Lífið

Margrét Lára úr leik

Margrét Lára Þórarinsdóttir féll í kvöld út úr úrslitakeppni Idol stjörnuleitarinnar. 

Þriðji þáttur úrslitanna var í beinni útsendingu Stöðvar 2 frá Vetrargarðinum í Smáralind í kvöld. Átta þátttakendur sungu lög með Sálinni hans Jóns míns og var Stefán Hilmarsson gestadómari.

Margrét Lára söng "Ekkert breytir því" en frammistaða hennar var ekki það góð að dygði til áframhaldandi þátttöku að mati sjónvarpsáhorfenda, sem greiddu atkvæði um keppendur með því að hringja inn eða senda SMS.

Úrslitakeppnin heldur áfram að viku liðinni. Sjömanna úrslitin verða í beinni útsendingu Stöðvar 2 frá Smáralind næstkomandi föstudag, 4. febrúar klukkan 20:30. Þá fellur enn einn úr keppni.

Keppendur í 7 manna úrslitum eru; Brynja, Davíð Smári, Ylfa Lind, Lísa, Hildur Vala, Heiða og Helgi Þór. Örlög þeirra verða sem fyrr í höndum þjóðarinnar.


Tengdar fréttir

Hildur Vala IDOL stjarna Íslands

Hildur Vala Einarsdóttir, 23 ára Reykvíkingur, var í kvöld valin IDOL stjarna Íslands. Hildur Vala atti kappi við Heiðu í úrslitum IDOL stjörnuleitarinnar sem fram fóru í beinni útsendingu Stöðvar 2 frá Smáralind.

Þátttöku Ylfu Lindar lokið

Ylfa Lind Gylfadóttir, tvítug stúlka úr Hveragerði, var í kvöld kosin út úr keppni í Idol stjörnuleitinni. Fimm manna úrslit fóru fram í Vetrargarðinum í Smáralind í beinni útsendingu Stöðvar 2.

Helgi Þór sendur heim

Helgi Þór Arason féll í kvöld út úr úrslitakeppni Idol stjörnuleitarinnar. Sex manna úrslit fóru fram í beinni útsendingu Stöðvar 2 frá Vetrargarðinum í Smáralind í kvöld. Þema kvöldsins var kvikmyndatónlist. Gestadómari var Guðrún Gunnarsdóttir.

Ekkert Idol-kvöld á Hólmavík

Idol-kvöld verður ekki haldið í Bragganum á Hólmavík næsta föstudagskvöld eins og tvö föstudagskvöldin þar á undan, en þar söfnuðust Strandamenn saman til fylgjast með Heiðu Ólafsdóttur Idol-keppanda sem er frá Hólmavík.

Davíð Smári úr leik í Stjörnuleit

Davíð Smári Harðarson féll úr keppni í undanúrslitum Idol - Stjörnuleitar á Stöð 2 í gærkvöld. Aðalheiður Ólafsdóttir og Hildur Vala Einarsdóttir syngja til úrslita næsta föstudagskvöld.

Nanna Kristín féll út úr Idol

Nanna Kristín Jóhannsdóttir varð fyrst til að falla út úr úrslitakeppni Idol stjörnuleitarinnar í kvöld. Fyrsti þáttur úrslitanna var í beinni útsendingu Stöðvar 2 frá Vetrargarðinum í Smáralind í kvöld og sungu tíu þátttakendur lög að eigin vali.

Vala dottin út úr IDOL

Valgerður Friðriksdóttir féll í kvöld út úr úrslitakeppni Idol stjörnuleitarinnar. Annar þáttur úrslitanna var í beinni útsendingu Stöðvar 2 frá Vetrargarðinum í Smáralind í kvöld. Níu þátttakendur sungu lög frá diskótímabilinu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.