Aðför gegn Íbúðalánasjóði 16. febrúar 2005 00:01
Ögmundur Jónasson, þingflokksformaður Vinstri grænna, segir Samtök banka og verðbréfafyrirtækja (SBV) reyna allar leiðir til að koma Íbúðalánasjóði fyrir kattarnef. Hann segir þau samráðsvettvang stærstu fjármálafyrirtækjanna. Ögmundur undrast að Byggðastofnun skuli eiga aðild að samtökunum og spyr hvers vegna stofnunin taki þátt í aðförinni gegn Íbúðalánasjóði. Aðalsteinn Þorsteinsson, forstjóri Byggðastofnunar, segir þetta misskilning. Byggðastofnun hafi aldrei átt fulltrúa í stjórn SBV og aldrei tekið þar þátt í stefnumótun. "Ég er talsmaður samvinnu ef hún er til góðs, en menn mega ekki koma fram í dulargervi. Það er látið í veðri vaka að samtökin tali í þágu opinnar samkeppni, en það er undarlegt að fyrirtæki sem vilja opinn markað sameinist um að koma þeim fyrir kattarnef sem veita þeim mesta samkeppni," segir Ögmundur. Guðjón Rúnarsson, framkvæmdastjóri SBV, segir það fráleit ummæli að samtökin séu einhver samráðsvettvangur. "SBV eru heildarsamtök fjármálafyrirtækja í landinu, rétt eins og heildarsamtök annarra atvinnugreina. Það er hlutverk slíkra samtaka að berjast fyrir eðlilegum starfsskilyrðum og hagsmunabarátta sem beinist að því að ríkið hætti beinni starfsemi á samkeppnismarkaði er beinn þáttur í því."
Fréttir Innlent Viðskipti Mest lesið Átök auðkýfinganna: „Ekki farið fram hjá neinum að á milli okkar hefur andað köldu“ Viðskipti innlent Selja allan eignarhlut ríkisins í Íslandsbanka Viðskipti innlent „Já veistu Gummi, þetta gæti verið eitthvað“ Atvinnulíf Margföld umframáskrift en útboðið ekki stækkað í bili Viðskipti innlent Landsbankinn við Austurstræti falur Viðskipti innlent Málaferli vegna innkaupa ÁTVR halda enn áfram Viðskipti innlent Hefja flug til Edinborgar og Malaga Viðskipti innlent Sjóvá tapar hálfum milljarði Viðskipti innlent Líklega stærsta eignasala ríkissjóðs frá upphafi Viðskipti innlent Bjarni nýr framkvæmdastjóri RVK Bruggfélags Viðskipti innlent Fleiri fréttir Líklega stærsta eignasala ríkissjóðs frá upphafi Selja allan eignarhlut ríkisins í Íslandsbanka Sjóvá tapar hálfum milljarði Málaferli vegna innkaupa ÁTVR halda enn áfram Jón Ólafur nýr formaður SA Hefja flug til Edinborgar og Malaga Árni hættir sem forstjóri Húsasmiðjunnar Landsbankinn við Austurstræti falur Spá sömuleiðis óbreyttum stýrivöxtum Margföld umframáskrift en útboðið ekki stækkað í bili Átök auðkýfinganna: „Ekki farið fram hjá neinum að á milli okkar hefur andað köldu“ Bein útsending: Lokadagur Nýsköpunarviku Bjarni nýr framkvæmdastjóri RVK Bruggfélags Borgunarmálinu lokið og bankinn fær ekki krónu Bein útsending: Kynningarfundur um hlutafjárútboð í Íslandsbanka Skor aftur synjað um lengri opnunartíma vegna hávaða Segja Heinemann brjóta gegn stjórnarskrárvörðum rétti Íslendinga Spá óbreyttum stýrivöxtum Útboðið fari vel af stað og allar líkur á að magnið aukist Jákvætt að almenningur njóti forgangs við söluna Áskriftir borist í 20 prósenta hlut í Íslandsbanka Verslun Nettó í Glæsibæ opnar líklega á morgun Dregur úr tapi og notendum fjölgar um 66 prósent Vonar að almenningur nýti forganginn í bankasölunni Ráðinn forstöðumaður Öryggislausna OK Útboðið á ríkishlutum í Íslandsbanka hafið Síðasti dropinn á sögulegri stöð Ráðuneytið ræður fjögur íslensk fjármálafyrirtæki vegna sölunnar á Íslandsbanka Sjóvá fundaði með PPP en afþakkaði þjónustu Svandís tekur við Fastus lausnum Sjá meira
Átök auðkýfinganna: „Ekki farið fram hjá neinum að á milli okkar hefur andað köldu“ Viðskipti innlent
Átök auðkýfinganna: „Ekki farið fram hjá neinum að á milli okkar hefur andað köldu“ Viðskipti innlent