Teymi styrkir Neistann 22. desember 2004 00:01
Teymi hefur líkt og fjölmörg önnur fyrirtæki ákveðið að senda ekki jólakort í ár en láta þess í stað jólakortasjóðinn renna til mannúðarmála. Nýlega afhenti Ragnar Marteinsson, framkvæmdastjóri Teymi, Neistanum jólakortastyrk og jafngildir fjárhæðin þeim kostnaði sem Teymi hefði annars haft af að senda viðskiptavinum sínum og velunnurum jólakveðju. Með þessu vill Teymi styrkja starfsemi Neistann í að hlúa að hjartveikum börnum og aðstandendum þeirra. Neistinn, styrktarfélag hjartveikra barna var stofnað 9. maí 1995. Neistinn hefur það hlutverk að hlúa að hjartveikum börnum, fjölskyldum þeirra og aðstandendum. Starfsemi Neistans snýst einnig um að auka fræðslu og þekkingu á hjartasjúkdómum barna.
Innlent Jól Menning Mest lesið Flottar borðskreytingar fyrir aðventuboðin Jólin Deila með sér hollustunni Jól Sálmur 76 - Hin fegursta rósin er fundin Jól Jólahátíð í Kópavogi - myndir Jól Jólatöfrar Jól Jólakúlur úr mosa Jólin Syng barnahjörð Jól Salan á jólaöli Carlsberg slær met Jól Tími kærleikans Jól Eyrnakonfekt á aðventunni Jól