Hlutafé fyrir 3,8 milljarða selt í Flugleiðum hf. 10. nóvember 2004 00:01
Hlutafjárútboði Flugleiða hf. er lokið. Voru seldir hlutir að nafnverði 420 milljónir króna á genginu 9,10. Nemur söluverð hlutafjárins því rúmum 3,8 milljörðum króna, en hlutafjárútboðinu var beint til fagfjárfesta. Í tilkynningu frá Flugleiðum segir að fjárfestar hafi óskað eftir að kaupa hlutafé fyrir tæpa 6 milljarða króna. Umframeftirspurn var því 56,4%. Stjórn félagsins hafði ákveðið að selja 350 til 420 milljónir hluta, samanber tilkynningu félagsins frá 3. nóvember. Vegna mikillar eftirspurnar var ákveðið að selja hlutafé að nafnverði 420 milljónir króna. Hlutaféð, sem selt var í hlutafjárútboðinu, skiptist í nýja hluti og eigin hluti. Á stjórnarfundi, sem haldinn var í Flugleiðum hf. eftir lokun markaða í dag, var ákveðið að hækka hlutafé félagsins um 230 milljónir króna að nafnverði, með útgáfu 230 milljóna nýrra hluta. Hinir nýju hlutir veita hluthöfum félagsins sömu réttindi og aðrir hlutir í því frá skrásetningardegi hlutafjárhækkunarinnar sem fyrirhuguð er í næstu viku. Þar var jafnframt samþykkt að selja eigin hluti félagsins að nafnverði 190 milljónir króna. Heildarhlutafé félagsins eftir hækkun er 2.537.000.000 krónur að nafnverði sem skiptist í 2.537.000.000 hluti. Umsjónaraðili útboðsins var Fyrirtækjaráðgjöf Kaupþings Búnaðarbanka hf.
Fréttir Innlent Viðskipti Mest lesið Segja Heinemann brjóta gegn stjórnarskrárvörðum rétti Íslendinga Viðskipti innlent Íslenskt sund í New York Viðskipti erlent Borgunarmálinu lokið og bankinn fær ekki krónu Viðskipti innlent Gamla nafnið verður nýja nafnið, aftur Viðskipti erlent Vikan sem vex og vex: „Magatilfinningin er jafnvel mikilvægust“ Atvinnulíf Skor aftur synjað um lengri opnunartíma vegna hávaða Viðskipti innlent Spá óbreyttum stýrivöxtum Viðskipti innlent Bein útsending: Kynningarfundur um hlutafjárútboð í Íslandsbanka Viðskipti innlent Útboðið fari vel af stað og allar líkur á að magnið aukist Viðskipti innlent Útboðið á ríkishlutum í Íslandsbanka hafið Viðskipti innlent Fleiri fréttir Borgunarmálinu lokið og bankinn fær ekki krónu Bein útsending: Kynningarfundur um hlutafjárútboð í Íslandsbanka Skor aftur synjað um lengri opnunartíma vegna hávaða Segja Heinemann brjóta gegn stjórnarskrárvörðum rétti Íslendinga Spá óbreyttum stýrivöxtum Útboðið fari vel af stað og allar líkur á að magnið aukist Jákvætt að almenningur njóti forgangs við söluna Áskriftir borist í 20 prósenta hlut í Íslandsbanka Verslun Nettó í Glæsibæ opnar líklega á morgun Dregur úr tapi og notendum fjölgar um 66 prósent Vonar að almenningur nýti forganginn í bankasölunni Ráðinn forstöðumaður Öryggislausna OK Útboðið á ríkishlutum í Íslandsbanka hafið Síðasti dropinn á sögulegri stöð Ráðuneytið ræður fjögur íslensk fjármálafyrirtæki vegna sölunnar á Íslandsbanka Sjóvá fundaði með PPP en afþakkaði þjónustu Svandís tekur við Fastus lausnum Ráðinn framkvæmdastjóri Starbucks á Íslandi Tæknin geti komið í veg fyrir þjófnað Hafa þegar skilað nettóbindingu en tafir á stærri föngunarstöð „Umbreyting í átt að velsældarhagkerfi krefst hugrekkis“ Salan á Íslandsbanka: Samið við fjóra erlenda söluaðila Til IDS á Íslandi frá Íslenskri erfðagreiningu Hagnaðist um rúma fimm milljarða á fyrsta ársfjórðungi Hundrað og fimmtíu manns unnu að opnuninni Samþykktu að bæta við leið fyrir stóra fjárfesta í sölu Íslandsbanka Gríðarlegt áhyggjuefni fyrir Norðurþing Ingunn ráðin framkvæmdastjóri Auðnu Rannsakendur og nemendur við HA fá aðgang að sérhæfðu gervigreindartóli Tæplega átta milljarða króna viðsnúningur milli ára Sjá meira