Tíska og hönnun

Nýjung hjá Monsoon

Breska kvenfataverslunarkeðjan Monsoon mun kynna sína fyrstu karlfatalínu nú í haust. Þessi lína er liður í áætlun Monsoon um að færa út kvíarnar um allan heim. Karlfatalínan mun væntanlega verða fáanleg í tólf verslunum í Bretlandi. Einnig mun Monsoon opna eina verslun eingöngu með karlfatnað í Covent Garden í London.

Nýja karlfatalínan mun væntanlega verða í svipuðum einstökum stíl og kvenfatalínan en þó vonandi eilítið karlmannlegri.

Monsoon fyrirtækið stóð ekki sem best á síðasta ári en hefur nú tilkynnt fimmtán prósent aukningu á árlegum tekjum, fyrir skatt. Það munu því vera bjartir tímar framundan hjá Monsoon sem hyggja á opnun enn fleiri verslana á næstunni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.