvörðun um næsta fund tekin yfir helgina Eftir sumarið tekur við óvissa Yrði fjórði stærsti lífeyrissjóðurinn Kjörin formaður SÍA Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Meira atvinnuleysi og fjöldauppsagnir í maí Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Flugrisi eignast allan flugflota Air Atlanta Sjá meira